Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1917, Page 40
XXXVIII
Um uppkomu og undirgöngu tunglsins er almennt þetta
að segja: Kringum þann dag, er við stendur í 4. dálki
hvers mánaðar „tungl lægst á lopti", er tunglið, þegar það
er í hádegisstað, nálega í sjálfum sjóndeildarhringnum.
Kringum þann dag, er við stendur „tungl hæst á lopti“,
er tunglið, þegar það er í hádegisstað, hér um bil 51
stig fyrir ofan sjóndeildarhringinn. Viku á undan og viku
á eptir þessum dögum er tunglið hér um bil 26 stig fyrir
ofan sjóndeildarhringinn, þegar það er í hádegisstað, kemur
upp í austri 6 stundum áður og gengur undir í vestri 6
stundurn síðar.
í árslok 1915 voru 807 smdplánetur kunnar.
Árið 1915 sáust 5 halastjörnur. Ein af þeim var hala-
stjarna Winneckes og önnur var Tempel II. Á skránni
yfir halastjörnur, sem hafa sést optar en einu sinni, voru
í almanakinu 1912 19 númer. Síðan hafa 3 númer bæzt
við, sem sé halastjörnur Borrelly’s, Westphal’s og Gia-
cobini’s, og er umferðartími þeirra kringum sólina 7, 61
og 61/* ár.
Næsta ár, 1918, ber páskana upp á 31. marz.