Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2011, Side 148

Andvari - 01.01.2011, Side 148
146 JÓN KARL HELGASON ANDVARI Þar vill hann að með tímanum komi í röð brjóstmyndir merkra bókmentamanna [svo] íslenskra, á hjer um bil tveggja álna háum fótstöplum, og væri rúm fyrir 6 myndir hvoru megin dyra. Síðan hugsar hann sjer tvær stórar myndir sína til hvorrar hliðar, og standi þær lítið eitt út frá hornum hússins og nær götunni. Þessi hugmynd er góð. Mætti þá hugsa sjer öðru megin líkneski Jónasar Hallgrímssonar, en hinumegin Jóns Sigurðssonar. Brjóstmynd Kristjáns, sem hjer hefur verið talað um, er meira en í náttúrlegri stærð. Alíka stór eirmynd er til af Bjarna Thorarensen, geymd í þinghúsinu, og ætti hún líka að setjast framan við bókasafnið.17 Þessi umræða um stytturnar tvær og „peðin“ tólf afhjúpar vel hvernig opin- berar byggingar og líkneski framan við þær eiga gjarnan í innbyrðis sam- ræðum. Tilteknir einstaklingar eru gerðir að holdgervingum viðkomandi starfsemi eða útvörðum þeirrar gilda sem stofnuninni er ætlað að varðveita. Hugmynd séra Eiríks um stytturnar framan við Safnahúsið varð hins vegar aldrei að veruleika. Samskotsnefndin um Jónasarstyttuna fór að vísu fram á að hún fengi að standa öðrum megin við inngang hússins og að gert yrði ráð fyrir líkneskinu af Jóni Sigurðssyni hinum megin en þar sem byggingin var enn í smíðum árið 1907 var listaskáldinu til bráðabrigða komið fyrir á gras- bala við Lækjargötu, sunnan Bankastrætis, framan við landlæknisbústaðinn.18 Og þar átti Jónas eftir að standa kyrr í nærri fjóra áratugi. Skriður komst á ný á söfnun vegna líkneskisins af Jóni Sigurðssyni síðla árs 1910.19 Akveðið var að nýta þá fjármuni sem safnast höfðu á níunda áratugnum en virkja að auki sem flesta aðila í nýja söfnun, þeirra á meðal Islendinga í Vesturheimi. Sem fyrr var Tryggvi Gunnarsson formaður fimm- tán manna undirbúningsnefndar, Bjarni Jónsson frá Vogi var ritari en gjald- kerar alþingismennirnir Björn Kristjánsson og Hannes Hafstein.20 Einar Jónsson myndhöggvari var ráðinn til verksins og fór svo að gerðar voru tvær bronsafsteypur af gifsmynd hans af Jóni; önnur þeirra var síðar send til Kanada og sett upp í Winnipeg en menn deildu um hvar í Reykjavík koma ætti hinni fyrir. A tímabili var minnisvarðanefndin með Austurvöll í huga en sú tillaga var harðlega gagnrýnd í grein í Ingólfi 4. maí 1911: Því að óneitanlega vottar það ótrúlega andlega fátækt, að geta ekki dottið annar staður í hug, en sá sem einmitt er búið að setja mynd á. Á Austurvelli fer ekki vel um nema eina mynd. Og flestum íslendingum þykir líklega hart að láta Jón Sigurðsson forseta standa eins og einhvern knaba [svo] Alberts Thorvaldsens í einu horninu á blettinum hans. Nei, Jón Sigurðsson getur ekki staðið á Austurvelli svo að það sé okkur vansalaust, nema Thorvaldsens myndin sé flutt burtu þaðan og Jón settur í hennar stað, - en það er ekki meiningin. Breytist þetta áform - og flestir munu vona að svo fari - hefir nefndin hu[g]sað sér Lœkjartorg, og er það miklu betra. Sannast að segja er það ágætis staður. Þar mætast allar helstu götur Reykjavíkur; þar eiga allir útlendir og innlendir ferðamenn leið um, og þar er stjórnarráðshúsið. Jón gæti staðið þar til áminningar öllum okkar ráðherrum um það, með hverjum huga þeir eiga að ganga að starfi sínu.21
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.