Morgunn - 01.12.1923, Síða 83
MORGUNN
20Í)
verk, aC raka erindi Jesú Krists hér á jörðinni innan vé-
banda kirkjunnar, skuli telja þetta mál auvirðulegt kjal.
Eg er í engum vafa um, að þessi vissa, þekking ogreynsla
verður áhrifameiri fyrir leitandi mannssálirnir en þetta hjal
sumra prestanna um lífið í Guði, sem fer áreiðanlega fyrir
ofan garð1 og neðan hjá miklum fjölda manna, og stendur
jafnvel sem ráðgáta og dulrún fyrir hugskotsaugum prest-
anna. sjálfra, sem eru að tala um þetta í hálftómum kirkjun-
um, sunnudag eftir sunnudag. Enginn skilji orð mín SVO, sem
eg vilji gera lítið úr trúartilfinningu nokkurs manns; eg er
þvert á móti sannfærður um, að vissan um lífssamhand við
Jesú, við Guð, er dýrmætasta eign hvers manns. En eftir því
sem eg hefi kynst fleiri mönnum hef eg sannfærst betur og
betur um, að mjög fáum hefir hlotnast slík trúarreynsla. Og
mér finst alt tal um efni, sem fer fyrir ofan garð og neðan
hjá tilheyrendunum og stendur jafnvel óljóst fyrir ræðu-
manninum, sé einhver átakanlegur blindingaleikur. Stundum
finst mér þelckingarhrokinn vera nokkuð sjálfbirgingslegur,
én allra sjálfbirgingslegastur, þegar hann fullyrðir mikið um,
hvaða leiðir gæzkuríkur faðir vor á himnum notar til að
hjálpa veikum og ófullkomnum börnum sínum, sem leita
hans í einlægni og sannleika.
Mér var áður bent á, og sumir vina minna munu ef til
vill gjöra það enn, að spurningin mín: „Hvert fórstu?“
sé óþörf. Þeim hepnaðist ekki að sannfæra mig með rökum
sínum þá; þeim liefir ckki hepnast það enn. Eg lieyrði prest
einusinni flytja líkræðu. Hann byrjaði með því að tala um
eorgina og söknuðinn, sem nú ríkti á heimili hins látna. Því
næst talaði hann um, að nú væri hinn framliðni orðinn heil-
agur >og laus við ulla synd og stæði nú; með pá'lmann í hönd-
nm frammi fyrir hásæti Drottins og syngi Drotni lof með
herskörum hinna útvöldu. Þegar fram í ræðuna kom, hafði
presturinn auðsjáanlega gleymt þessu, og var nú kominn að
þeirri niðurstöðu, að hinn framliðni svæfi hinn síðasta blund
og biði þess, að lúðurhljómurinn kallaði hann fram fyrir há-
14