Sagnir - 01.06.1993, Side 98

Sagnir - 01.06.1993, Side 98
efni. Þá ber að telja hér Pál Eggert Óla- son, sem ritaði m.a. ævisögu Jóns Sig- urðssonar forseta og mikið rit um menn og menntir siðskiptaaldar. Af núlifandi Islendingum ber að helst að nefna þá Lúð- vík Ingvarsson fyrrverandi prófessor og þá Sigurð Líndal og Pál Sigurðsson laga- prófessora. Eg hygg að segja megi að rík hefð sé fyrir þvi hér á landi að lögfræðing- ar fjalli um söguleg efni. Athyglisvert er að það er ekki takmarkað við réttarsögu, þótt vissulega sé hún áberandi. Önnur mikilvæg tengsl þessara greina felast í því að lög, og önnur opin- ber fyrirmæli stjórnvalda, og dómar eru mjög mikilvægar sögulegar heimildir. Ekki eingöngu fyrir réttarsöguna, sem lætur sig e.t.v. fyrst og fremst varða breytingu og þróun þessara fýrimiæla og framkvæmd þeirra, heldur einnig fyrir þjóðarsöguna í heild. Þekking á lögfræði- legum vinnubrögðum og innsýn í lögfræðilega hugsun eykur öryggi í með- ferð þessara heimilda og eykur skilning á takmörkunum þeirra sem sögulegra heimilda. Það er ekki fyrir tilviljun að margir lögfræðingar hafá fengist við sagn- fræðilegar rannsóknir og það með ágætum árangri í mörgum tilfellum. Hér kemur til þriðja atriðið sem ég vil nefna um tengsl sagnfræði og lögfræði. Þau tengsl liggja í því að í mörgum mikilvægum at- riðum em vinnubrögð og aðferðir í lögffæði náskyld aðferðum í sagnffæði. Góður sagnffæðingur þarf að hafa marga sömu eðliskosti og góður lögffæðingur, ekki síst þeir lögffæðingar sem fast við dómstörf. I þessum stutta pistli ætla ég að fjalla lítillega um tengslin milli aðferða í sagn- ffæði og lögfræði. Séu tengsl þessara greina skoðuð út ffá þessu sjónarhomi, má með nokkmm rétti segja að í hvert skipti sem mál er rekið fyrir dómstólum sé það að hluta til einskonar raunhæft verkefni í aðferðum sagnffæðinnar. Því bemr á þessi samlíking við, sem atburðir þeir, sem dregnir em inn í dómsmálið eru fýrnari. A sama hátt rná lita á sagnfræðilega rannsókn að hluta til sem eins konar raunhæft verkefni i lögfræði. Því betri verður þessi samliking sem sagnfræðingurinn fjallar um atburði nær samtímanum. Þótt svo eigi að heita að ég hafi á sín- um tíma numið sagnffæði við Háskólann lít ég fýrst og fremst á sjálfan mig sem lögfræðing og mun því fjalla um þetta viðfangsefni frá sjónarhóli þeirrar greinar. Eg byija því á því að skýra í stuttu máli hvemig lögfræðingur nálgast viðfangsefni sitt, og lýsa þeim kröfum sem hann gerir til áreiðanleika þeirra heimilda sem hann hefur í höndunum. Að lokum er síðan stuttur samanburður við sagn- ffæðilegar aðferðir. Um þetta mætti hafá langt mál, en hér verður aðeins farið um þetta efni mjög almennum orðum. Þegar lögffæðingur stendur ffammi fýrir því að leysa úr réttarágreiningi má segja að það sé tvennt sem hann þarf að gera: Fyrsta skrefið er að leiða nákvæmlega í ljós atvik málsins. Þegar dómari hefur komist að niðurstöðu um það hver hann telur málsatvik vera, er næsta skref að gera það upp við sig hvert sé efni þeirrar réttarreglu sem leggja eigi til grundvallar við úrlausn ágreinings. Með atvikum málsins er átt við liðna atburði sem urðu kveikjan að rnála- rekstrinum; atburði sem ekki verða endurteknir, frekar en atburðir sögunnar. Það er skylda dómarans að leiða nákvæm- lega í ljós allar staðreyndir málsins; fa sem skýrasta mynd af hinni raunverulegu atburðarás, frá upphafi til enda. Mikil- vægt er að þessi mynd verði sem nákvæmust, þar sem minnsta smáatriði getur breytt heildamiðurstöðu, þar sem ffelsi verður að óffelsi og ríkidæmi að ör- birgð. Þótt dómari telji gögn ófullkomin getur hann ekki skotið sér undan; hann veiður að komast að niðuistöðu. I hinu síð- ara felst leit að þeirri réttarreglu, sem tal- in er gilda í viðkomandi tilfelh og niður- staða veltur á, og leiða í ljós efiii hennar. Réttarreglna er leitað í svokölluðum rétt- arheimildum, þ.e. þeim heimildum sem geta verið gmndvöllur að ályktun um að tiltekin réttarregla gildi. Það er verkefni lögffæðinnar að rannsaka hveijar réttar- heimildirnar eru, hvernig þeim er beitt og skýra þær. Algengasta réttarheimildin eru sett lög, en aðrar eru m.a. venja, fordæmi, lögjöfnun, eðli máls og megin- reglur laga. Skyldleiki lögffæði og sagnffæði verð- ur augljós í því sem lögfræðingar kalla, að leiða í ljós atvik m£sins. Frumskylda sagnffæðings, sem er að rannsaka tiltekinn atburð liðins tíma, er að sjálfsögðu að leiða hina raunverulegu atburðarás sem nákvæmast í ljós; að endurskapa (endur- byggja) fortíðina, eins og sagnffæðingar hafa kallað þessa iðju. Lýsa atburðinum eins og hann raunverulega gerðist skref fýrir skref. Hér læt ég liggja milli hluta að þetta er oft erfitt vegna heimilda- skorts, rétt eins og hjá dómaranum sem telur gögn ónóg. Þá læt ég ennfremur liggja milli hluta að margir sagnfræðingar telja raunar hlutverk sitt stærra; m.a. að tengja saman atburði, túlka og draga lærdóm af. Þrátt fýrir slíka erfiðleika og mismunandi skoðanir sagnffæðinga held ég að allir geti þeir fallist á að endur- sköpun fortíðarinnar, i þeim skilningi sem að ffaman er getíð, sé þeirra ffumskylda. Sem sagt, í því sem lögfræð- ingar kalla að leiða í ljós atvik málsins, felst það sem í reynd er höfúðviðfangsefni sagnfiæðinnar; að endurskapa fortíðina. Til þess að dómari geti gert sér nákvæma grein fýrir atvikum máls þarf hann að styðjast við sönnunargögn. í rétti sumra ríkja, einkum þeim sem við teljum að búi við ffumstæðara réttarfár en við sjálf, eru margar og flóknar reglur um það hvaða sönnunargögn megi bera fram, hvenær og hvernig. Þá hafa slíkar reglur verið til á ýmsum tímum í íslenskum rétti, sem og rétti annarra ríkja. Með reglum af þessu tagi er sönnun lögbundin eða formbundin. Með lögbundinni sönnun var átt við að atvik yrði ekki sannað nema með sérstökum lögmæltum sönnunargögnum, en með fomibundinni, að sönnun yrði að bera ffam með tilteknum hætti. Staðhæfing um staðreynd varð þá aðeins talin sönnuð, að gætt yrði þessara reglna, án tillits til þess hvort sönnun stæðist próf mann- legrar skynsemi. A sama hátt var gert ráð fýrir að líta skyldi algerlega ffamhjá öðr- um sönnunargögnum, þótt þau hefðu mikið sannfæringargildi á mælikvarða skynseminnar. Sanrkvæmt núgildandi réttarfarslög- gjöf er það aðalregla að málsatvik, þ.e. staðhæfingu um staðreynd, megi sanna með sérhverri aðferð sem og sérhveiju þvi gagni sem rnálið varðar og sem líklegt er til, eftir heilbrigðri skynsemi og almennri mannlegri reynslu, að hafa áhrif á mat dómarans. Krafan er því sú að á mælikvarða heilbrigðrar skynsemi og mannlegrar reynslu sé samband milli sönnunargagns og þess atriðis sem sönnun beinist að. Þetta er i hnotskum reglan um fijálsa sönnunaraðferð, sem er ein meginregla íslenskrar réttarfars- löggjafar. Þau sönnunargögn sem byggt er á í 96 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.