Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2011, Side 69

Andvari - 01.01.2011, Side 69
andvari JÓN SIGURÐSSON OG VESTFIRÐINGAR 67 hvaða sýslu sem var árið 1844. Slíkt var orðspor hans, ef dæma má af bréfa- skriftum. ísfirðingar voru ekki duglegri en aðrir landsmenn að kaupa Ný félagsrit. f ritinu árin 1844 og 1845 eru birtar skrár yfir kaupendur ritsins og umboðsmenn. Þar kemur fram að 13 ísfirðingar fá send 32 eintök af ritinu. I Barðastrandarsýslu eru skráðir 27 einstaklingar og tvö lestrarfélög með 29 eintök og jafnmörg eintök eru keypt í Strandasýslu. Flest eintökin fara til Reykjavíkur og nágrennis og í Múlasýslur, rúmlega 70 í hvort hérað.i0 Samband Jóns við kjósendur í ísafjarðarsýslu var ekki byggt á persónu- legum kynnum þeirra af honum sjálfum. Hann sótti ekki Bessastaðaskóla, þar sem væntanlegir embættismenn landsins sátu á skólabekk og frændgarður hans var fámennur meðal kjósenda í ísafjarðarsýslu. Reyndar var það svo að aðeins einn bóndi úr Arnarfirði sótti kjörfundinn á ísafirði vorið 1844.11 Faðir hans og frændur fóru ekki til að kjósa. En til afsökunar má segja að þeir ættu torfærustu leiðina í kaupstaðinn (og hefur sorglega lítið breyst í þeim efnum síðustu 160 árin). Jón kom sjálfur ekki til íslands árið 1844 heldur sat úti í Kaupmannahöfn og skrifaði sendibréf og fékk bréf. Samband Jóns Sigurðssonar og Vestfirðinga byggði á skrifum hans og bréfaskiptum. Samgöngur á 19. öld voru með allt öðrum hætti en nú. Það er eftirtektar- vert, að samgöngur frá Bíldudal og ísafirði til Reykjavíkur voru oft á tíðum ekki meiri eða auðveldari en á milli Vestfjarða og Kaupmannahafnar. Versl- unarstaðirnir, Bíldudalur, Þingeyri, Flateyri og ísafjörður voru í beinu versl- unar- og siglingasambandi við Kaupmannahöfn, frekar en Reykjavík. í Kaup- mannahöfn sat þingmaðurinn Jón Sigurðsson og stýrði stjórnmálabaráttu landsmanna í gegnum bréfaskriftir, ekki bara til Isfirðinga og Vestfirðinga, heldur við bandamenn um allt land. Sendibréfin voru sími og tölvupóstur þeirra tíma. Gegnum bréfaskipti hélt Jón Sigurðsson lifandi sambandi við stuðningsmenn sína á Vestfjörðum. I því mikla bréfasafni Jóns Sigurðssonar sem varðveitt er, er að finna um eitt þúsund bréf frá mönnum í Vestfirðingafjórðungi, frá Borgarfirði til Hrútafjarðar, frá rúmlega 130 bréfriturum.12 Telja má víst að Jón hafi skrifað þessum sömu mönnum jafn mörg eða fleiri bréf á móti, en af þeim eru aðeins þekkt um þrír tugir bréfa. Segir það sína sögu um varðveislu sendibréfa frá þessum tíma. Af 130 bréfavinum Jóns af Vesturlandi og Vestfjörðum, var drjúgur hluti búsettur við Breiðafjörð, þar sem andleg vakning var mikil fyrir og um miðja ]9. öld. Nokkrir bréfritarar eru þekktir úr Strandasýslu og í kjördæmi Jóns í Isafjarðarsýslu er vitað um 47 menn sem skrifuðu Jóni. í þeim hópi eru bæði lærðir og leikir; sýslumenn, prestar og læknir, kaupmenn, verslunarmenn og útvegsbændur, bæði gildir og grannir. Þannig hélt þingmaðurinn Jón uppi sambandi við kjósendur sína og aðra, fékk fréttir úr héraði, lagði á pólitísk ráð, hvatti stuðningsmenn sína áfram og leitaði nýrra stuðningsmanna, gegn-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.