Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.01.2011, Qupperneq 67

Andvari - 01.01.2011, Qupperneq 67
andvari JÓN SIGURÐSSON OG VESTFIRÐINGAR 65 eigið ráðgefandi þing.2 Þar setti hann fram þá skoðun að þingið ætti að vera í Reykjavík, en ekki á Þingvöllum, líkt og flestir höfðu lagt til fram að því. Þetta sýnir að strax í upphafi stjórnmálaferils síns var hann tilbúinn að berjast fyrir skoðun sinni, þó hann vissi að margir, jafnvel meirihluti landsmanna, væru henni ósammála. Hann ígrundaði vel hvert mál og rökstuddi skoð- anir sínar vandlega (og oft í löngu máli) í Félagsritunum. í öðrum og þriðja árgangi Nýrra félagsrita kom enn ritgerð um Alþingi, en einnig um skólamál á Islandi og verslunarhætti. Með skrifum sínum í Ný félagsrit og greinaskrifum í dönsk blöð ávann Jón Sigurðsson sér stöðu sem helsti málsvari þjóðarinnar í samskiptum við dönsk yfirvöld. Þegar konungurinn, sem enn var einvalds- konungur, gaf út tilskipun um að stofnað skyldi ráðgefandi þing í Reykjavík og að fulltrúar skyldu kosnir úr öllum sýslum landsins í almennum kosn- ingum, var ekki að spyrja að margir litu til Jóns um að taka þar sæti. Fyrstu kosningar til Alþingis fóru fram vorið 1844. Hver sýsla landsins kaus einn fulltrúa og Reykjavík einnig, alls 20 þingmenn. Lúðvík Kristjáns- son segir í riti sínu um Vestlendinga að Páll Melsteð, fyrrum herbergis- félagi Jóns í Kaupmannahöfn, hafi fyrstur nefnt að hann gerðist þingmaður. Sumarið 1842 skrifar hann Jóni og óskar þess að hann væri orðinn kennari við Latínuskólann „og kæmist svo að þingmannaborðinu.“3 Aldrei varð Jón kennari á íslandi, en hitt gekk eftir. Ári síðar segir Jón frá því í bréfi til Páls að hann hafi látið setja sig á kjörskrá í Vesturamtinu til að vera kandídat í Isafjarðarsýslu, því þar eigi hann jörð. „Nú kemur upp á ísfirðinga, hvað þeir sýgja, en þeir verða líklega svo hyggnir að vara sig á mér og velja mig ekki. Ég verð þá (auðvitað) snögglega reiður og þykist þeim of góður.‘4 Jón þurfti ekki að vera með nein látalæti varðandi viðtökur ísfirðinga, þó hann hafi viljað hafa varann á. Hann vissi að tveir menn höfðu þá þegar byrjað að agitera fyrir honum vestra og orðið vel ágengt. Það voru þeir Magnús Einarsson útvegsbóndi á Hvilft í Önundarfirði og Ólafur E. Johnsen tilvonandi mágur Jóns, prestur á Stað á Reykjanesi. Ólafur tók sér ferð vestur I Önundarfjörð snemma sumars 1843 til að ræða við Magnús á Hvilft.5 Giska má á hvað þeim hefur farið á milli, því Magnús gerði í kjölfarið víðreist um sýsluna til að afla Jóni liðveislu. Þriðji maðurinn sem mest beitti sér fyrir Jón var Gísli ívarsson stúdent og verslunarþjónn á ísafirði. Hann sjálfur hafði ekki kosningarétt, því hann átti ekki jörð eða húseign og hafði ekki lokið embættisprófi. En hann var einn heitasti stuðningsmaður Jóns alla tíð og fullyrti í bréfi til hans í júlí 1843: „Það held ég allir menn vilji kjósa yður hér í sýslu.“6 Veturinn 1844 var orðið altalað að Jón yrði í framboði hjá Isfirðingum. Jörðin sem gerði Jóni kleift að vera í framboði, var Gljúfurá, fyrir innan Hrafnseyri í Auðkúluhreppi. Afi hans og nafni hafði ánafnað honum ungum hu hundruð í Auðkúlu og faðir hans síðar haft makaskipti á þeim jarðarhluta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.