Búnaðarrit - 01.01.1933, Blaðsíða 2
BÚNAÐARRIT
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
hefir skrifslofu í Reykjavík, Lækjargöfu 14 D. Skrifstofan gefur
upplýsingar og leiöbeiningar í öllum greinum landbúnaðarins, eflir því,
sem starfsmenn félagsins geta í lé Iátið. Aðal-slarfsgreinar eru þessar:
A vegum Sigurðar Sigurðssonar, búnaðarmálastj. Sími 2151.
1. Umsjón með framkvæmd jarðræktarlaga og sandgræðslu:
Sigurður Sigurðsson, búnaðarmálastjóri.
2. Jarðyrkja: Ráðunaufur Pálmi Einarsson, annast allar mæl
ingar fyrir stærri jarðabótum, einkum áveitum, framræslu og
sandgræðslu. Sími 2151.
Samskonar störfum gegnir Ásgeir L. Jónsson, vatnsvirkja-
fræðingur, undir umsjón félagsins, en á kostnað ríkissjóðs.
A vegum Metúsalems Stefánssonar, búnaðarmálastj. Sími 3110.
3. Garðyrkja: Ráðunautur Ragnar Ásgeirsson, annast garðyrkju-
tilraunir við héraðsskólann á Laugavatni og leiðbeinir í garðrækt.
4. Fóðurrækt: Ráðunautur Mefúsalem Stefánsson, búnaðarmála-
stjóri, hefir umsjón og eflirlit með öllum ræktunartilraunum,
sem gerðar eru í landinu á vegum félagsins eða búnaðar-
sambandanna og leiðbeinir í fóðurrækt.
5. Grasfrærækt: Ráðunautur Klemenz Kr. Kristjánsson. Hann
rekur korn- og fræræktarbú félagsins á Sámsstöðum í Fljóls-
hlíð, og leiðbeinir um allt er að grasfrærækt og kornrækt
lýlur. Símastöð Breiðabólsstaður.
6. Hrossarækt: Ráðunautur Theodór Arnbjörnsson, annast allt
er að hrossarækt lýtur, og fóðurbirgðafélögum. Sími 4379.
7. Nautgriparækt: Ráðunautur Páll Zóphóníasson, veitir allar
leiðbeiningar um nautgriparækt. Sími 1957.
8. Sauðfjárrækt: Ráðunautur Páll Zóphóníasson, veitir allar
leiðbeiningar um sauðfjárrækt. Sími 1957.
9. Verkfæra-val og verkfæra-tilraunir. Ráðunautur Árni G.
Eylands, leiðbeinir um verkfæri og vélar, í samvinnu við S. f. S.,
og stendur fyrir verkfæra-tilraunum sem B. í. lætur gera.
Sími 1085.
10. Fóðurtilraunir: Þórir Guðmundsson, kennari á Hvanneyri,
stendur fyrir fóðurtilraunum, er félagið lætur gera með sauð-
fé og kýr. Símastöð Hvanneyri.
11. Klak og veiði í vötnum: Ráðunautur Ólafur Sigurðsson,
bóndi, Hellulandi. Símastöð Sauðárkrókur. (Helluland).
ISrST Þeir, sem óska leiðbeininga, sendi um það skrif-
lega beiðni til skrifstofu Búnaðarfélags íslands.
ÖLLUM FVRIRSPURNUM ER SVARAÐ ÓKEYPIS!