Sagnir - 01.06.1993, Síða 89

Sagnir - 01.06.1993, Síða 89
og tveggja ára snikkari, sem hafSi verið á flækingi í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Hann var settur inn í hegningarhúsið þann 28. september 1875 klukkan tólf á hádegi en þá um vorið var hann hand- tekinn fyrir „að stela peningum frá Jóni Sveinbjömssyni í Sandgerði“.5 Guðlaugur kom að nóttu til heim á bæ Jóns og braut sér leið inn um glugga í útihús. „Þar inni vora meðal annars 2 kistur og stóð hvor ofan á annari; hann spennti lokið á þeirri efri upp ... [og tók] úr henni ... faeina þumlunga af munntó- baki, réðst siðan að neðri kismnni .... I þessari kistu fann hann lítinn stokk ... þar voru í 2 peningapokar og tók hann þá báða.“6 Sjóðurinn var sagður vera tæpar 950 krónur og notaði hann lítinn hluta af þeim peningum til að kaupa „brennivín, sykur og fleira smávegis“,7 en restin af þýfinu kom í leitirnar skörnmu síðar. Fyrir þetta afbrot var Guðlaugur dæmdur í sex ára typtunarhúsvinnu. Þetta var ekki fyrsta afbrot Guðlaugs. Hann hafði áður verið dæmdur „til vatns- og brauðs- hegningar í Reykjavík; 2x27 vandar- haggarefsingar í Reykjavík ... [og] 4 ára betrunarhússvinnu“.“ sem hann tók út í Kristjánshöfn í Danmörku. A eftir Guðlaugi Þórðarsyni læsast dyr hegningarhússins næst þegar Jón Jónsson tuttugu og eins árs vinnumaður úr Rangárvallarsýslu var settur á bak við lás og slá þann 21. október 1875 þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í sex.9 Sannað þótti að hann „...hafi síðast næst- liðinn vetur þá hann var vinnumaður hjá bónda Brandi Valtýssyni á Seli tvívegis farið leynilega með þjófálykla í kistu hús- bónda ... og tekið úr kismnni 56'/2“'0 ríkisdal og „í kistuna fór hann í þeim tilgangi að stela ef hann finndi þar pen- inga, þó stal hann ekki öllum þeim pen- ingum er voru í kistunni."11 Þegar grun- ur fór að beinast að Jóni skilaði hann 50 ríkisdölum af þeim er hann hafði lagt hendur á en gat ekki staðið skil á hálfum sjöunda rikisdal. Við sörnu rannsókn ját- aði Jón að hafá í „heimildarleysi rnarkað upp á sem fyrrverandi húsbóndi hans Þorvaldur bóndi Bjömsson á Holti átti í því skyni að kasta eign sinni á hana.“12 Hinn ákærði Jón Jónsson var dæmdur fyrir fyrstu afbrot sin til að sæta átta mánaða betrunarhúsvinnu og borga Brandi Valtýssyni 13 krónur og Þorvaldi Bjömssyni 5 krónur í skaðabætur ,13 Degi á eftir Jóni kom fyrsti kven- fanginn til afplánunar og hét Kristbjörg Bjömsdóttir tuttugu ára vinnustúlka úr Reykjavík. Sannað þótti að hún hefði um haustið 1874 alið bam „fhllburða og með fullu lífi sem hún þegar eftir fæðinguna líflét, hafði hún til þess sjálfskeiðung sinn .... Stakk hún bamið með hnífnum aftur og aftur í brjóstið og víðar og varð það bani barnsins."14 Við rannsókn kom í ljós að Kristbjörg hafði engum sagt ffá því að hún væri vanfær og auk þess treysti hún sér ekki til að ala upp og fæða bamið. Dómarinn komst því að þeirri niðurstöðu að „það hafi verið ásetningur hennar áður en bamið fæddist að farga því.“15 Krist- björg var dæmd í fimm ára betrunarhús- vinnu fyrir dulsmálið. Að enda þá óvissu Áður en Guðlaugsnafnamir, Jón og Krist- björg hófh refsivistina í hinu nýbyggða hegningarhúsi í Reykjavík höfðu marg- víslegar breytingar átt sér stað í refsirétti bæði hér á landi og á meginlandi Evr- ópu. Dauðadómar og líkamsrefsingar vom að hverfa í flestum löndum álfunnar og í þeirra stað komnir refsivistardómar með allt öðm sniði. Á 18. öld þegar umbylting á refsirétti hófst átti margt eftir að breytast í meðferð yfirvalda á sakamönnum. Horf- ið var frá refsingum miðalda þar sem Hk- ami hins meinta afbrotamanns var þungamiðja refsingarinnar. Samkvæmt hugmyndum miðaldamanna átti hinn brotlegi sakamaður að fa maklega ráðn- ingu sem tekin var út á líkama hins seka. Þessu átti að breyta og í staðinn skyldi allt gert til að bæta sakamanninn og betra. Til að framkvæma þessar breytingar og gera þær mögulegar var nauðsynlegt að umbylta réttarkerfinu. Þeir sem börðust fyrir umbótum hafa stundum verið kenndir við upplýsta refsispeki og sögð af- kvæmi upplýsingarinnar. Þeir vildu að samræmi væri á milli afbrots og refsing- ar; engum átti að refsa án þess að dóm- stóll hefði fjallað um sakamáhð og öHum sakborningum skyldi fenginn verjandi og réttarhöld áttu að vera öHum opin. AUir áttu að vera jafnir gagnvart lögum og aUar refsingar áttu jafnframt að vera skráðar í lög. Með þessunr hætti væm hendur dómara bundnar við lögin sem settu honum ákveðin refsiramma til að fara eftir, með mildandi og skerpandi kringumstæðum við ákvörðun refsingar. Almenningur átti jafnframt að vita hvað væri saknæmt athæfi. Oheimilt var að nota pyntingar við öflun sönnunargagna og greiða skyldi skaðabætur ril þeirra er sátu í gæsluvarðhaldi að ósekju. Greinar- munur skyldi einnig gerður á trúarlegum og veraldlegum afbrotum. Trúarleg af- brot voru syndir sem dómstólar kirkj- unnar tókust á við en ekki hinir verald- legu dómstólar. Hlutverk veraldlegra dómstóla var að takast á við raunvemleg afbrot manna gagnvart öðmrn mönnunr. Með þessu vom upplýsingarmenn að krefjast réttarríkis og jafnréttis gagnvart lögunum. Þessar hugmyndir bárust til Islands og má rekja upphafið að nokkm leyti til breytinga er gerðar vom á íslenskum refsirétti í upphafi áqándu aldar þegar hin Norsku lög Kristjáns V leystu af hólmi ákvæði Jónsbókar í þjófnaðar- og manndrápsmálum og þegar hegningar- húsið við Amarhól var tilbúið til starfá um vorið 1771.16 Ætlunin var að vista þar flökkulýð í ákveðinn tíma sem halda átti að hegningarvinnu og gera þannig að nýtum þegnum í samfélagi manna. Nota fangana sem vinnuafl og átti afraksturinn af vinnu þeirra að standa undir kostnaði við rekstur hússins. Þama vom fangamir tugtaðir tfl með vinnu í þeirri von að sHkt myndi betra þá á einhvern hátt. Frá upphafi var hegningarhúsinu við Arnar- hól aldrei ætlað að hýsa stórglæpamenn heldur aðeins lítilfjörlega flakkara og smáþjófa en þegar fram liðu stundir fór nú svo að þar vom geymdir saman bæði stórglæpamenn og smáþjófar.17 Á þeim ámm er hegningarhúsið var í rekstri gekk margt á, sum árin gekk allt að óskum, en önnur var mjög hart í búi. Virðist gengi í rekstri þess hafa farið eftir árferði hér á landi og hve margir fangar voru í húsinu hveiju sinni. I upphafi nítjándu aldar gekk harðindatímabil yfir landið og rekstur hússins gekk iUa; föng- um fjölgaði og Htið var um mat fyrir fangana. Enda fór það svo að þann 4. nóvember 1813 var öUum föngum gefið frelsi vegna matarskorts og erfiðleika í rekstri. Lokunin átti aðeins að vera þar tfl ástandið lagaðist á ný.18 Lyktir urðu hins vegar þær að þann 3. maí 1816 var gefin út konungleg tilskipun þess efnis að hegningarhúsið við Amarhól væri nú formlega lagt niður og hegningarhúsavist afnumin sem refsing hér á landi þar til annað væri ákveðið. Þess í stað vom hýð- SAGNIR 87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.