Morgunn


Morgunn - 01.12.1932, Page 23

Morgunn - 01.12.1932, Page 23
MORGUNN 149 að þau eru áreiðanleg ummæli Jesú um „myrkrið fyrir ut- an“, en jafn-víst er hitt, að strax þegar sú ósk vaknar í brjósti hins vansæla, að hann vill verða betri maður, eru englar Guðs, herskarar himnanna, fúsir til þess að stíga niður í vansælustaðinn og líkna þar; náð Guðs er þar boðin fram eins og hér, en þar eins og hér er hverj- um manni í sjálfsvald se.tt, hvort hann hafnar henni eða þiggur. Á þessum stöðum er Drottinn Kristur einnig ná- lægur, eða segir n. tm. oss ekki, að hann hafi stigið nið- urtil Heljar, til að líkna öndunum í varðhaldi? „Fögnuð- ur himnaríkis er í því fólginn að tæma Helvíti". Tími minn er mjög takmarkaður, mig langar til að segja yður miklu fleira, en eg verð að láta mér nægja að flytja yður tvær frásagnir, sem eg tel áreiðanlegar. Önn- ur er um andlát góðs manns, en hin um það, þegar ung- um manni, ný-látnum, var leyft að sjá Krist. Hina fyrri tek eg úr einu af ritum Sundar Singhs: sjáandinn er sokkinn niður í djúpt bænarástand og einn af englum Guðs segir honum frá andláti trúaðs manns á þessa leið: Nokkrum mínútum áður en dauðinn kom, opnaði Guð augu hins deyjandi manns, svo að áður en hann kvaddi líkam- ann, gat hann séð inn í andlega heiminn og sagt þeim, sem stóðu við dánarbeðinn, hvað hann sá. Hann sá himnana opnast og englaskara koma á móti sér, og hann sá Drott- in Krist standa með útbreiddan faðm. En við þessa sýn rak hann upp fagnaðaróp, svo að þeir, sem stóðu í kring um dánarbeðinn hrukku við, en hann sagði: „Ó, þú sæla gleðinnar stund! Lengi hefi eg þráð að sjá frelsara minn og meistara og fá að koma til hans. Ó, vinir mínir, sjáið ásjónu hans, hve hún ljómar af kærleika og sjáið engla- skarann, sem kominn er til að sækja mig. Ó, hve himin- inn er dásamlegur! Vinir mínir, nú fer eg til míns sanna heimkynnis, syrgið ekki, gleð.iist". Og þegar einn af þeim, sem viðstaddir voru dánarbeðinn, sagði: „hann talar í óráði“, þá svaraði hinn deyjandi maður rólega: „nei, það geri eg ekki, eg vildi aðeins óska, að þið sæuð þessa ynd-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.