Búnaðarrit - 01.01.1933, Blaðsíða 170
ÍGO
BÚNAÐARRIT
Árinu 1932 svipar að mörgu til ársins 1931 með
hið milda tíðarfar. Veturinn mun hlýrri, vorið frekar
kalt í byrjun, en hlýrra þegar á Ieið. Sumarið hlýrra
og hagstæðara en árið á undan; gróðri fór að vísu
seint fram, en spretta varð góð og meir en í meðal-
lagi, þegar sláttur hófst. Oflun heyjanna varð farsæl og
náðust að mestu óskemmd. Haustið fremur kalt miðað
við 1931, en tíðarfarið þó hagstætt á marga lund. Síð-
asti mánuður ársins var hlýr en umhleypingasamur, er
svipar meir til haustveðráttu en vetrar, má þess vegna
telja, að árið hafi verið farsælt hvað tíðarfarið snertir.
Til gleggra yfirlits, þá fer hér á eftir tafla, er sýnir:
Lágmark, hámark, meðalhita og jarðvegshita í 1 m dýpi,
ásamt fjölda úrkomudaga og úrkomu í m/m fyrir hvern
mánuð, athugað á Sámsstöðum í Fijótshlíð árið 1932.
Lágmarks Hámarks Meðal ]arövegsh. Fjöldi Úrkoma
Mánuöir hiti C» hiti C° hiti C° í Im flýpi C° ú rkomud. m/m
Janúar • .. -v- 3,1 2,1 -4- 0,2 2,6 24 117,0
Febrúar .... 2,8 6,4 4,8 2,0 20 107,9
Marz 0,5 5,8 2,8 2,9 10 39,3
Apríl .. -4-3,3 4,4 0,8 2,9 8 42,9
Maí 4,7 13,3 8,5 3,7 10 13,3
]úní 6,4 14,6 10,0 6,4 7 40,1
]úlí 9,1 17,1 12,5 7,9 16 49,5
Ágúst 8,2 14,9 11,2 8,9 27 120,3
September .. 3,1 10,0 6,2 8,7 18 151,6
Ohtóber .... 0,7 6,8 3,6 7,0 11 53,6
Nóvember . . .. -M;2 4,8 2,2 4,7 18 123,2
Desember . .. .. . 4-0,7 4,2 2,1 3,6 24 127,5
Meðaltal 2,3 8,7 5,4 5,1 alls 193 986,2
Framkvæmdir.
1. B y g g i n g a r. Á árinu var, samkvæmt leyfi stjórnar
Ðúnaðarfélags íslands, haldið áfram með íbúðarhúsbygg-
ingu, er nokkuð var undirbúin haustið 1931. í marz var
farið að leiða vatn að byggingarstæðinu og grafa fyrir