Sagnir - 01.06.2001, Page 54

Sagnir - 01.06.2001, Page 54
Meiri menntun en lítil breyting Upp úr seinna stríði komu svo nýmenntaðir leik- tjaldamálarar heim, Finnur Kristinsson og Sigfús Halldórsson. Finnur stundaði nám í alhliða leiksvið- stækni, ljósameðferð, leiktjaldasmíði og málum við leiklistardeild Ríkisháskólans í Iowa í tvö ár og lauk þar prófi. Hann dvaldist síðan um tíma í Chicago og New York og kynnti sér leikhúsmál þar. Sigfús fór á leiktjaldaskóla í Oxford, vann við leikhús þar í borg og um tíma við óperu- og balletthús í London og víðar. Þeir voru báðir styrktir til náms af Menntamálaráði.22 Menntuðum leikmyndateiknurum fór sem sagt fjölgandi um 1950 þó þeir væru teljandi á fingrum annarrar handar. Skilningur á starfi þeirra var ekki mikill og leiklistargagnrýnendur létu sér oft nægja að segja að leiktjöldin hafi verið smekkleg eða við hæfi. En menntun þeirra bjó vissulega til önnur viðmið en hér voru við lýði. Erlendis kynntust þeir hugmyndum um starf sitt sem sumar hverjar áttu ekki greiða leið á leiksviðið. Leikmunir úr sýningum Leikfélags Reykjavíkur á sýningu í kjallara Borgarleikhússins 1997. Árið 1950 hafði hins vegar fátt breyst í sviðslist- unum frá dögum Sigurðar. Þá, líkt og í upphafi aldarinnar, voru kröfur um raunsæjar og góðar leik- myndir í anda þess sem skáldin kváðu á um í sjón- leikjum sínum. Carl Lund, sem rak leiktjaldaþjón- ustu í Kaupmannahöfn var í raun meginviðmið íslenskrar leikmyndagerðar á fyrri helmingi aldar- innar. Leikfélag Reykjavíkur skipti við hann frá árinu 1905 og talið var að áhrifa hans hafi gætt hér fram í seinna stríð. Þetta voru tímar íburðar og raunsæis. Mikið skraut einkenndi sumar sýningar LR á þessum árum. Uppsetningar urðu oft dýrar.23 Kaflaskipti hjá Leikfélagi Reykjavíkur Um það leyti sem Magnús Pálsson kom til starfa kom Gunnar R. Hansen aftur til LR sem leikstjóri. Gunnar hafði að margra mati úrslitaáhrif um að Leikfélag Reykjavíkur hélt velli með tilkomu Þjóðleikhússins. Hann kom með annarskonar stíl- vitund og fegurðarskyn inn í íslenskt leikhúslíf í „kínverska“ leikritinu Pi-pa-ki, eða Söng lútunnar í Iðnó 1951. Halldór Þor- steinsson á vart orð til að lýsa hrifningu sinni á verkum Gunnars: „Gunnar R. Hansen mun eiga allan veg og vanda að ágæti þessarar leiksýningar. Við fslendingar stöndum í meiri þakkarskuld við þennan gagnmenntaða og snjalla leikstjóra en nokkurn annan núlifandi leikhúsmann. Yfirburði hans má bezt sjá af þeirri vandvirkni, nákvæmni og ótæmandi kunnáttu, sem prýða Öll þau verk, sem hann kemur nálægt.“25 Ennfremur segir í sömu grein um leikfélagið: „Hressandi andi og einlægur áhugi ásamt djörfung og tilraunaviðleitni virðast einkenna allt það, sem þessi félagsskapur [LR] tekst á hendur, enda munu fram- takssamir og smekkvísir leikhússmenn ráða þar mestu og ótrauðir og vongóðir leggja þeir út á ótroðnar brautir.“26 Loth- ar Grund málaði tjöldin í Pi-pa-ki. Hann ýmist málaði leiktjöld eða hannaði. Grund hafði mikil áhrif á leikmyndagerð hér á fyrstu árum atvinnuleiklistar, eins og þegar hefur komið fram, en starfaði meira fyrir Þjóðleikhúsið. Fagmennska í fyrirrúmi Lothar Grund gerði nokkrar leikmyndir fyrir Þjóðleikhúsið á árunum 1952-58, hannaði innréttingar, veggskreytingar o.fl. Um það leyti sem Grund kom hingað frá Þýskalandi voru leik- hús á meginlandi Evrópu óðum að rétta úr kútnum eftir hremm- ingar seinni heimsstyrjaldarinnar og með honum kom á margan hátt andblær nýrra tíma inn í íslenskt leikhús, hvað snertir verk- lag við hönnun leikmynda og aðferðir við útfærslu þeirra.27 Grund hannaði leikmyndina við Spádóminn eftir Tryggva Sveinbjörnsson í Þjóðleikhúsinu 1956. í leikdómi sagði m.a. að verk hans hefði nánast verið eini ljósi punkturinn í sýningunni: „Tjöld Lothars Grund og búningar vöktu mikla athygli og sér- lega þó tjöldin. Lothar er hreinn snillingur í fagi sínu og sýnir nær alltaf nýjar hliðar í listgrein sinni. Væntanlega nýtir Þjóð- leikhúsið sér vel þennan unga mann - sem nú varp sólargeisla yfir ákaflega drungalega og misheppnaða sýningu.“28 Leik- myndin byggðist upp á pöllum og baktjöldum. Gunnar R. Lothar Grund, Spádómurinn. Þjóðleikhúsið 1956. Magnús Pálsson kom svo heim úr námi í leikmynda- hönnun árið 1950. Honum var afar vel tekið þegar hann þreytti frumraun sína sem leikmyndateiknari á sviði Iðnós árið 1950 og fékk t.a.m. lófaklapp þegar tjöldin voru dregin frá fyrsta verki hans, Elsku Rut.24 Magnús átti eftir að hafa mikil áhrif á nútímavæð- ingu leikmyndlistar hér á landi. Bjarnason vann talsvert með Grund á þessum árum, enda var hann þá við nám í leikmyndagerð í Þjóðleikhúsinu. Að sögn Gunnars var það í fyrsta sinn sem þannig uppbyggð leikmynd er sett hér upp og hann bætir við að Grund hafi brotið hér blað í leikmyndagerð líkt og Gunnar R. Hansen hafði gert áður. 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.