Búnaðarrit - 01.01.1933, Page 297
B Ú N A Ð A R R I T
287
sem ofgreiddar hafa verið, samkvæmt athugasemd
undir tölulið 8 um reikningana 1931.
6. Stjórninni er það ljóst, að gjöld félagsins vegna
hestaleigu eru mikil, og hefir haft umræður um
það mál, án þess þó að ráðstafanir hafi verið gerðar
til lækkunar á þessum gjöldum síðan 1927, er leigu-
taxtinn var lækkaður úr 5 í 4 kr. á dag. Þess vegna
er og stjórnin fús til að taka það enn til athugunar,
hvort ekki mætti draga úr þessum gjöldum, annað-
hvort með frekari lækkan taxtans, eða með gagn-
gerðri fyrirkomulagsbreytingu, og telur viðeigandi
að Búnaðarþingið láti í ljósi álit sitt um þetta.
Einnig er stjórnin reiðubúin að taka til athugunar
fæðissölu-taxta fyrir verkafólk á Sámsstöðum.
7. Sömuleiðis getur stjórnin viðurkennt, að bílakostn-
aður sé tilfinnanlega mikill. Mestur er hann vegna
ferðalaga Sigurðar búnaðarmálastjóra, og þar sem
það virðist liggja í athugasemdinni, að eitthvað kunni
að vera óþarft í bílakostnaðinum, þá er þess að vænta,
að hin «kritiska« endurskoðun bendi á dæmi því til
stuðnings eða sönnunar, svo að réttum hlutaðeigend-
um gefist þá kostur á, að gera grein fyrir þeim
ferðakostnaði, er óþarfur kann að vera talinn.
Til hægðarauka um mat á ferðakostnaði starfs-
manna félagsins, þeim er nokkuð kveður að, fylgir
með svörum þessum sundurliðuð skrá yfir ferða-
kostnaðinn eins og hann hefir verið tvö síðustu árin.
Þó er þar sleppt símakostnaði og öðrum smávægi-
legum kostnaðarliðum í sambandi við ferðalögin, og
ber skránni þess vegna ekki alveg saman við
reikningana.
8. Stjórnin hefir oft tekið til athugunar, hvort ekki væri
ávinningur, þ. e. sparnaður, að því, að setja miðstöðvar-
hitun í húsið, en hefir þó ekki getað sannfærst um
að svo mundi verða, og er þó ljóst, að upphitun og
viðhald eldfæra kostar mikið fé. Einkum hefir við-