Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2011, Side 151

Andvari - 01.01.2011, Side 151
ANDVARI MANNTAFL SJÁLFSTÆÐISBARÁTTUNNAR 149 styrks af opinberu fé og þyrfti að „vinna fyrir lífinu“.31 í grein sem birtist í Norðra undir lok ársins 1906 voru þessi miklu áform rædd frá ýmsum hliðum. Greinarhöfundur taldi æði kostnaðarsamt fyrir fátæka þjóð að heiðra minningu allra þessara manna með því að láta steypa þá í eir. Lagði hann til að Kristjáns IX. væri minnst með öðrum og hagkvæmari hætti, enda virtist honum sem að landsmenn hefðu sýnt samskotum vegna málsins svo lítinn áhuga að einboðið væri að landssjóður þyrfti að hlaupa undir bagga. „Önnur blöð er um málið hafa rætt, hafa lagt til að vér reistum minnismerkið með því, að vér kæmum á fót einhverri líknarstofnun er bæri nafn þessa nýlátna konungs vors. - Það þætti oss eiga mjög vel við og viljum styðja þá tillögu af fremsta megni.“32 Niðurstaðan var samt sem áður sú að stytta Einars Jónssonar af Kristjáni konungi var afhjúpuð framan við Stjórnarráðið við hátíðlega athöfn 26. sept- ember 1915. Klemens Jónsson landritari flutti ávarp af þessu tilefni. Þar kom fram að samskot vegna styttunnar hefðu farið vel af stað en bakslag komið í þau þegar einhverjir hefðu risið upp til andmæla. Samt hefði komið „tals- vert fé víða að frá landinu og jafnvel frá löndum í Vesturheimi, og það má með sanni segja, að þessi myndastytta sé bygð fyrir íslenzkt fé, því öll sam- skotin stafa annaðhvort frá íslandi beinlínis, eða frá íslenzkum viðskiftum.“33 Klemens varði nokkru púðri í að ræða muninn á því að vera kóngsþræll og drottinhollur (,,loyal“), enda taldi hann ástæðu til að útskýra fyrir yngri kynslóðum hve mikils virði stjórnarskráin 1874 og lögin um heimastjórnina frá 1903 hefðu verið fyrir þjóðina og sjálfstæðisbaráttuna. í niðurlagi setti hann líkneski konungsins jafnframt í samband við hitt líkneskið framan við Stjórnarráðið og túlkaði þau sem eitt samsett tákn: Og nú standa þeir hér fyrir framan aðsetur æðstu stjórnar þessa lands, þeir tveir menn, sem mestan og beztan þátt áttu í því að reisa grundvöllinn undir sjálfstæði landsins, annarsvegar hinn einvaldi konungur Islands, eftir vorum skilningi á sambandinu, sem staðfestingarvaldið hafði, og hins vegar fulltrúi þjóðarinnar, sómi íslands, sverð og skjöldur, hann sem bar höfuð og herðar yfir alla samtíðarmenn sína. Þeir standa nú hér hvor við hliðina á öðrum, eg veit að þeir menn eru til, sem álíta þetta óviðeigandi af ýmsum ástæðum; um það má auðvitað deila, en eftir minni skoðun er það vel til fallið, ekki sízt frá voru sjónarmiði, Islendinga. Þeir standa hér báðir eins og á verði fyrir framan stjórnarráðshúsið, á verði fyrir frelsi landsins, og þeir eru sýnilegt tákn frelsis þess.34 í þessum orðum má greina visst óöryggi, ekki aðeins gagnvart þeim íslendingum sem töldu tímaskekkju að reisa erlendum kóngi líkneski á lokaspretti sjálfstæðisbaráttunnar heldur einnig og ekki síður gagnvart þeim Dönum sem hugsanlega töldu helgispjöll að tefla kónginum og Jóni Sigurðssyni fram sem jafningjum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.