Búfræðingurinn - 01.01.1951, Blaðsíða 54
52
BÚFRÆÐINGURINN
Þessi félög hafa, enn sem komið er, ekki starfað það lengi, að veru-
legs árangurs sé að vænta af kynbótastarfi þeirra.
í nýútkominni starfsskýrslu Halldórs Pálssonar, ráðunautar í sauð-
fjárrækt, fyrir árin 1947 og 1948 farast honum orð á þessa leið:
„Sauðfjárræktarfélögin eru öflugasta tæki bænda til þess að kynbæta
sauðfé sitt. Þeiin þarf að fjölga, en engin ástæða er til þess, að hver
maður eigi margar ær til þess að byrja með í félaginu. Það er mest
áríðandi, að merking lambanna, ættartölubækurnar og skýrsluhaldið
yfirleitt lendi ekki í handaskolum fyrstu árin, svo að félagsmenn gefist
ekki upp við þessa starfsemi. En þeim, sem hafa vanið sig á slíka sjálf-
sagða reglusemi að halda ærbækur, merkja lömbin á vorin og vega féð
á haustin, vex á engan hátt í augum fyrirhöfn við fjárræktarfélags-
starfið.“
IX.
A þessari öld hafa allmargir bændur starfrækt lengur eða skemur
(flestir aðeins skamma stund) sauðfjárrœktarbú, sem hlotið hafa við-
urkenningu Búnaðarfélags íslands og notið styrks frá ríkinu.
í 28. árg. Búnaðarritsins 1914 er grein eftir Sigurð Sigurðsson
ráðunaut, sem hann nefnir Sauðfjárkynbótabúin. Hann segir slík bú
vera 9 starfandi hér á landi við árslok 1913. Tilgangur þessara kyn-
bótabúa, segir Sigurður, að sé sá að ala upp hrúta handa bændum og
öðrum fjáreigendum til undaneldis og kynbóta og sömuleiðis gimbrar
eftir því, sem við verður komið.
Þessi 9 sauðfjárræktarbú, sem starfandi voru 1913, eru nú öll að
undanteknu einu fyrir löngu hætt störfum sem slík bú. Þau voru á
eftirtöldum stöðum: 1. bú Fjárræktarfélags Suður-Þingeyinga, stofn-
að 1898; 2. á Breiðabólsstað í Reykholtsdal i Borgarfirði, stofnað
1903; 3. í Eyhildarholti í Skagafirði, stofnað á Nautabúi í Lýtings-
staðahreppi 1905; 4. á Grímsstöðum í Mýrasýslu, stofnað 1908; 5. á
Auðunarstöðum í Víðidal í V.-Húnavatnssýslu, stofnað 1903; 6. á
Leifsstöðum í Eyjafirði, stofnað 1910; 7. á Sveinsstöðum og Haga í
Þingi í A.-Húnavatnssýslu, stofnað 1911; 8. á Ytra-Lóni í N.-Þing-
eyjarsýslu, stofnað 1911; 9. á Rangá á Fljótsdalshéraði í N.-Múlasýslu,
stofnað 1913, og er það eina búið, sem starfandi er enn þá, af þeim,
sem nú voru talin. Auk þessara getur Sigurður Sigurðsson í áður-
nefndri grein þriggja sauðfjárkynbótabúa, sem komið var á fót, en