Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2011, Page 117

Andvari - 01.01.2011, Page 117
andvari JÓN SIGURÐSSON OG STJÓRNSKIPUN ÍSLANDS 115 Frá þjóðfundi til þjóðhátíðar Töluvert gekk á í samskiptum íslendinga og Dana næstu árin. Ekki var fall- ist á beiðni íslendinga um að þeir mættu velja sér fulltrúa á stjórnlagaþing Danmerkur og borið við tímaskorti. íslendingar áttu því auðveldara með að halda því til streitu að grundvallarlög Danmerkur giltu ekki fyrir ísland. Konungur stóð við fyrirheit sitt og á Alþingi 1849 var lagt fram „frumvarp til laga um kosningar til fulltrúasamkomu þeirrar, er ræða skyldi stjórnskipunar- lega stöðu íslands í ríkinu“. Alþingi afgreiddi málið og var gengið til kosninga árið eftir en þjóðfundurinn kom ekki saman fyrr en 5. júlí 1851. Stjórnin lagði fyrir fundinn frumvarp um stöðu íslands í ríkinu og skyldu grundvallarlög Danmerkur gilda á íslandi. Frumvarpið fór til nefndar þar sem meirihlutinn undir forystu Jóns Sigurðssonar skilaði greinargóðu áliti þar sem því var haldið fram að samband íslands og Danmerkur væri aðeins og hefði alltaf verið konungssamband og konungur gæti því ekki án samþykkis íslendinga komið þeim á forræði danska ríkisþingsins. Tilgangur frumvarpsins virtist augljóslega sá að innlima ísland að fullu í Danaveldi. Á næstu árum samþykkti Alþingi hvað eftir annað bænarskrár í stjórnar- bótamálinu þar sem óskir íslendinga um aukin þjóð- og frelsisréttindi voru ítrekaðar. Danska stjórnin sinnti þessu í engu fyrr en árið 1867 að hún lagði fyrir Alþingi frumvarp til stjórnskipunarlaga fyrir ísland og aftur árið 1869. Alþingi samþykkti fyrra frumvarpið en gerði á því allnokkrar breytingar sem stjórnin sætti sig ekki við. Seinna frumvarpinu hafnaði Alþingi og bað um að fá fyrra frumvarpið til samþykktar. Danska ríkisþingið greip til sinna ráða og 2. janúar 1871 staðfesti konungur lög um stjórnskipunarlega stöðu íslands í ríkinu. Samkvæmt lögum þessum, sem oftast hafa verið nefnd stöðulögin, var Island óaðskiljanlegur hluti Danmerkur. Seinna sama ár lét konungur leggja stjórnarskrárfumvarp fyrir Alþingi sem hafnaði því. Árið 1873 samþykkti Alþingi frumvarp að stjórnarskrá handa Islandi og bað konung að staðfesta. Til vara sendi Alþingi tvær tillögur. Sú fyrri var svohljóðandi: „Að ef konungi þóknist ekki að staðfesta stjórnarskrárfrumvarp alþingis, setji hann að ári stjórnarskrá, er veiti alþingi fullt lögsetningarvald °g fjárforræði og að öðru leyti sé löguð eftir frumvarpinu, svo sem framast má verða.“ Nefndin setur þó þau skilyrði: 1. „Að stjórnarskrá þessi ákveði, að sérstakur ráðgjafi skuli skipaður fyrir fslandsmál, sem hafi ábyrgð á stjórnarstörfum sínum fyrir alþingi". 2. „Að engin gjöld eða álögur verði lagðar á Island til sameiginlegra mála án samþykkis alþingis". 3. „Að endurskoðuð stjórnarskrá, byggða á óskertum landsréttindum íslendinga, verði lögð fyrir hið fjórða þing, sem haldið verður, eftir að stjórnarskráin öðlast gildi“.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.