Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2011, Side 21

Andvari - 01.01.2011, Side 21
andvari JÓN SIGURÐSSON 1811-2011 19 V Jón Sigurðsson var orðinn þekktur um allt ísland fyrir skrif sín í Nýfélagsrit og önnur blöð. Fyrstu þingkosningarnar áttu að fara fram 1844 og tók Jón að huga að þingsæti fyrir sjálfan sig. Grundvöllur þess að hann gæti boðið sig fram var að hann átti jarðarpart í Gljúfurá í Arnarfirði, sem byggðist á gjöf frá afa hans á sínum tíma, en kjörgengi var háð eign. Ákvað hann að bjóða sig fram fyrir ísafjarðarsýslu þó að hann hefði ekki komið vestur síðan hann var 18 ára gamall og hefði engin tök á koma sjálfur heim fyrir kosningarnar. En hann átti öfluga stuðningsmenn vestra. Drýgstur mun hafa verið Ólafur E. Johnsen á Stað í Reykhólasveit, náfrændi Jóns og bróðir Ingibjargar. Hann ferðaðist um ísafjarðarsýslu og rak áróður fyrir kjöri Jóns. Tveir menn vestra sem höfðu hrifist af skrifum Jóns en aldrei hitt hann voru einnig öflugir áróð- ursmenn fyrir hann. Þetta voru þeir Magnús Einarsson á Hvilft í Önundar- firði og Gísli ívarsson verslunarþjónn á ísafirði. í bréfi 1842 ávarpaði Gísli Jón með orðunum „dýrmæti landi og föðurlandselskari" og sýnir það vonirnar sem bundnar voru við þennan unga mann í Kaupmannahöfn. Kjörfundur var haldinn í kirkjunni á ísafirði 13. apríl 1844 og þar var Jón kjörinn þingmaður Isfirðinga með 50 af 52 greiddum atkvæðum. Þingsætinu átti hann eftir að halda til æviloka. Hið fyrsta endurreista Alþingi, sem háð var á sal Lærða skólans í Reykjavík sumarið 1845, fór að mestu vel fram og með hófsömum hætti. Jón Sigurðsson tók þar afgerandi forystu meðal almennra þingmanna en skoðanir hans voru þá fullmótaðar í flestum höfuðmálum að því er varðaði ísland. Hann var kosinn í fjölmargar nefndir og var framsögumaður þeirra margra. Það voru helst hinir konungkjörnu þingmenn, flestir embættismenn af gamla skólanum, sem höfðu horn í síðu hans. Áður en þingstörf hófust fór Jón í kjördæmi sitt í ísafjarðarsýslu og hélt þar fundi með kjósendum sínum og eftir að þingi lauk sendi hann bréf vestur um störf þingsins og álit sitt á þeim. Hann var þannig að móta ný vinnubrögð sem síðar áttu eftir að einkenna störf og skyldur þingmanna í kjördæmum sínum. Meðan hann var í Reykjavík lá til hans stöðugur straumur manna, bæði þing- manna og annarra sem koma sumir langt að til að fá að hitta þennan mann eða ná tali af honum. Einn þingmanna skrifaði ári seinna og sagði að sér hefði blöskrað sá átroðningur „nótt og nýtan dag“ sem Jón hefði orðið fyrir uf öllum meðan á þinginu stóð. Jón Sigurðsson var stjarna þingsins og þegar orðinn átrúnaðargoð Islendinga. Bóndi norður í landi skrifaði 1846: „Allir held ég nú þekki nafn Jóns Sigurðssonar. Hann er af öllum almúga lofaður...“ Það sem helst tók tíma hins fyrsta endurreista Alþingis var baráttan fyrir því að það væri háð fyrir opnum tjöldum, rýmkun kosningaréttar og kjör- gengis, að íslendingar fengju að versla frjálst við allar þjóðir og frumvarp
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.