Saga


Saga - 1964, Side 175

Saga - 1964, Side 175
RITFREGNIR 167 Prófessor Turville-Petre í Oxford hefur síðan 1934 skrifað margt tímaritsgreina um norræn efni forn og tvær ágætar bækur um nor- rænar bókmenntir og norræna sögu þeirra alda. Hann reit 1935 grein- ina The cult of Freyr in the evening of Paganism (Leeds Philosoph. Soc.: Proceedings) og birti 1958 grein Um Óðinsdýrkun á íslandi i Studia islandica 17. Hin nýja bók hans, útkomin meðan þetta Sögu- hefti var í prentun, er svo vel samin og skrifuð, að maður les 300 bls. hennar í spretti og er höfundi þakklátur. Skort hefur hingað til góða yfirlitsbók á ensku um norræna goða- trú. Það, að Turville-Petre er ekki sérhæfður við trúarbragðasöguna eina, er einn af þeim kostum, sem gerðu hann öðrum mönnum færari til verksins. Heimildir Eddu og Ynglingasögu eru vel notaðar. Kenningar fræði- manna eru metnar og vegnar með hógværri einbeitni og skarpleik. Hið nýja í skýringum og aukinni áherzlu á trúarlífseinkennin varðar e. t. v. meir mannfélag en guðdóm þann, sem dýrkaður var á stað hverjum og stundu. Prófessorinn (sem telur „folkvig fyrst í heimi" vera part af eldfornu sköpunarsögunni) smeygir sér t. d. undan því að dæma um hvort sögn Völuspár og Snorra um „Vanastríðið" sé frumarísk, en segir, að hvort sem heldur sé, muni goðastriðs- og goð- sáttasögur norrænna manna, Ira, Rómverja og Indverja þjóna ein- um tilgangi; sögnin um sætt eftir Vanastríð skýri sáttavilja stétta, sem vilja mynda þjóðfélag saman, þótt þær og goð þeirra eigi sér eins óskyld metnaðarmál og bændur og kaupmenn hafa annars vegar vanir), en hermenn og konungar (= æsir) hins vegar. Snjöll eru rök höf. fyrir því, að i Völuspá sé seiðkonan Gullveig sama og Freyja, send af vönum til að spilla ásum. Olli hún þeim geig svo miklum, að þeir hófu „Vanastriðið" — og urðu undir. — Enn einu sinni kemst Völuspá í brennidepil skilnings vors á ásatrúnni. En svo ungir munu flestir þeir hlutir, sem Völuspárskáld segir umfram eldri höfunda, að þessi uppgötvun T.-P. styður óbeint skoðun Ólafs ■Sriems, að „Vanastríðið" i varðveittri mynd sinni sé tæplega gamalt með Germönum. Höf. Htur jafnan í fullri vinsemd á hinn mikla fjölda eldri tilgátna, sem skýra ýmislegt i ásatrúarheimildum með kristnum áhrifum. En hann er á verði gegn ímyndunum manna um það, að slíkt hafi getað leitt til e. k. landnáms kristninnar innan lífsskoðunar, sem enn var heiðin. Því aðeins tileinkuðu heiðnir menn sér kristnu hugmyndirnar, að þeir fyndu þær vera eðlisskyldar guðdómi nokkrum, sem fyrir var i ásatrú, þ. e. að guðdómur sá ætti innra með sér segulafl á þær eS drægi þær til sín (dæmi má taka í heiðnibreytingum Völuspár). ðinn varð jafnlítið tengdur Kristi, þótt menn sæju báða saman upp lengda til fórnardauða. Sannfærandi rök færir Turville-Petre fyrir því, að dauði Óðins á Sálganum, Yggdrasli, hefur ekki verið skilinn sem sýndardauði, held- 1,r fullger dauði og för til helheima; hann steig niður til heljar, reis a uiunda degi upp frá dauðum, gerðist háloftaguð og galdursfaðir,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.