Sagnir - 01.06.2001, Síða 106

Sagnir - 01.06.2001, Síða 106
Banks, helsta velgjörðarmanni íslands í Englandi, bréf þann 8. ágúst 1812. í því sagði hann að það gæti ekki verið ósk neins heiðsvirðs íslendings að ísland félli Bretlandi í skaut, „whereas Iceland finds itself happy under the sceptre of its lawful sovereigns, our most gracious Kings of Denmark and Norway...“77 Meira að segja Helgi P. Briem, sem reynir eftir fremsta megni að sýna fram á að telja beri Island sem sjálfstætt ríki árið 1809, kemst að eftirfarandi niður- stöðu: „Þó að Magnús og Stefán Stephensen skoðuðu sig sem innborna Islendinga, voru þeir þó fyrst og fremst trúir þegnar konungs.“78 Þegar ásakanir Trampes, helsta óvildarmanns Magnúsar, eru dregnar saman og athugaðar gaum- gæfilega standa því í rauninni einungis þær um að Magnús hafi sagt ósatt um bréfaskrif sín til Jörgen- sens og að hann hafi hugsanlega gerst sekur um dóm- greindarleysi þegar hann leyfði eða fyrirskipaði prentun auglýsinga hans. Vitaskuld liti það betur út ef Magnús hefði einfaldlega axlað ábyrgðina á þessum meintu gjörðum fremur en að standa í ein- hverju leynimakki. En eftir stendur að þessi brot hans eru ekki stór og hægt er að efast um að það hefði breytt miklu til betri vegar hefði hann hegðað sér öðruvísi. Um Trampe stendur það að í júní 1809 hegðaði hann sér langt frá því sem skynsamlegt getur talist og má telja seinagang hans við að birta samn- inginn við Nott sem eina helstu orsök valdaránsins.79 í ljósi þess verða ásakanir hans í garð Magnúsar og þær móðganir sem þeim fylgja síst merkilegri en yfir- hylmingar Magnúsar sjálfs. Skemmst er frá því að segja að Magnúsi tókst ekki að hreinsa sig fyllilega af hinum ýmsu ásökunum sem á hann voru bornar, þótt málið hafi opinberlega fengið þann endi að það hafi honum tekist. Áður en Magnús fór frá Kaupmannahöfn 1816 var hann sæmdur nafnbót konferensráðs og var einnig hreins- aður af öllum ásökunum Trampes.80 En grunsemd- irnar um óheiðarleika hans lifðu áfram og lifa enn í dag.81 Rétt áður en Magnús dó birtist í Kjöbenhavn- posten „spurningar til úrlausnar fyrir þá sem vel eru að sér“ en þær voru þess eðlis að Magnús var með þeim óbeint sakaður um að hafa sagt frá liðssafnaði ísleifs og að hafa vitað af prentun auglýsinga Jörgen- sens.82 Jón Þorkelsson telur að með varnarritinu hafi „máli þessu [lokið] með öllu“.83 En það fer nær sann- leikanum að segja að því hafi í raun aldrei lokið. Ingi Sigurðsson orðar það svo að „upp frá þessu [1809- 1810] naut hann minni hylli hjá dönskum stjórn- völdum en áður“,84 og Bjarni Thorsteinsson segir í sjálfsævisögu sinni: Enda þá [mars 1816] var M. St. búinn að missa mikið af áliti sínu og áhrifavaldi, og studdi eigi lítið að því allt Jörgensens standið á íslandi 1809... Þar við bættist, að allt kans- ellíið, ekki sízt Örsted - og rentukammerið líka, var orðið honum svo gersamlega frá- snúið, að ég hefði aldrei getað trúað því, ef ekki hefði verið heyrnarvottur að því dags daglega.85 Niöurlag Eftir tíu mánaða starf í embætti stiftamtmanns, sem var að minnsta kosti fullnægjandi ef ekki mjög árangursríkt, var Magnús settur af, að því er virðist einungis vegna persónulegrar óvildar Trampes stiftamtmanns í hans garð. Trampe sakaði hann um sviksemi og lygar og jöðruðu ásakanir hans við drott- insvik. Þótt ekki sé fullkomlega hægt að sanna mál Trampes, virðist það engu að síður hafa átt við einhver rök að styðjast. En þau rök voru fá og bentu einungis til sektar Magnúsar í smá- vægilegum málum. Allar alvarlegri ásakanir voru út í hött. Sorglegt er að segja frá því en allt útlit er fyrir að örlítil hrein- skilni, líkt og sú sem Stefán bróðir hans sýndi undir sömu kring- umstæðum, hefði getað haldið mannorði Magnúsar að mestu leyti hreinu. Eftir sumarið 1809 bar Magnús Stephensen aldrei fyllilega sitt pólitíska barr á ný. Færa má rök fyrir því að veturinn 1809- 1810 hafi verið hápunkturinn á pólitískum ferli hans. Hann var þó mikið meira en stjórnmálamaður og hann var engan veginn dæmdur úr leik í íslensku menningarlífi. En þetta mál allt drap ekki aðeins möguleika hans á pólitískum frama heldur minnkaði vægi raddar hans í opinberri stefnumótun talsvert. Tilvísanaskrá: 1 Svo lýsti Englendingurinn Sir George Steuart Mackenzie þeim umskiptum sem urðu á stjórn íslands er Magnús Stephensen var settur af sem stiftamtmaður en hann var hér staddur í vísindaleiðangri sumarið 1810. (George Steuart Mackenzie, Travels in the Island of Iceland, during the summer of MDCCCX. Edinburgh, 1812, bls. 146). 2 „Bjarni Thorsteinsson, skráð af honum sjálfum.“ Merkir íslendingar. Ævisögur og minningargreinar II. Reykjavík, 1947, bls. 263. 3 Dansk biografisk leksikon XIV. Kaupmannahöfn, 1983, bls. 666-667. 4 „Bjarni Thorsteinsson, skráð af honum sjálfum.“ Merkir íslendingar, II, bls. 276. 5 Páll Eggert ólason, íslenzkar æviskrár, frá landnámstímum til ársloka 1940 II. Reykjavík, 1950, bls. 400-401. 6 Ingi Sigurðsson, Hugmyndaheitnur Magnúsar Stephensens. Reykjavík, 1996, bls. 61 7 Jón Espólín, íslands árbækur í sögu-formi XII deild. Kaupmannahöfn, 1855, bls. 29. 8 Helgi P. Briem, Sjálfstæði fslands 1809. Reykjavík, 1936, bls. 309. 9 Helgi P. Briem, Sjálfstæði íslands 1809, bls. 312-315. 10 Helgi P. Briem, Sjálfstæði íslands 1809, bls. 234-235. 11 Helgi P. Briem, Sjálfstæði íslands 1809, bls. 196-197. 12 ísleifur var grunaður um að safna liði gegn Jörgensen, og átti að hafa beðið aðstoðar Magnúsar Stephensens til þess. Jörgensen og Hooker sögðu síðar að Magnús hefði þá Ijóstrað upp um áform ísleifs. Helgi P. Briem fjallar um málið í Sjálfstæði íslands 1809, bls. 220-230, og Jón Þorkelsson í bók sinni Saga Jörundar Hundadagakóngs, bls. 52-55. Líklega er þó bestu umfjöllunina um það að finna í ritgerð Valgerðar Johnsen, „Magnús Stephensen. Velgjörningar og ódæðisverk sumarið 1809“, námsritgerð í námskeiðinu Sumarið 1809 við sagnfræðiskor H.í. (1999). í henni er kenningum Helga P. Briem alger- lega hafnað og færð sterk rök fyrir því að Magnús hafi átt óbeinan þátt í handtöku ísleifs en af illri nauðsyn og með hagsmuni landsins að leiðarljósi. 13 Helgi P. Briem, Sjálfstæði íslands 1809, bls. 375-377. 14 Yfirlýsingin er birt í bók Jóns Þorkelssonar, Saga Jörundar Hundadagakóngs. Kaup- mannahöfn, 1892, bls. 172-173. 15 Jón Þorkelsson, Saga Jörundar Hundadagakóngs, bls. 86. 16 Varnarrit þetta var samið til að „hrinda þeim bakslettum og undirróðri“ sem Magnús taldi sig hafa orðið fyrir eftir að hann lét af embætti. Um það verður fjallað meir síðar. (Birtist fyrst í íslenskri þýðingu sem, Magnús Stephensen, „Varnarrit Magnúsar Etatsr. Stephensens afhent Kaas dómsmálaráðherra í Kaupmannahöfn 19. september 1815“, ísafold, 1882, nr. 2 og 4, bls. 5-8 og 13-15. Frumritið er í Rigsarkivet, Rtk. 373.133). 17 Innrihólmur á Akranesi, þar bjó Magnús. 18 Hér er e.t.v. um misminni að ræða hjá Magnúsi, því 6. júlí 1809 var fimmtudagur en ekki mánudagur. En líklega er um villu sé að ræða í ísafoldarútgáfunni, þar sem Helgi P. Briem segir: „Fyrsta mánudaginn í júlí (þ. 3).“ (Helgi P. Briem, Sjálfstæði íslands 1809, bls. 223). Þar vitnar hann í útgáfu ísafoldar. 19 Magnús Stephensen, „Varnarrit“, bls. 7. 20 Landsyfirrjettardómar og hæstarjettardómar í íslenzkum málum 1802-1873, Klemens Jónsson sá um útgáfuna, I 1802-1814. Reykjavík, 1916-1918, bls. 311. 104
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.