Sagnir - 01.06.2001, Síða 113
Hagsaga íslands
Titill: „Islands Udvikling 1885-1902.“ Og.:
„Grafisk Fremstilling af Islands Udvikling.
Udarbejdet af Thor E. Tulinius i Anledning af
den Islandske Udstilling, Kjobenhavn 1905.“
Á bakhlið er fálkinn á skjaldarmerki og stimpill
sýningarinnar. Útg. ekki tilgreindur.
Borgarskjalasafn
orMiU I niMUUiRi *l Itum. if
Ib»r I Tul>ni>» l IÍLAKUSKK (HMTIUJNC,
Mæðgur
Madame Lebrun og hendes Datter.
Erlent, 1921. Þessi mynd hékk
víða uppi á íslenskum heimilum á
öndverðri öldinni.
Borgarskjalasafn
málastjórn og einstaklingum. Eftir 1906 voru þau gjarna tví-
skipt á bakhlið. Annars vegar nafn og heimilisfang viðtakanda,
hins vegar texti. Á stríðsárunum 1914-18 jókst framleiðsla
íslenskra korta. Undir iok þess tímabils komu til sögunnar þjóð-
legu kortin og vísnakortin tvískiptu sem Helgi Árnason hús-
vörður í Safnahúsinu hóf að gefa út. Þau voru tækifæriskort,
svo sem jólakort, nýárskort, fermingarkort og afmæliskort, og
urðu feikivinsæl.
Póstmálastjórnin gaf út bréfspjöld í byrjun aldarinnar og allt
framundir 1920. Þau voru með skreyttum bekk á hliðinni sem
ætluð var undir nafn og heimilisfang viðtakanda, en auð á hinni
hliðinni, textahliðinni. Frá maímánuði árið 1900 hafa varðveist
kort þar sem farið var að prenta mynd á auðu hliðina. Stundum
var hún lítil, en öðrum stundum fyllti hún nálega flötinn og
skyldi þá skrifa textann undir myndina.10
Póstkortaútgefendur
Fyrstu póstkortaforleggjarar á íslandi, upp úr aldamótum 1900,
eru taldir vera þeir Jón Vestdal, Ólafur Johnson, síðar stórkaup-
maður, og Carl Finsen, síðar vátryggingaforstjóri. Fyrsta póst-
kort með mynd sem gefið var út hérlendis er hugsanlega kort
sent Carli Finsen 1. maí 1900.11 Þar segir: „Lukkuósk i tilefni af
Ljósmyndakort
Strætisvagnar á hraðferð upp Bankastræti. Ljósmynd máluð.
Titill: „Reykjavík.“ Áferð silkikennd. Útg.: S. Guðm. Handlitað. Ca 1930.
Höfundur
6. Maj 1900“. Sendandi er Gunnþórunn Jónsdóttir. Sé þetta
fyrst þeirra þúsunda póstkorta, sem komu í kjölfarið, er
myndefnið vel við hæfi, svo geysivinsæl sem kortin urðu. Kortið
sýnir Geysi að gjósa gríðarlegum gufustrók. Annað póstkort
dagsett sama dag sýnir Heklu spúandi eldi og eimyrju. Kortin
eru varðveitt í Benediktssafni í Þjóðarbókhlöðu.
í Benediktssafni er einnig að finna bréfspjald með þremur
myndum, texta á framhlið og áletruninni „Kveðja frá Þing-
völlum“.12 Það er sent 22. júní 1903 til Carls Finsens.
Mun það vera meðal fyrstu íslenskra korta, sent af
fyrsta póstkortaútgefanda á íslandi, Ólafi Johnson. Á
kortinu segir hann, svo undarlega sem það hljómar í
júní: „Gleðilegt ár!“ Kort af þessu tagi eru dæmigerð
fyrir frumherjaskeið innlendra póstkorta: tvær eða
þrjár myndir á framhlið ásamt skilaboðum og kveðju
frá íslandi, Þingvöllum eða öðrum merkisstöðum.
Ofangreindir félagar unnu allir við verslunarstörf
og notuðu frístundirnar til frekari fjáröflunar.
Kveður Ólafur ágóðann af kortasölunni vera meiri en
nemi launum fyrir aðalstarf hans. Svipaða sögu hafði
Carl að segja. Fyrir ágóðann af kortasölunni dvaldist
hann um þriggja mánaða skeið í útlöndum. Jón
Vestdal var uppeldissonur Sigfúsar Eymundssonar,
sem síðar gaf út fjölda korta. Ólafur Hvanndal varð
fyrstur til að gera prentmyndir hér á landi. Nemandi
hans var Vikon Hjörleifsson sem lengi þjónaði Morg-
unblaðinu.13 Þeir hljóta að hafa haft áhrif á korta-
prentun hérlendis.
Kortin voru i fyrstu prentuð í Þýskalandi, en
seinna meir í prentsmiðjum Gutenbergs í Reykjavík,
Davíðs Östlunds á Seyðisfirði og víðar. Víkingsprent
prentaði einnig kort. Jón Vestdal lét einungis gera
eina tegund korta sem prentuð var í 500 eintökum,
en þeir Ólafur og Carl munu hafa haft fleiri tegundir
á boðstólum, og var upplag þeirra jafnan 1000 ein-
tök. Myndirnar voru frá Þingvöllum, Geysi, Gullfossi
og allnokkrar frá Reykjavík og fleiri stöðum. Flestar
þeirra tók Sigfús Eymundsson ljósmyndari. Sum
kortanna eru skreytt þremur myndum með teiknuðu
blómaflúri í kring. Þessi kort voru prentuð í Þýska-
landi, og kostaði 15 mörk að prenta þúsundið eða
1,3 eyri á kort.14 Fyrstu kortin voru í svarthvítu, en
síðar voru þau einnig prentuð í lit. Þeir félagar seldu
kortin í umboðssölu, og urðu þau á skömmum tíma
ákaflega vinsæl, enda handhæg fyrir margskonar
orðsendingar. Kom þar til lægra burðargjald en fyrir
venjuleg sendibréf, en fólki þótti líka mikill fengur í
fjölbreytilegu myndefninu.
Alls munu þessir fyrstu póstkortaforleggjarar
hafa gefið út um 80 tegundir korta og þá flest svart-
hvít. Þegar ljóst varð að kortasalan var fundið fé, var
þess skammt að bíða að aðrir fetuðu í fótspor þeirra.
Má meðal annarra nefna Einar Gunnarsson, Magnús
Ólafsson, Helga Árnason, Gunhild Thorsteinsson,
Thomsens Magasín og Egil Jacobsen, stundum í sam-
vinnu við Björn Kristjánsson. Sé tekið dæmi af þeim
síðastnefnda, þá hafði hann mörg járn í eldinum.
Björn kom mikið við stjórnmálalíf Reykvíkinga á
öðrum áratug aldarinnar. Hann lærði skósmíði, orti
111