Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1917, Page 139
Kvennréttindi.
Kvennréttindakona nokkur kom til frægs rithöf-
unds og bað hann að skrifa fyrir sig grein um rétt-
indi kvenna. Hann tók þvi dauftega og lofaði engu,
en sendi þó næsta dag svolátandi grein:
Fyrir tvö þúsund árum voru hjón nýgift, en
maðurinn sagði við konu sina: Eg elska margar kon-
ur aðrar en þig, eg get ekki lifað án ásta«.
Konan svaraði: »Eg segi sama og þú, eg get ekki
lifað án ásta«.
Maðurinn: »Ef þú segir þetta oftar, þá tek eg
barefli og dreþ þig«.
Konan varð dauðhrædd og þorði ekkert að segja.
Svo liðu fimmtán hundruð ár.
Pá sagði maður við konu sína: »Eg elska margar
aðrar konur en þig, eg get ekki lifað án ásta«.
Konan: »Eg segi sama og þú, eg get ekki lifað
án ásta«.
Maðurinn: »Ef þú segir þetta oftar þá ber eg þig
og skil við þig, þá færðu að reyna hve létt það er
að vinna fyrir daglegu brauði þínu, það kantu ekki«.
Konan: aFyrirgefðu mér húsbóndi minn og herra
ég talaði óhugsað og meinti ekki það sem eg sagði«.
Aftur iiðu fimm hundruð ár.
Þá sagði maður við konu sína: »Eg elska margar
konur aðrar en þig, eg get ekki lifað án ásta«.
Konan: »Þú um það, eg er ekkert uþp á .það
komin að vera hjá þér, og ef þú elskar aðrar konur
meira en mig, og álítur mig ómaga þinn, þá fer eg
burt héðan strax í kvöld«.
Maðurinn: sÞað var ekki mín meining, að þú
tækir svo óstint orð mín, sem sögð voru í gamni«.
(85)