Andvari - 01.01.2011, Qupperneq 14
12
GUÐJÓN FRIÐRIKSSON
ANDVARI
/
Jón Sigurðsson fæddist 17. júní 1811. Faðir hans, séra Sigurður Jónsson á
Hrafnseyri, var einn af hinum dugmiklu Arnfirðingum. Þó að hann væri
prestur var hann jafnframt erfiðismaður við búskap og sjósókn og var sjálfur
formaður fyrir áhöfn Hrafnseyrarskipsins sem gert var út frá ystu nesjum við
Arnarfjörð. Sagnir herma að hann hafi verið við útróðra frá Svalvogahamri
þegar Jón litli fæddist. Móðir Jóns var Þórdís Jónsdóttir. Hún var alin upp á
Söndum í Dýrafirði og sögð allvel lærð ekki síður en bóndi hennar. Þau höfðu
verið í barnlausu hjónabandi í átta ár þegar frumburðurinn, Jón Sigurðsson,
fæddist. Hann var því langþráð barn, sannkallað óskabarn. Síðan eignuðust
þau tvö börn til viðbótar, Jens sem fæddur var 1813, síðar rektor í Reykjavík,
og Margréti, fædda 1816, síðar húsfreyju á Steinanesi í Arnarfirði.
Prestshjónin, séra Sigurður og Þórdís, voru bæði af fyrirfólki komin, prests-
börn, og í ættum þeirra voru ýmsir þekktir málafylgjumenn og lærdómsmenn.
Afi Jóns og alnafni, séra Jón Sigurðsson á Hrafnseyri, sem hann ólst upp með,
var kunnur af að láta ekki hlut sinn fyrir nokkrum manni en langalangafi Jóns
í móðurætt var Mála-Snæbjörn Pálsson bóndi á Sæbóli á Ingjaldssandi sem
nafnkunnur var fyrir málaferli við ýmsa stórbokka.
Ömmubróðir Jóns í föðurætt var Jón Ólafsson varalögmaður sem lært
hafði við Hafnarháskóla. Hann notaði tækifærið á hinu stutta valdaskeiði
Struense greifa, þegar ritskoðun var aflétt í ríkjum Danakonungs, til að skrifa
tvo bæklinga sem gefnir voru út í Kaupmannahöfn árið 1771. Þar lagði hann
til að einokunarverslunin yrði afnumin og setti fram þrjár mismunandi til-
lögur um útfærslu nýs fyrirkomulags á versluninni. Sú fyrsta gekk út á að
íslandsverslunin yrði einungis gefin frjáls þegnum Danakonungs, sem varð
svo að veruleika 15 árum síðar, önnur að allar evrópskar þjóðir fengju rétt
til að versla á íslandi en yrðu þó að geiða toll til konungs. Sú þriðja gekk út
á að íslendingar sjálfir tækju verslunina í sínar hendur og fengju rétt til að
versla frjálst við hvaða þjóð sem væri. Eitt helsta kappsmál Jóns Sigurðssonar,
þegar fram liðu tímar, var frjáls verslun og er ekki að efa að hann hefur verið
meðvitaður um þátt ömmubróður síns, Jóns Ólafssonar, í tillögum um nýtt
verslunarfyrirkomulag.
Fáum sögum fer af uppeldi Jóns Sigurðssonar. Honum hefur sjálfsagt verið
haldið ungum til bókar en börn voru einnig látin vinna strax og þau höfðu
aldur til. Vitað er að hann reri um fermingaraldur eina vetrarvertíð á skipi
föður síns frá verstöðinni í Verdölum. Fékk hann því framgengt með barns-
legu harðfylgi að fá að róa sem fullgildur háseti en ekki hálfdrættingur og
lýsir það skapgerð hans; metnaði og kappgirni. Jón Sigurðsson var fermdur
9. apríl 1825 og fékk umsögnina „vel læs, kunnandi og frómlyndur". Prestur
nokkur minntist Jóns 12 ára sem „gæfs og gáfulegs pilts“. Hann var bók-