Búnaðarrit - 01.01.1933, Blaðsíða 38
B Ú N A Ð A R R I T
32
Mismun á tekju- og gjaldaliðum þessara reikninga er
svo jafnað niður á búgreinarnar í hlutfalli við þau not,
sem hver þeirra hefir af þeim.
Nú skal farið nokkrum orðum um innstaeðu hverrar
búgreinar:
1. Fasteign. Til fasteignar telst jörðin sjálf, ásamt
varanlegum umbótum, svo sem nýrækt, girðingum, veg-
um o. s. frv. Ennfremur hús öll með vatnsleiðslum, raf-
stöðvum, þar sem þær eru o. fl. — Til fasteignar mætti
einnig telja við, járn, vír o. fl„ sem einkum er notað í
hennar þágu, nema það sé keypt í öðrum tilgangi.
2. Verkfæri. 011 verkfæri, er heyra til sjálfum bús-
rekstrinum eru talin í þessum flokki, t. d. jarðvinnslu-
áhöld (plógar, herfi o. fl.), ávinnsluáhöld (slóðar o. fl.),
heyvinnutæki (vélar, orf, hrífur o. fl.), flutningatæki (kerrur,
sleðar o. fl.), ýms handverkfæri (skóflur, gafflar, heynálar
o. fl.) o. s. frv. Innanhúsáhöld þau, er heyra til mat-
reiðslu, mætti í rauninni einnig telja hér, en það er ekki
gert (sjá eftirfarandi).
3. Matreiðsla. Aðal-innstæða hennar eru ýmiskonar
áhöld, svo sem allskonar ílát, borðbúnaður, eldhúsáhöld
o. fl. Einnig forði, einkum ýmiskonar matvara.
4. Húsgögn. Undir þennan flokk telst það af innan-
stokksmunum, sem ekki er látið heyra undir matreiðslu,
svo sem rúm og rúmfatnaður, borð, stólar, skápar, klukkur
o. m. fl. Raunar mætti einnig færa húsgögn hjá eiganda
og láta búgreinarnar borga honum leigu eftir þau. Rétt-
ara þykir þó hér að hafa þau á sérstökum reikningi,
en þeir, sem telja það óþarft, geta notað þá dálka til
annars.
5. Eigandi. Ef honum eru ekki talin nein húsgögn,'
verður lítið til að færa á hans eignalista. Helzt mætti
nefna fatnað. Einnig mætti telja honum einstaka muni,
sem hann eða fjölskylda hans notar alveg sérstaklega,
og er það þá á valdi hvers og eins hvort einstakir
munir eru skrifaðir hjá honum eða húsgögnum, enda