Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 37
ingi 18. aldar, eins og til dæmis sam-
þykktir Landsnefndarinnar 1770 og
1771 hnigu að, til þess að þeim hafi enn
verið í minni hörmungamar mannfellis-
árin 1755-1759?
Hverjir sultu í hel?
Hverjir voru það sem urðu hungri að bráð?
Gísli Gunnarsson segir að það hafi verið
þeir fátækustu, þeir veikustu, þeir elstu
°g yngstu. Börn og skylduómagar fatæks
fólks og þurfamennimir féllu fyrst.5
Guðmundur Hálfdánarson kannaði
mannfall í móðuharðindum eftir stéttum
°g kemst að svipaðri niðurstöðu hvað varðar
hungurdauða. Útreikningar hans byggja
a rannsókn í 26 sóknum á ámnum
1784-1785. Eftirfarandi tafla er unnin
UPP úr niðurstöðutöflu Guðmundar.6
Það er þó einkum þrennt sem ber að
athuga varðandi töfluna. Fyrst er það lág
dánartíðni meðal einkaómaga. Einka-
°magar voru þeir ómagar er vora
vistaðir hjá ættingjum sínum og höfðu
venð teknir til vistunar vegna ættar-
tengslanna. í BA ritgerð sinni bendir
bjarni Jónsson, sagiifrœðingur, á að í hall-
®rum urðu margar fjölskyldur að láta
einkaómaga frá sér. Þess vegna hafa
margir þeirra „lent á sveit og hugsanlega
orðið hungurmorða sem niðursetningur”.7
Annað sem ber að athuga varðandi
töfluna er að í náttúrahamforam flosnaði
fblk upp af heimilum sínum og því hafi
..siðasta skeið í dauðastríði mjög marga
verið hlutskipti sveitarómagans eða flakk-
arans”. Stéttarstaða fólks samkvæmt dán-
arskýrslum segir því ekki alla söguna.(8)
Þannig hafi ef til vill einhver bóndinn
hrakist af jörð sinni í harðæri og dáið í
annarri sýslu sem flakkari svo dæmi sé
tekið.
Það þriðja sem athuga þarf er tengsl
landfarsótta, en svo era einu nafni
nefndar í annálum farsóttir sem gengu
um landið á mismunandi tímum, og
hungurdauða. Þau tengsl ber að kanna til
að sjá hvort hungur lagðist mismunandi á
fólk eftir því hvar í stétt það stóð.
Jón Steffensen bendir á að sjúkdómar
eins og skyrbjúgur og niðurgangur hafi
fýlgt harðindum. Niðuigangur eða blóð-
sýki var landlæg á Islandi en það þurfti
vaneldi til þess að úr yrði banvænn fárald-
ur. Þá hafi skyrbjúgur aukist í matarleysi
og veikt mótstöðu gegn öðram og vægari
sjúkdómum.1' Sjúkdómar fara einnig
verr með hungrað fólk en mett.
Um landfarsóttir eins og þær era
nefndar í annálum treystir Jón Steffen-
sen sér ekki til að fullyrða. Annálar geta
þeirra ekkert frekar í hallæram en utan
þeirra, svo að ekki er hægt að sýna fram á
bein tengsl þar á milli,en samt finnst
honum líklegt að vaneldið hafi áhrif á
framgöngu þeirra, þó ekki í sama mæli
og á skyrbjúg og blóðsýki.10
Guðmundur Hálfdánarson telur aftur
á móti að ekkert sé hægt að sanna um
þessi tengsl og ýmislegt bendir til þess að
það sé rétt hjá honum. Fólk sem dó úr
hungri var úr lægri stéttum þjóðfélagsins
á meðan landfarsóttin fór ekki í mann-
greinarálit.
Aldurinn er einnig mismunandi á
meðal þeirra sem falla úr hungri og
þeirra sem féllu úr landfarsótt. Börn og
gamalmenni féllu aðallega í landfarsótt-
um á meðan aldurshópurinn 10-29 ára
virðist viðkvæmastur fyrir hungurdauða.
Landfarsótt virðist því einkum leggjast á
þá aldurshópa þar sem dánartíðnin var að
jafnaði hæst."
Þá hafi hungurdauði aðallega orðið
seint á vetuma og á vorin, þegar fæðu-
framleiðslan í sveitunr var í lágmarki, á
meðan landfarsóttir hafi geysað harðast á
vetuma.12
Rök Guðmundar duga ekki til að úti-
loka tengsl landfarsóttanna og hungurs,
til þess þarf að fa nánari upplýsingar um
eðli landfársóttanna.
Hvað svo sem þessum þremur
athugasemdum við tölur Guðmundar
líður liggur ljóst fyrir að fatæklingar nutu
sérstaks forgangs varðandi hungurdauða
(þeir síðustu munu verða fyrstir). Reynd-
ar var slíkt fullkomlega eðlilegt. Fátækra-
framfærsla hreppanna var eina skipulagða
aðstoðin við fatæka hér á landi. Hún var
hins vegar háð því að bændur gætu greitt
tíund og önnur ómagagjöld og tekið við
niðursetningum en það brást jafnan er
hallæri surfii að þjóðinni.13 Þegar þannig
var ástatt áttu bændur yfirleitt nóg með
að fæða sig og sína svo að þurfamenn
þurftu að sitja á hakanum.
Berskjölduð þjóð
Náttúrahamfarir verða ekki sjaldnar í
fijósömum og þéttbýlum löndum en
strjálbýlum og gróðursnauðum, þó með
mismunandi hætti. A Islandi er það eldur
og ís en í Florida fellibylir og í Bangla-
desh flóð sem þjaka íbúana. Það sem máli
skiptir er viðbúnaður samfelagsins við
harðindum." Þar var Islandi líkt farið og
smalamanninum forðum er lá svo vel
undir höggi Þorgeirs Hávarssonar, því
eins og hann lá krepptur og boginn fram
á staf sinn lá íslenska samfelagið með háls-
inn útréttan undir axarblaði náttúra-
hamfaranna.
Það vora einkum þrennir þættir
íslensks samfelags sem stuðluðu að þessu
vamarleysi: einhæft atvinnulíf, einhæft
mataræði og ástand verslunarmála.
Mannfall í móðuharðindum eftir stéttum
100%
80%
60%
40%
20%
Bændur Böm Ættingjar Vinnufólk Húsfólk Ómagar Flakkarar
og makar bænda og tökufólk
■ úr landfarsótt □ úr hor □ úr einhverju öðru
SAGNIR 35