Sagnir - 01.06.2001, Qupperneq 27

Sagnir - 01.06.2001, Qupperneq 27
tilfinningalaust skrímsli. Keppst er við að finna honum allt til foráttu, stórt og smátt, og slá fram alhæfingum sem bera heift- blindni rannsakandans sterkara vitni en gagnrýninni sýn. Af þessum sökum hafa margir glímt við þá ráðgátu hvers vegna Hitler lagði á sig allt það erfiði og umstang sem hann stóð í vegna Wagners og Bayreuthhátíðarinnar á dögum Þriðja ríkis- ins. Höfuðspurning ráðgátunnar er hvers vegna Hitler sat undir þessu öllu saman þar sem sýnt þykir, að hann hafði lítið sem ekkert vit á tónlist, hvað þá tónlist Wagners. Þessu til svara er að ráðgátan er tilbúningur þeirra sem geta ekki horft á Hitler sem mennska tilfinningaveru. Hitler hreifst af Wagner á sama hátt og hver annar Wagneristi. Hvenær hefur maður „vit á“ tón- list? Hitler sá óperur Wagners á sviði oftar en talið varð. Hann stærði sig af því að hafa séð Götterdámmerung og Meistara- söngvarana oftar en hundrað sinnum. Auk þess gat hann klórað sig áfram á píanó. Hann hafði ekki víðan tónlistarsmekk en lagði mikla stund á það sem hann hafði áhuga á.41 Bæði Wagner- fjölskyldan og listamenn sem komu fram í Bayreuth þegar Hitler dvaldi þar höfðu þá og síðar orð á þekkingu hans á verkum Wagners.42 Samstarfsmenn Hitlers taka í sama streng. Albert Speer talar um að Hitler hafi verið allur annar maður eftir að hafa hlustað á Wagner. Eftir heimsóknir hans til Bayreuth hafi hann verið óvenju léttlyndur og afslappaður.43 Winifred heillaðist samstundis af Hitler og traust vinátta þeirra stóð allt til loka. Hitler lék á alls oddi í Bayreuth, las börnum Winifredar og Siegfrieds, Friedelindi, Verenu, Wolfgang og Wieland, sögur á kvöldin og naut samvistar við vini sína. „Onkel Wolf“ í heimsókn í Wahnfried, með Winifred og Wieland til hvorrar handar. Aftast má greina Woífgang. Iðnjöfrar nokkrir í Þýskalandi reyndu að koma sér í mjúkinn hjá Hitíer á fimmtugsafmæli hans 1939 og gáfu honum hand* rit sem þeir höfðu keypt af erfingjum Lúðvíks Bxjaralandskonungs. Um var að ræða frumhandrit Wagners af fyrstu þremur óperum sínum, ásamt handskrifuðum afritum hans sjálfs af Rtnargullinu, Valkyrjunni og fleiru. Wieland grátbað Hitler í Berlín t janúar 1945 að færa handritin frá Berlín til Bayreuth, en Hitler taldi þau örugg í sínum fórum, hafnaði beiðninni og neitaði að greina Wieland frá því hvar þau væru niðurkomin. Þau hafa aldrei fundist og eru vísast glötuð. Hann var aufúsugestur í Wahnfried og var tekið opnum örmum þegar hann birtist skyndilega í dyragættinni. Hitler varði miklum tíma með börnunum fjórum, sem hændust að honum og kölluðu „Onkel Wolf“. Á sýningum í Festspielhaus sat Hitler við hlið Winifredar í svalarstæði Wagnerfjölskyldunnar, haldandi í hönd hennar í átakamestu senunum. í henni átti hann einkavin.44 Bayreuth í Þriöja ríkinu Á fjórða áratugnum stóðu Bayreuthhátíðin og fjölskyldan í Wahnfried frammi fyrir miklum breytingum. Cosima og Sieg- fried féllu frá með skömmu millibili árið 1930. Skyndilega stóð 33 ára gömul ensk kona og fjögurra barna húsmóðir með rekstur og listræna stjórn hátíðarinnar í höndunum. Aðstaða Winifredar var ákaflega erfið, bæði frá listrænu og pólitísku sjónarmiði. Siegfried breytti sáralitlu í listrænum efnum og hátíðin sat þegar á hans dögum undir ámæli fyrir íhald umfram list- rænan metnað. Það kom í hlut Winifredar að tryggja að Bayreuth héldi virðingu sinni og listfengi. Erfið- leikarnir fólust ekki síst í ákvörðunum um hverju mætti breyta og hverju ekki. Valdataka Hitlers og uppgangur nasismans vöktu upp áleitnar spurningar um hátíðina. Með valdatök- unni óx Bayreuthklíkunni fiskur um hrygg og þóttist hún hafa himinn höndum tekið þegar sjálfur Hitler var bæði leiðtogi ríkisins og innanbúðarmaður á hátíðinni. Á sama tíma heyrðust raddir um að Wini- fred bæri að víkja fyrir þýskum Festspielleiter, rétt eins og talað var um Cosimu áður, en ekki tóku allir undir það. Cosima hafði það sér til ágætis að vera eiginkona tónskáldsins og þekkja frá fyrstu hendi hvernig hlutirnir ættu að vera. Sú staðreynd varð henni mikil vörn og sefaði margan klíkumeðliminn. Winifred þekkti aldrei Richard og stóð því varnar- laus þegar fullyrt var að aðrir kynnu að hafa meira vit á málefnum hátíðarinnar en hún. Ástæða þess að Bayreuthklíkan beitti sér hins vegar ekki harðar í andstöðunni gegn Winifred var sú að náin vinátta hennar og Hitlers var talin stórt tromp. Meirihluti klíkunnar hefur talið það of sterkt á hendi til þess að spila því ekki út. Listræn vandræði Winifredar minnkuðu lítið við valdatöku nasista. Toscanini, sem stjórnað hafi bæði 1930 og 1931 við mikinn orðstír, lofaði að snúa aftur 1933. Hann hafði aftur heitið því að stjórna aldrei á Ítalíu meðan fasistar væru við völd þar né koma fram í Rússlandi. Við valdatöku nasista hvarf Toscanini frá öllum áformum um tónleika í Þýskalandi og steig aldrei fæti á þýska jörð meðan Hitler var kanslari.45 Ýmsir færustu söngvarar Bayreuth sem voru gyðing- ar eða af gyðingaættum pökkuðu í töskurnar von bráðar. Vandræðin jukust. Bayreuth-klíkunni varð hins vegar ekki að ósk sinni um að Hitler og nasistar tækju sjálfir til hendinni og „hreinsuðu“ Bayreuth. Þvert á móti olli afskiptaleysi Hitlers í listrænum efnum þeim vonbrigðum.46 Réttara væri að tala um vernd Hitlers en afskipta- leysi þegar að listrænum efnum hátíðarinnar kom. í Þriðja ríkinu giltu boð og bönn í menningarmálum ríkisins. Yfirvöld létu ekki liggja í láginni hvaða list væri Þjóðverjum samboðin og hver teldist úrkynjuð og skaðleg. Víða var listaverkum fargað á almanna- færi og úrkynjuð list höfð að spotti. Tónlistarlífið var ekki undanþegið. Tiltekin tónlist hvarf af efnisskrám. Óperuhús og hljómsveitir heyrðu beint undir ríkis- valdið og urðu að hlýða boðum þess. Hljómsveitar- stjórum, söngvurum og einleikurum var umsvifalaust sagt upp störfum að kröfu yfirvalda ef þeir þóttu á einhvern hátt ekki falla að menningarhugmyndum nasista. Tónlistarstofnanir misstu með þessu veiga- mikið sjálfstæði í rekstri sínum.47 Öfugt við önnur óperuhús í landinu hélt Bayreuth listrænu sjálfstæði sínu lengst af. Hitler sá sjálfur um að hátíðin starfaði ósnortin og undir afdráttarlausri stjórn Winifredar. Það er ekki þar með sagt að Hitler hafi horft á gyðinga stíga á stokk í þessu heilagasta tónlistarhúsi landsins athugasemdarlaust. Hann bað Winifred, bæði að eigin hvötum og þrýstingi annarra nasískra áhrifamanna í menningarmálum, að útiloka 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.