Búnaðarrit - 01.01.1933, Blaðsíða 470
460
BÚNAÐARRIT
komið undan honum sæmileg lömb. Nú notaði hann
þennan hrút handa eldri ánum, og í því húsi voru fóðra
aer karlsins. Um vorið áttu þrjár þeirra bulldoglömb.
Eg kom á þennan bæ um haustið 1930. Þá rannsakaði
ég málið nokkuð og kom þá í ljós, sem vita mátti, að
á bænum, sem hrúturinn var keyptur frá, höfðu stund-
um fæðst bulldoglömb, og þau síðustu sama vorið og
þessi hrútur fæddist. Eg réði því svo, að hrúturinn var
ekki notaður meir, að ekki er alið upp undan þeim ám,
sem til eru undan honum, og nú ber hvorki á þvi að
ærnar gamla mannsins eigi bulldog lömb, né aðrar ær
á heimilinu. Þetta dæmi er að því leyti gott, að það
sýnir ykkur, að erfðagallar geta komið fram, þó foreldr-
arnir séu alveg óskyldir, ef þeir báðir hafa sömu gall-
ana hulda. Það sýnir ykkur líka, hvernig gamli maður-
inn, meðan hann bjó, af og til hitti á lambhrúta, sem
höfðu gallana, og hvernig það á sama hátt á hinum
bænum, sem fullorðni aðkeypti hrúturinn var frá, hefir
verið hrútur þar, sem hefir haft hann, og að hann þar
hefir líka verið hulinn í einhverju af ánum.
Austur í Vopnafirði varð vart við þetta sama í fyrra>
þegar hrútur, sem þótti ágætur, var notaður handa
dætrum sínum, og var það á heimili, sem annars hefir
aldrei eignast bulldog lamb fyr. Mörg slík dæmi má
telja. Þessi galli leynir sér ekki og bóndinn sér afarfljótt,
hvert hann hefir verið í fénu, sem hann byrjaði með.
Sama gildir um blindfædd lömb. Það kemur strax í
Ijós, hvort sá hvumleiði galli hefir verið í stofninum eða
ekki. Blindfædd lömb fá ekki sjón og drepast venjulega
ofan í mjög snemma. Eg hefi einungis heyrt um eitt dæmi
í Hamarsfirði og annað í Dalasýslu, þar sem blind lömb
lifðu sumarlangt fyrir staka umönnun móðurinnar. Það
var sérstaklega gaman af dæminu úr Hamarsfirði Þar
var það stygg forustuær, sem átti blinda lambið. En nú
brá hún vana sínum. Nú fór hún á eftir, hvenær sem
féð var rekið, og lambið gekk aftan við hana með