Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2011, Side 20

Andvari - 01.01.2011, Side 20
18 GUÐJÓN FRIÐRIKSSON ANDVARI eru farnir að koma upp eins og gorkúlur undan hestataðinu í Skagafirði.“ Hann var að búa menn undir að taka þátt í Alþingi með fullum sóma. Hinar nýju þýskættuðu kenningar um þjóðríki voru andstæðar veldi Dana og verkuðu sundrandi á það. Um 40 prósent þegna Danakonungs, sem flestir bjuggu í hertogadæmunum Slésvík og Holtsetalandi, töluðu þýsku. Auk dönsku og þýsku var einnig töluð íslenska, færeyska og fleiri tungumál innan vébanda ríkisins. Fram að þessu höfðu ríki yfirleitt byggst á gömlu lénsfyrir- komulagi sem lítið tillit tók til þjóðernis. Nú var farið að skilgreina þjóðir út frá sameiginlegum menningararfi, náttúruskilyrðum og tungumáli og því haldið fram að hver þjóð hefði náttúrulegan rétt til sjálfstjórnar, líkt og Jón barðist nú fyrir. Undanfari og hvati hinnar íslensku baráttu fyrir sjálfstjórn var því ekki síst uppreisn þýskumælandi manna í dönsku hertogadæmunum. Þeir kröfðust sjálfstjórnar eða jafnvel sameiningar við önnur þýsk ríki. Barátta hinna þýskumælandi íbúa í Danmörku var nefnd slésvík-holsteinismi. Stundum voru Jón Sigurðsson og aðrir íslenskir þjóðfrelsismenn kallaðir slésvík-hol- steinistar í dönskum blöðum og var það notað sem skammaryrði um þá. Lauslegt þýskt ríkjasamband hafði verið stofnað árið 1815 í kjölfar Napóleonsstyrjalda og í tengslum við friðarsamningana í Vín. Varð Dana- konungur þá að gangast inn á það sem hertogi Holtsetalands, sem var aðili að sambandinu, að stofna þar þing og veita hertogadæminu sérstaka stjórnarskrá. Hann hummaði þetta þó fram af sér en eftir júlíbyltinguna 1830 varð ekki undankomu auðið. Með konungstilskipun 1831 var ákveðið að stofna til svo- kallaðra stéttaþinga í Danmörku, fjögurra talsins, sem áttu að vera ráðgefandi fyrir konung en ekki löggjafarþing. Þegar úrskurður konungs var kunngerður lét íslenskur námsmaður í Kaupmannahöfn; Baldvin Einarsson að nafni, þá skoðun í ljós að réttast væri að ísland fengi sitt eigið þing með því að endurreisa Alþingi í stað þess að vera aðili að einhverju stéttaþinganna. Ekki var fallist á þetta en í stað þess fengu íslendingar tvo fulltrúa á stéttaþing Eydana sem konungur tilnefndi sjálfur. Með málflutningi Baldvins Einarssonar hófst barátta fyrir endurreisn Alþingis sem margir íslendingar urðu til að taka undir. Loks ákvað nýr konungur, Kristján VIII, að fela svokallaðri embættismannanefnd að íhuga stofnun ráðgjafarþings á íslandi vorið 1840. Á fundi hennar 1841 lagði hún til að slíkt þing yrði stofnað og yrði það kallað Alþingi. Meirihluti nefndarmanna vildi hafa það í Reykjavík en minnihlutinn á Þingvöllum. Sköpuðust iniklar deilur um þetta og fyrirkomulag þingsins. En niðurstöður nefndarinnar urðu til þess að konungur gaf út tilskipun þann 8. mars 1843 um endurreisn Alþingis í Reykjavík. N
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.