Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 42
Sigmenn. Myndin er tckin i Drangey Í938.
in í dalnum stendur Reynisfjall, 340
metra hátt og gengur i sjó fram. Hamr-
arnir eru þverhníptir, en þó hefur
hvönnin víða náð að festa rætur. Sunnan í
fjallinu, vestan megin, eru sérkennilegar
bergmyndanir og hellar.4
Vestan megin við ReynisfjaU er
Reynishverfi. Það er myndað af nokkmm
bændabýlum. Reynisfjall er einmitt eign
Hverfmga.5 Meirihluti bújarðanna er
kenndur við bæinn Reyni. Bendir það til
landnámsjarðarinnar, sem Reyni-Björn
helgaði sér.'1 Það var á þessum stað í þessu
umhverfi sem Einar Brandsson bjó.
Framtakssemi og athafnaþrá
Einar Brandsson fæddist 18. mars 1859 í
Reynishjáleigu. Hann var annar í röð
fimm alsystkina. Faðir hans kvæntist aft-
ur eftir lát fyrri konu sinnar og áttu þau
sjö börn. Ekki kornust þó öll systkini
hans á legg og má í raun segja að hann
hafi verið elstur, því elsti bróðir hans lést
aðeins átta daga gamall.
Einar var hjá foreldrum sínum i
Reynishjáleigu til ársins 1885, er hann
gerðist bóndi í Reynisdal. Þá var hann
nýkvæntur Sigríði Brynjólfsdóttur. Þar
bjuggu þau i fimm ár, er þau fluttu að
Norður-Reyni, þar sem þau stunduðu
búskap til ársins 1927. Sonur þeirra tók
þá við, en Einar bjó hjá honum til ævi-
loka. Hann lést 28. febrúar 1933. Þau
hjónin eignuðust átta böm.7
Þess má til gamans geta að þegar Ein-
ar tók við búi á Norður-Reyni, þá stóð
bærinn fast við kirkjugarðinn. Þar höfðu
Reynisbæimir, Norður- og Suður-Reyn-
ir, staðið ámm og öldunr saman. Einar
tók ofan bæ sinn og reisti hann norðar í
hverfinu. Mundi enginn til þess að bær
hefði staðið þar áður." Það var þó ekki að
ástæðulausu sem hann flutti bæinn. Þar
sem hann hafði staðið áður var jarðvegurinn
blautur. Því hafði jörðin umhverfis bæinn
tilhneigingu til þess á vorin að verða að
svaði.5 En þessi flutningur er einkenn-
andi fyrir Einar, sem í raun var fullur af
framtakssemi og athafnaþrá.
Um heimilislífið á Norður-Reyni
finnast litlar heimildir, en þó segir
Eyjólfur Guðmundsson frá Hvoli að það
hafi verið gamansamt og sagnaríkt.10
Magnús Finnbogason, einn af nábú-
um Einars lýsir honum á þennan hátt:
Einar var ákaflega glæsilegur ungur
maður og raunar var hann það alla
ævi. Hann var i meðallagi á hæð, en í
þreknara lagi og svo vel vaxinn og
fallega á sig kominn að eftirtekt vakti
hann hvar senr hann fór. Hann var
ljósgulur á hár og skegg og andlits-
friður í bezta lagi... Hann var stilltur
vel, hygginn og úrræðagóður í hverri
raun.”
Það er ekki laust við að upp í hugann
komi lýsingar á fornköppum Islendinga-
sagnanna og hefði hún sómt sér vel þar á
meðal. Af skapgerð Einars fara faar sögur,
en þó segir að hann hafi verið hæverskur,
en jafnframt frekar dulur.1-
Einhveiju sinni lentu tvö lömb í
40 SAGNIR