Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2011, Page 112

Andvari - 01.01.2011, Page 112
110 ÁGÚST ÞÓR ÁRNASON ANDVARI gera íslendingum ljósa nauðsyn þess að koma á innlendu fulltrúaþingi og hvernig slíkt þing starfaði. Auk þess vildi hann vekja athygli embættismanna- nefndarinnar á mikilvægum atriðum sem hafa bæri í huga þegar drög væru lögð að framtíðarskipan þjóðmála á íslandi. Jón rekur sögulegar forsendur fulltrúaþinga og ástæður fyrir því að rétt sé og nauðsynlegt að koma slíkri stofnun á fót með íslendingum. Nefnir Jón í því sambandi reynslu annarra þjóða, fjarlægð, ólíka staðhætti og þjóðareinkenni, tilhögun lands, stærð, strjálbýli og samgönguleysi, möguleika Dana til að vernda ísland, óskir lands- manna og vilja konungs sjálfs til að koma á fulltrúaþingum í Danaveldi.4 I greininni vekur Jón máls á „rétti Islendinga“ og kveður þar við nýjan tón í umræðunni um íslensk stjórnmál á 19. öld. Hann heldur því fram að þjóðin verði að framfylgja rétti sínum „því hver þjóð hefir að vísu sína ákvörðun einsog hverr einstakur maður, og það er engri annarri þjóð ætlað að setja hana eptir sinni vild“.5 Jón átti seinna eftir að færa frekari rök fyrir þessari skoðun sinni. Þótt Jón hafi ekki orðið fyrstur til að kalla eftir fulltrúaþingi á íslandi gerði hann sér manna best grein fyrir nauðsyn þess og mikilvægi að koma slíkri stofnun á fót. Það var staðföst sannfæring hans að á eftir þinginu kæmi framkvæmdavaldið svo að segja sjálfkrafa til landsins. Það vekur athygli hve vel Jón er að sér um þær stjórnskipunarhugmyndir sem efstar voru á baugi á seinni hluta 18. aldar og fyrri hluta 19. aldar. Hann lýsir stjórnskipan samtímans með vísan til fortíðar og bendir á að þau lýðstjórnarríki sem komist hafi á legg á þessu tímabili hafi ekki öll sama stjórnarhátt „en aðal-hugmynd þeirra [sé] sú hin sama sem lýst [hafi] sér í stjórn enna fornu Íslendínga og náttúrlegust er, að þjóðin sjálf á höfuðvaldið, og enginn á með að skera úr málefnum þeim, sem allri þjóðinni viðkoma, nema samkvæmt vilja flestra meðal þjóðarinnar".6 Eins og íslendingar hafi kosið sér lögsögumann telur Jón nauðsynlegt að fela einstaklingi að fram- kvæma vilja þjóðarinnar (framkvæmdavaldið) um skemmri eða lengri tíma og sé sá skyldugur til að „gjöra þjóðinni grein á aðgjörðum sínum.“ Jón bætir því við að þótt hann hafi „sagt að þjóðviljinn [sé] efstur" þá megi aug- ljóst vera að ekki séu „allir þess umkomnir, hvorki fyrir skynsemis sakir né aldurs, að þeir geti lagt þvílíkan úrskurð á sérhvert mál sem þjóðvilji mætti heita, enda verður bágt að koma því við þar sem land er mikið, og mart fólk til ráðagjörðar, en mál þarf skjótrar úrlausnar“. Til að vega upp á móti þessum vandkvæðum við að ná fram þjóðarviljanum þurfi að mati Jóns að velja hina hæfustu og vönduðustu menn sem fulltrúa. Til að leiðbeina kjósendum við val á fulltrúum telur Jón tímarit og dagblöð „hin beztu verkfæri“ en þau geti einnig veitt stjórnmálamönnum aðhald og hvatt þá „til umhugsunar og vandvirkni með því að finna að við þá, vekja eptirtekt þeirra og annarra á því sem miður fer og hvernig það megi bæta“ (bls. 67). Við lestur þessarar greinar Jóns fer ekki á milli mála að hann hefur verið búinn að velta fyrir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.