Sagnir - 01.06.2001, Blaðsíða 60
undirbúið jarðveginn á löngum tíma, bæði fræði-
menn og starfandi leikhúsmenn. Á engan er hallað þó
að hér séu nefnd nöfn tveggja manna sem flestum
betur unnu að því að halda hugsjóninni á lofti á síð-
ustu öld, þegar áður en atvinnuleikhús var orðið að
veruleika, Lárusar Sigurbjörnssonar borgarskjala-
varðar og Haralds Björnssonar leikara. Lárus vann
ómetanlegt söfnunar- og skráningarstarf auk þess
sem hann skilaði merkum frumrannsóknum og skrif-
aði læsilegar greinar fyrir almenning. Haraldur hélt
til haga öllum gögnum um feril sinn, ritaði um málið
og dreymdi um að hús hans við Bergstaðastræti gæti
orðið aðsetur slíks safns í framtíðinni, þó að ekki séu
miklar líkur á að svo verði þegar þessi orð eru rituð.
Samtök um leikminjasafn eru þannig skipulögð
að tuttugu og eitt félag af ýmum toga, leikhús,
bandalög, stéttar- og fagfélög mynda saman eina
stóra stjórn sem kemur saman 3-4 sinnum á ári. Þessi
stjórn kýs síðan fimm manna starfsstjórn sem fundar
að jafnaði vikulega. Á því hálfa ári sem liðið er frá
stofnun samtakanna hefur starfsstjórnin lagt af
mörkum mikið starf sem allar vonir standa til að skili
áþreifanlegum árangri innan skamms tíma. Það verk-
efni, sem lögð er á megináhersla nú, er undirbún-
ingur sýningar í tilefni aldarafmælis Halldórs Lax-
ness á næsta ári, um tengsl hans og leiklistarinnar.
Sýna á frumsamin leikrit hans, leikgerðir verka hans
í ólíkum miðlum, áhrif leiklistarinnar á sjálfan hann
o.s.frv. Áætlað er að halda þessa sýningu í Þjóðmenn-
ingarhúsinu í nokkrar vikur á undan afmælisdeg-
inum og hafa í henni mikið ívaf lifandi leiklistar.
Halldór Laxness var, eins og margir miklir listamenn,
alvörugefinn grallari, tragískur spaugari. Leikhúsið
var honum vettvangur hugarflugs og leiks, ekki nat-
úralisma eða einfaldrar siðaboðunar og kannski var
það þess vegna sem hann varð sem leikskáld hálf-
gerður einfari í íslensku leikhúsi. Ymsar tilraunir
leikhúsfólks til að endurvinna verk hans fyrir leiksvið
og bíó hafa hins vegar jafnan átt forvitni og áhuga almennings
vísan, þó að árangurinn hafi ekki ætíð verið öllum að skapi.
Hundrað ára afmælið ætti að vera kjörið tækifæri til að viðra
ólíkar skoðanir á því.
Að öðru leyti leggur starfsstjórnin nú mest kapp á að hefja
söfnun og skráningu þeirra leiklistarminja sem má telja í mestri
glötunarhættu og er sannarlega enginn skortur á þeim. Komið
hefur verið á samstarfi við Sarp, skráningarkerfi Þjóðminja-
safnsins, og verður því haldið áfram eftir því sem starfið eflist.
Samtökin hafa komið sér upp starfsaðstöðu ásamt góðri
geymslu í húsnæði Reykjavíkurakademíunnar og geta því veitt
viðtöku ýmsum smærri einkasöfnum sem fólk vill koma í öruggt
skjól. Framtíðaraðstaðan er hins vegar ekki fundin, hvorki til
geymslu né sýningahalds. Þá er kynningarstarf mikilvægur
þáttur í starfi samtakanna og allt sem lýtur að því að minna á
og gera leiksöguarfinn sýnilegan á eins lifandi hátt og hægt er.
Sú tíð, þegar leiksögusöfn voru ekki annað en dauðar upp-
stillingar af gínum í gömlum búningum, ljósmyndir á veggjum
og annað þess háttar góss er löngu liðin. Miðlunartækni nú-
tímans gerir mönnum kleift að blása lífi í viðfangsefnið á allt
annan hátt en áður var. Þar hefur tölvutæknin valdið byltingu
sem opnar hugmyndaríkum safnamönnum ótal leiðir. Sum af
bestu leikminjasöfnum nágrannalanda okkar leitast ekki síst við
að höfða til barna og yngra fólks, m.a. með reglubundnu sam-
starfi við skóla sem senda nemendur sína í heimsóknir þar sem
þeir eru leiddir inn í heim leikhússins. En þessi söfn eru einnig
rannsóknamiðstöðvar í góðum tengslum við háskólastofanir,
því að leiklistarfræðin er auðvitað föst kennslugrein hjá flestum
háskólum, þó að svo sé ekki við Háskóla íslands. Þar á þarf
auðvitað að verða breyting hið snarasta og mætti m.a. undirbúa
jarðveginn með samvinnu milli leikminjasafnsins, þegar það er
orðið að veruleika, og háskólagreina eins og sagnfræði, bók-
menntafræði og íslensku. Gætu þá nemendur í þessum greinum
tekið að sér ýmis skráningar- og rannsóknarverkefni á safninu
og fengið þar undirstöðuþjálfun. Þannig væri hægt að leggja
grunn að raunverulegri íslenskri leikhúsfræði sem okkur skortir
sárlega nú.
Stjórn og starfsstjórn Samtaka um leikminjasafn
Starfsstjórn, kosin á fyrsta stjórnarfundi 15. maí 2001:
Aðalstjórn er þannig skipuð:
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, fyrir Rithöfundasamband íslands
Ari Kristinsson, fyrir Framleiðendafélagið / SÍK
Benóný Ægisson, fyrir Leikskáldafélag íslands
Björn G. Björnsson, fyrir Félag leikmynda- og búningahöfunda
Geir óttarr Geirsson, fyrir íslensku óperuna
Helga Steffensen, fyrir brúðuleikhússamtökin Unima á íslandi
Hjálmtýr Heiðdal, fyrir Félag kvikmyndagerðarmanna
Ingibjörg Björnsdóttir, fyrir Félag íslenskra listdansara og ísl. dansflokkinn
Jón Viðar Jónsson, fyrir Félag leiklistarfræðinga
Jón Þórisson, fyrir Leikfélag Reykjavíkur
Magnús Geir Þórðarson, fyrir Bandalag sjálfstæðra leikhúsa og Leikfélag íslands
ólafur J. Engilbertsson, fyrir Ríkisútvarpið
Pétur Eggerz, fyrir Assitej á íslandi (barnaleikhússamtök)
Pjetur Stefánsson, fyrir Samband íslenskra myndlistarmanna
Stefán Baldursson, fyrir Þjóðleikhúsið
Stefán Jónsson, fyrir Félag íslenskra leikara
Sveinn Einarsson, fyrir Félag leikstjóra á íslandi
Sigurður Hróarsson, fyrir Leikfélag Akureyrar
Tryggvi M. Baldvinsson, fyrir Félag ísl. tónlistarmanna, FÍH og Tónskáldafélag íslands
Vilborg Valgarðsdóttir, fyrir Bandalag íslenskra leikfélaga
Formaður:
Varaformaður:
Ritari:
Gjaldkeri:
Meðstjórnandi:
ólafur J. Engilbertsson, leikmyndahöfundur,
ole@binet.is
sími 698-7533.
Sveinn Einarsson, leikstjóri,
sveinn.einarsson@mrn.stjr.is,
sími 551-4032.
dr. Jón Viðar Jónsson, leiklistarfræðingur,
sími 863-6437.
Björn G. Björnsson, leikmyndahöf.,
listsaga@mmedia.is,
sími 892-8441.
Jón Þórisson, leikmyndahöfundur,
minus@mmedia.is, 552-1892.
Samtökin hafa aðsetur í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar að
Hringbraut 121 á 3. hæð. Starfsstjórn kemur jafnan saman á
þriðjudögum kl. 17:00. Jón Viðar Jónsson er í hlutastarfi hjá
samtökunum og veitir allar nánari upplýsingar um verkefni þeirra.
Kennitala:
Aðsetur:
Póstáritun:
Banki:
Netfang:
Sími:
570501-2320
Hringbraut 121, 3. hæð, 107 Reykjavík.
Pósthólf 1603, 121 Reykjavík.
íslandsbanki, Lóuhólum, reikningsnúmer
537-26-269412
leikminjar@akademia.is
511-2324
58