Búfræðingurinn - 01.01.1951, Blaðsíða 69
Um frjósemi nautgripa og fleira
Eftir Ólaf Stefánsson, ráSunaut
Hér á landi sem annars staðar eiga bændur oft erfitt með að halda
réttum tíma á kúnum. Ástæðurnar fyrir slíkum vanhöldum geta verið
margs konar, m. a. ófrjósemi. Tiltölulega sjaldan er ófrjósemin algjör,
heldur er oft um tímabundna ófrjósemi að ræða. Er því yfirleitt réttara
að ræða um frjósemi á lágu stigi en ófrjósemi, þegar um þessa hluti er
fjallað. Tegundir ófrjósemi eða frjósemi á lágu stigi eru ýmsar og
ólíkar að eðli. Víða erlendis eru kynsjúkdómar algengir í nautgripum
og valda stórtjóni árlega. Nægir í því sambandi að nefna Bangsveiki,
sem bakterían Brucella abortus veldur, og trichomoniasis, sem frum-
dýrið Trichomonas foetus orsakar. Báðir þessir sjúkdómar geta valdið
fósturláti í kúm. íslenzkir bændur eiga því láni að fagna að vera lausir
við tjón, sem þessir sjúkdómar valda.
Vankunnátta við fóðrun nautgripa getur valdið ófrjósemi um langan
eða skamman tíma. Nauðsynlegt er, að ung naut séu vel alin, en
gömul naut ekki offóðruð. Illa fóðruð og mikið notuð, ung naut verða
stundum ófrjó, og ofalin, gömul naut geta einnig orðið ófrjó. í van-
fóðruðum gripum geta kynfærin hætt að starfa. Hið sama á sér stað,
ef óeðlilega mikil fita safnast saman kringum eggjakerfin eða eistun,
þannig að fullþroska egg og frjósellur hætta að myndast. Einnig
getur ófrjóserai átt rót sína að rekja til röskunar á jafnvægi milli starf-
semi þeirra líffæra innbyrðis, sem þátt taka í æxluninni. Rannsóknir
a hinum síðastnefndu, lífeðlisfræðilegu orsökum fyrir ófrjósemi hafa
mJ ög aukið skilning manna á gildi hotmónastarfsemi líkamans fyrir
viðhald tegundarinnar. Meðan skepnurnar eru að vaxa, virðist svo, að
kynfærin fái ekki nóga næringu eða kemisk efni til þess að geta fram-
leitt fullþroska egg eða frjósellur. Það er nú vitað, að heiladingullinn
leggur fram mikilvægan hluta af þessum efnum. Heiladingullinn fram-
leiðir einnig nokkur mikilvæg hormón, sem síast út í blóðið. Eitt þeirra
hefur áhrif á vöxt, önnur hafa áhrif á eistun og eggjakerfin og stjórna