Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1939, Side 62

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1939, Side 62
ÍSLENZAR BÓKMENTIR f CANADA 35 sumir tvær til þrjár, og eftir einn (St. G. St.) hafa komið út sex bindi af ljóðum. En mjög mikið af ljóð- um íslenzku skáldanna hafa birst í blöðum og tímaritum. Nokkur hinna úkranisku skálda hafa sam- ið sögur, einkum stuttar sögur, og leikrit, en af íslenzku skáldunum geta aðeins tveir kallast sagnahöf- undar, annar hefir ritað aðeins stuttar sögur; og einn er leikrita- höfundur jafnframt því að vera ljóðskáld. Eftir því sem Kirkcon- nell áætlar, hafa að minsta kosti 10,000 kvæði birst í blöðum Úkraníu- manna í Canada. Og mest af þeim skáldskap segir hann, að sé aum- asti leirburður (the saddest sort of doggerel), talsverður hluti sé þol- anlegur skáldskapur og dálítið brot ágætt. Sennilega hefir enginn reynt að telja allan þann fjölda kvæða og vísna, sem binst hefir í íslenzkum blöðum og tímaritum hér í landi, en víst er um það, að hann er mik- hl, og um mjög mikið af því má sjálfsagt segja, að það sé leirburð- ur! en svo hefir margt verið gott, og nokkuð, sem kalla má ágætt. Það er fleira líkt með íslenzku skáldunum og þeim úkranisku en það, að kjör þeirra og skilyrði til bókmentastarfsemi hér í Canada hafa verið lík; sögulega séð, er oinnig margt líkt með þeim. Sem þjóð eru Úkraníumenn hneigðir fyr- lr skáldskap og söng og hið sama niá segja um íslendinga. Langflest skáld beggja þjóðflokkanna eru af alþýðufólki komin. Hjá íslending- um hafa alþýðuskáldin, sem svo eru nefnd, það er að segja skáld, sem ort hafa létt og auðskilin ljóð, verið í mestu afhaldi, þó að nú sé ef til vill orðin nokkur breyting á því. Próf. Kirkconnell segir að skáld- skapur úkraníumanna sé yfirleitt léttur og aðgengilegur fyrir almenn- ing, hann líkir alþýðukveðskap þeirra við íslenzku rímumar og skozku þjóðkvæðin (ballads). Eitt ská ld Úkraníumanna hér, sem mun vera eitt hið alþýðlegasta skáld þeirra, hefir náð alveg ótrúlegum vinsældum. Af ljóðabók, sem hann gaf út, hafa selst 50,000 eintök síðan 1911. Þessi maður hefir átt lengi heima í Winnipeg og stundaði dag- launavinnu þar um mörg ár. Nokk- ur ung úkranisk skáld, fædd og upp- alin í Canada og mentuð á skólum hér, yrkja á móðurmáli sínu og mynda einskionar nýjan skóla meðal úkraniskra skálda. Við íslendingar eigum ekkert í líkingu við það. í bæklingi, sem heitir “New Can- adian Letters”, eftir Kirkconnell, og er endurprentun úr “Letters in Canada, 1938”, sem birtist í Uni- versity of Toronto Quarterly, Vol- ume VIII, No. 4, er skrá yfir rit- störf vestur-íslenzkra og annara út- lendra höfunda í Canada fyrir árið 1938. Skrá þessi er hin fróðleg- asta. í henni eru nöfn 57 íslenzkra rithöfunda í Canada og Bandaríkj- unum. Af þessum 57 hafa 41 birt ljóð eftir sig, 5 hafa isamið ritgerðir eða bækur sögulegs efnis, 3 skáld- sögur, 3 hafa ritað um listir, 4 æfi- sögur, 6 um trúarbrögð, 4 um bók- mentir og 3 um ýmisleg önnur efni. Fiest ljóðskáldanna hafa birt kvæði af og til í blöðunum, tvö hafa gefið út ljóðabækur. önnur ritverk eru auðvitað flest ritgerðir, isem hafa birst í blöðunum. Fimm bækur gefnar út í Reykjavík eru taldar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.