Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1945, Page 40

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1945, Page 40
18 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA er það miklu fremur skapferli , hans og skáldskapur. Hann stend- ur einn og afskektur (eins og klett- ur úr hafinu) í enskum bókment- um. Enginn samtíðarmanna hans (hvorki á Englandi né Skotlandi) var á neinn hátt líkur honum sem skáld. Hann var, að mínu áliti, há- norrænn í innsta eðli sínu — var nokkurs konar víkingur, róstugjarn og skapmikill, en jafnframt örlátur og drenglundaður. Honum svipar að mörgu til þeirra Egils Skalla- grímssonar, Staöarhóls-Páls og Bólu-Hjálmars. Hann átti í sífeld- um erjum við ýmsa rithöfunda, eins og þá John Marston (1575- 1634) og Thomas Dekker (1570- 1640); en hann átti líka marga trygga og góða vini, eins og þá William Shakespeare og George Chapman (1559-1634). 16. október 1931. Séra Guömundur Árnason sendi mér bókina: “Ben Jonson’s Con- versations with Drummond of Hawthornden”, sem mig hefir svo lengi langað til að fá. Það er ekki útgáfa sú, sem prentuð var árið 1842. Þessi bók var gefin út af R. F. Patterson, D.Litt., í Glasgow, árið 1924. í henni eru fjöldamargar at- hugasemdir og skýringar, sem eru mér eins mikils virði og sjálfur textinn. Og það, sem mér þykir mest í varið, er það, að Dr. Patter- son álítur að /. A. Symonds hafi ekki tekist að færa sönnur á það, að Ben Jonson hafi verið af John- stone’s-ættinni í Annandale á Skot- landi. 14. apríl 1932. Frá Dr. Richard Beck fékk eg langt og gott bréf í gær. Hann sendi mér “The New York Times Book Review” (febr. 14.), og er þar ritdómur um bók Eric Linklater’s •um Ben Jonson. 29. apríl 1932. Eg er nú búinn að lesa bók Eric Linklater’s um Ben Jonson og Jakob hinn fyrsta Englandskon- ung. Bókin er, að mínu viti, vel rituð, en þar er mjög fátt um ætt skáldsins og æskuár. Samt er margt í bókinni, sem eg hafði ekki áður heyrt getið. 22. ágúst 1945. Eins og eg hefi áður tekið fram í Dagbók minni, þá finst mér alltaf, að skáldið Benjamín Jonson hafi verið af íslenskum ættum; ekki samt vegna nafnsins, heldur vegna þess, að margt af því, sem hann rit- aði, er, að minni hyggju, forn-ís- lenskt í innsta eðli sínu. Eg fæ ekki annað séð, en að hann hafi verið bráðgáfaður, hugprúður með afbrigðum, mikill námsmaður, og drengur góður. Mér finst það ekk- ert ótrúlegt, að hann hafi getið sér mikla frægð í orustum og háð þar einvígi við frægasta kappa óvin- anna, í augsýn beggja herflokk- anna, og borið sigur úr býtum. Og eg felli mig vel við það, sem John Dryden (1636-1700) segir um þá Jonson og Shakespeare. “Ef eg á að líkja honum (Ben Jonson) við Shakespeare, verð eg að viður- kenna, að hann hafi færri lýti sem skáld, en að Shakespeare sé djúp- vitrari. Shakespeare var Homer, eða faðir sjónleika-skáldanna okk- ar; Jonson var þeirra Virgelius,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.