Sagnir - 01.06.1993, Page 105

Sagnir - 01.06.1993, Page 105
átt að losna út árið 1880. En hún var látin laus áður en sá tími var allur og árið 1878 er hún komin á nýjan leik til fósturfor- eldra sinna í Sauðagerði. A bænum var ennþá vinnukonan Guðrún Helgadóttir ásamt syni sínum og þremur tökuböm- um húsbænda. Kristbjörg Þórðardóttir, sú er færði nöfnu sinni tevatn þegar hún var að eiga bamið, var nú gift og bjó einnig ásamt manni sínum og syni að Sauðagerði. Þá eru ótaldir vinnumennim- ir Einar Sigurðsson og Oddur Tómas- son,23 en sá síðamefndi átti eftir að hafa talsverð áhrifá líf Kristbjargar. Fljótlega eftir að Kristbjörg kom aftur heim hefúr ástin tekið að blómstra milli hennar og unga vinnumannsins er Odd- ur hét. Arið eftir heimkomuna fæddist þeim sonur og var hann skírður 15. nóv- ember 1879 og látinn heita Sveinn, væntanlega í höfuðið á fósturföður Krist- bjargar. Þau halda síðan áfram að búa hjá Sveini og Guðlaugu í Sauðagerði, og þann 22. maí árið 1886 ganga þau Kristbjörg og Oddur í það heilaga.24 Fjóram áram seinna búa þau enn að Sauðagerði og halda sjálf heimih ásamt tveimur sonum sínum, þeim Sveinbimi og Tómasi, en framburður þeirra er þá talinn uppeldissonur Sveins fósturföður Kristbjargar, en hann hefúr eflaust reynt að létta undir með ungu hjónunum. Kristbjörg situr þá heima og gætir bús og bama en Oddur vinnur fyrir þeim með sjómennsku.25 Ellefu árum seinna era þau flutt að Einholti við Bræðra- borgarstíg og talsverð breyting orðin á högum þeirra. Oddur er hættur að stunda sjóinn og vinnur sem “erfiðismað- ur við landvinnu” og Kristbjörg hefur fætt af sér fimm böm til viðbótar við syn- ina þrjá. Tvö þeirra eru látin en Sveinn, elsti sonurinn, er nú búsettur hjá for- eldrum sínum og starfar sem prentari. Sá næstelsti, 15 ára, er prentnemi en hin fjögur eru á aldrinum 5 til 12 ára.26 Þegar hér er komið við sögu era 27 ár hðin frá því að Kristbjörg átti bam sitt á laun og afréð að deyða það. A framan- greindu má glöggt sjá að hún hefur, eftir að fángavist lauk, ekki hfáð óeðlilegu Hfi og er greinilegt að hún hefúr ekki verið útskúfúð úr samfelaginu eða htin hom- auga á þann hátt að það skaðaði Hf hennar. Það sést kannski best á því að hún komst í náin kynni við eiginmann sinn sama árið og hún losnaði úr prísundinni, þannig að glæpur hennar hefur varla þótt mikill þymir í augum hennar nánustu. Hvað varðar kjaftagang og slúður á næstu bæj- um og nieðal fólks almennt er næsta vonHtið að henda reiður á, en mér er til efs að það hafi á einhvem hátt skaðað til- veru Kristbjargar. Ef við lítum að lokum til baka, þá er það umhugsunarvert hvemig og hvers- vegna þeir sem umgengust Kristbjörgu þegar hún var þunguð, gátu lokað augun- um fyrir því og látið sem ekkert væri þangað til stúUcan hafði fætt og drepið barn sitt nánast fyrir opnum tjöldum. Már Jónsson veltir upp viðlíka spumingu i riti sínu Dulsmál á íslandi og kemst að þeirri niðurstöðu, að einmitt þetta af- skiptaleysi á meðgöngunni einkenni flest dulsmál fyrri alda:27 Þetta var hátturinn sem hafður var á. Rætt var um máHð manna á meðal, væri kona ólétt höfðu flestir ef ekki aUir sem umgengust hana eða þekktu til hennar heyrt af því ... . Þeir nán- ustu og nálægustu spurðu þær um þetta, oftast húsmæður þeirra eða vinnukonur á sama bæ ... . Yfirleitt var borið við blóðlátum, þembu af blóði eða öðram sjúkdómum. FaUist var á sHk svör, en engu að síður haldið áfram að hugsa og tala .... Má vera að oft hafi komið til uppgjörs og konur ládð tiUeiðast og játað að þær væra með bami. Þess sér þó hvergi stað í heim- ildum, þareð bömin hafa þá komið í heiminn innan um fólk. Einnig má hugsa sér að það hafi tíðkast að segja ekki tU bama fyrr en undir það síðasta og að konum hafi verið leyft að búa einar að vissunni, vitandi þó að aðrir vissu það Hka. Að fæða í dulsmáli var þá að ganga of langt. Þessi lýsing Más Jónssonar er athygl- isverð, sérstaklega fyrir þær sakir að mál Kristbjargar feUur nákvæmlega inn í þennan ramma. Það verður að teljast í hæsta máta óHklegt að þær Guðrún Helgadóttir og Kristbjörg Þórðardóttir vinnukonur hafi ekki haft gran um hvað fram fór. I réttarhöldunum var þeim bent á þessi óHkindi, en þær neituðu að hafa vitað nokkuð um hvað fram fór. Þær hafa ef til vill verið að biða eftir því að Kristbjörg tæki af skarið og segði þeim hvað væri á seyði og ekki vUjað grípa frammí. Kenning Más um að ekki hafi tíðkast að segja tíl bama fyrr en undir það síðasta o.s. frv. getur gengið hér upp, en ekki skal unt það fullyrt. Hins vegar er ljóst að einhver eða einhveijir vissu af óléttunni og þá einnig óumflýjanlegri fæðingu. Það sartnar orðrómurinn sem leiddi til yfirheyrslna hjá fógeta yfir Kristbjörgu. Leiða má síðan líkum að þvi, að þessi þögn og þetta afskiptaleysi fólks á meðan á meðgöngunrú stóð hafi einmitt tendrað upp þá freistingu hjá ráðvilltri stúlkunni að hreinlega losa sig við bamið, á þeirri ögurstund þegar feluleiknum var lokið og hún varð að horfást í augu við þá staðreynd að bam var í heiminn kontið sem hún taldi að enginn vildi sjá. Tilvísanaskrá 1 bjóðskjalasafn (ÞÍ), Sýsluskjalasafn. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 30. október 1874. 2 Manntal 1855. Reykjavík. 3 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 6. nóvember 1874. 4 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 6. nóvember 1874 5 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 30. október 1874. 6 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 30. október 1874. 7 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873-1876. 30. október - 6. nóvember 1874. 8 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 30. október 1874. 9 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 6. nóvember 1874. 10 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 5. nóvember 1874. 11 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 30. október 1874. 12 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 31. október 1874. 13 ÞÍ. Reykjavík VI-18. Dómabók 1873 - 1876. 8. desember 1874. 14 Landsyfirréttar- og Hœstaréttardómar I 1875 - 1880. Rv. 1882, 65-66. 15 Páll Sigurðsson: Brot úr réttarsögu. Rv. 1971, 51-52. 16 Norske Lov. Hrappsey 1779. Dálkur 919 - 920. 17 Már Jónsson: Dulsmál á íslandi 1600 - 1920. Rv. 1985, 65 - 66. 18 Márjónsson: Dulsmál á Islandi, 85. 19 Lovsamlitigfor Island XX. Kh. 1887, 300. 20 Landsyfirréttar- og Hæstaréttardómar I 1875 - 1880, 7-8. 21 Már Jónsson: Dulsmál á Islandi, 90. 22 Pétur Pétursson og Snorri Már Skúlason: “Afbrot og sérstæð sakamál til fróðleiks og aðvörunar”. Sagnir 12 (1991), 30 - 39. 23 Sóknarmanntal. Reykjavík 1862 - 1880. 24 Kirkjubók. Dómkirkjan Reykjavík 1881 - 1891. 25 Manntal 1890. Reykjavík. 26 Manntal 1901. Reykjavík. 27 Már Jónsson: Dulsmál á Islandi, 48. SAGNIR 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.