Búnaðarrit - 01.01.1933, Blaðsíða 408
398
B Ú N A Ð A R R I T
Athugasemd
við álit fjárhagsnefndar um reikninga Búnaðarfél. ísl.
árin 1931 og 1932, (þskj. 260, bls. 289—292).
Álit fjárhagsnefndar bar þannig áð á Búnaðarþingi,
að ekki gafst tækifæri til að gera við það athugasemdir
við umræðurnar, en það er þannig vaxið, að ástæða er
til að fara um það nokkrum orðum, að því leyti, sem
það snertir tilraunastarfsemina og framlagning reikning-
anna.
Nefndin segir: »Við heildaryfirsýn reikninganna hljóta
menn strax að reka augun í hinar mörgu og háu upp-
hæðir, sem ganga til alls konar tilraunastarfsemi*, og
sýnir síðan með tölum, hvernig þessar >mörgu og háu
upphæðir* skiptast á forstjóralaun og annan kostnað
hjá tilraunastöðvunum, og heildartalan verður fyrir bæði
árin 1931 og 1932 kr. 106909,90.
Þessi skýrsla er prentuð á bls. 291, eftir þskj. 260,
»óendurskoðuðu«, en við nánari athugun kemur í ljós,
að samtala forstjóralauna er oftalin um kr. 3000,00, en
annar kostnaður um kr. 2861,34, og heildarupphæðin
um kr. 5861,41. Ætti hún þá, eftir þeim tölum, sem
nefndin tilfærir í áliti sínu, að vera kr. 101048,49. En
samkvæmt reikningum félagsins, sem nefndin hafði í
höndum, er heildarupphæð rétt talin kr. 101396,11.
Þessi síðari skekkja liggur aðallega í því, að útgjöld
vegna garðræktar eru vantalin hjá nefndinni um rösk-
lega kr. 360,00.
Af ummælum nefndarinnar hljóta ókunnugir að draga
þá ályktun, að stjórnin hafi farið hér freklega fram úr
fjárhagsáætlun síðasta Búnaðarþings og eytt, eða látið
eyða, fé í heimildarleysi, til tilraunastarfseminnar, og
virðist svo sem forstjóralaunin séu nefndinni einkum
þyrnir í augum — og skipulagsleysið.
Nú liggja fyrir samþykktir frá fyrri Búnaðarþingum
um það, að félagið skuli hafa í sinni þjónustu garðræktar-