Sagnir - 01.06.2001, Page 114

Sagnir - 01.06.2001, Page 114
Auglýsingarkort Kona á klettasnös með blaktandi fána á stöng. Teikning, máluð. Áritun: „Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékkst hann. Eflið íslenskan iðnað. Álafoss.“ Listam.: Muggur (Guðmundur Thorsteinsson), merkt G Th. 1921. Útg. ekki tilgreindur. Borgarskjalasafn 'toupWu cóíaa hlul. *f«i imuiilti hvnr |m írhkM Skúla Thoroddsen flaggað Fánastöng með blaktandi bláhvítum fána og þar á er ljósmynd af Skúla Thoroddsen. Skjaldarmerki sýnir hvítan fálka á bláum grunni. Áritun: „ísland fyrir íslendinga.“ Og: „Sú er krafa mín, að ísland sé fullveðja ríki, og ráði að fullu öllum sínum málefnum, og njóti í alla staði jafnréttis við Danmörku, og sé aðeins við hana tengt með sameiginlegum konungi. Skúli Thoroddsen.“ Útg.: A.J. Johnson, Winnipeg, 1909. Prentsmiðja O.S. Thorgeirssonar. Handlitað. Benediktssafn kvæði, stundaði rannsóknir og gróf eftir málmum í Esjunni. Hann verslaði með vefnaðarvöru, leðurvöru og pappírsvöru. Loks einbeitti hann sér að rit- fangaverslun. Hann var þingmaður Gullbringu- og Kjósarsýslu og bankastjóri Landbankans um skeið eða fram undir 1930. Hann bjó á Vesturgötu 4, hæðinni fyrir ofan ritfangaverslunina,15 þar sem hann seldi kortin sín. Póstkortaútgefendur á íslandi hafa sennilega ver- ið á þriðja hundrað talsins. Vitanlega ýtti það undir samkeppnina að gera betri kort. Eitt kort sent Carli Linsen í Hafnarfirði 1903 er frá Ólafi Johnsen. Þar segir: „Þessi mynd af Þingvöllum ætti að seljast vel.“ Á öðru korti frá Ólafi stendur: „Korta-business gengur vel, töluverður concurrence.1115 Thomsen kom að máli við þá félaga Carl og Ólaf og vildi kaupa af þeim allar birgðir þeirra og einkarétt á útgáfunni. Vildi hann borga fyrir upplögin sem svaraði tveimur og hálfum eða þremur aurum stykkið. Voru þeir ófá- Landnámsfcrð Ingólfs Arnarsonar til íslands Leiðarstjarna á lofti, öndvegissúla í hafi fyrir stafni. Teikning. Titill: „Landnáms-ferð Ingólfs 874, Landsýn í hillingum.“ Áletrun: Úr ljóði og hugleiðingar Samúels. Listam.: Samúel Eggertsson, merkt: S.E. í des. 1912. Útg.: Samúel Eggertsson. Handlitað. Benediktssafn anlegir til þess arna, sem leiddi til þess að Thomsen fór sjálfur að gefa út kort.17 Kortin sem prentuð voru erlendis voru iðulega með prentvillum. Einnig er rangt farið með nöfn þekktra staða. Á íslenskum kortum prentuðum erlendis kom p í staðinn fyrir þ og o eða d fyrir ð. Aftan á sumum erlendu kortanna stendur einungis Import. Áðurnefndur Helgi Árnason var umsvifamikill í kortaútgáfu. Hann gaf út 350 tegundir korta, auk jóla- og tækifæriskorta sem flest voru skreytt af Steindóri Björnssyni frá Gröf. Sjálfur var Helgi hönnuðurinn og kom fram með ýmsar nýjungar í útliti og gerð korta umfram keppinauta sína. Aðrir sem létu mjög til sín taka í kortaútgáfu voru þeir Egill Jacobsen og Björn Kristjánsson, sem gáfu út 240 mismunandi kort. Baldvin Pálsson í Pennanum gaf út 200 teg- undir korta. Þeir Helgi og Baldvin voru stórtækastir þegar líða tók á öldina, og var Baldvin ívið lengur að. Helgi lét prenta sín kort í Þýskalandi og Danmörku. Til að mynda er kort sem ber titilinn „Til Fánans" prentað í Danmörku. Umboðs- og heild- verslunin Ó. Johnson &c Kaaber var um langa hríð umsvifamik- ill kortaútgefandi, en gaf að auki út litprentaðar myndir frá Ólympíuleikunum í Berlín 1936. Carl Finsen seldi versluninni sinn hlut í kortagerðinni fyrir 1500 krónur. Á fyrri hluta síðustu aldar gáfu nokkur erlend fyrirtæki út kort með myndum frá Islandi. Voru það einkanlega Frakkar og þá með myndum af fiskveiðum þeirra hér við land. Danir gáfu út póstkort með myndum frá konungsheimsókninni 1921. Eitt kort sem Danir gáfu út er ljósmynd af Danadrottningu, senni- lega Alexandrínu, í íslenskum skautbúningi. Skipafélög eins og Hapag í Hamborg og Norddeutscher Lloyds í Bremen, sem áttu skemmtiferðaskip í förum um norðurhöf og höfðu viðkomu hér, gáfu út póstkort með Islandsmyndum.18 íslensk póstkortaútgáfa á fyrri hluta aldarinnar einkenndist af miklum sveiflum en hún var að stórum hluta bundin við komur erlendra ferðamanna til landsins. Tvær heimsstyrjaldir drógu tímabundið úr útgáfunni. Þýsk skip tóku að venja komu sínar hingað kringum 1925, en hurfu aftur í seinni heims- styrjöld. Skipaferðir komust aftur í eðlilegt horf kringum 1950. Kortaútgáfan var blómleg á árunum 1905-14 og 1922-39, en síðan nokkuð samfelld. Á fyrra skeiði komu eitt til tvö skip á hverju sumri og ferðamenn 3-400 talsins. Einar Gunnarsson kortaútgefandi segir árið 1905: „I sumar hafa komið hingað ferðamenn með fleira móti. Meðal annars komu Þjóðverjar um miðjan f.m. til Reykjavíkur á tveimur skipum afarstórum, „Fúrst Bismarck“, sem er 8300 smálestir, og „Hamborg“, sem er 10500 smálestir. Þetta eru stærstu skipin sem til landsins hafa komið; voru á hinu fyrrtalda um 140 ferðamenn en um 300 á hinu.“19 Sumir kortaútgefendur, eins og Þórður Sveinsson & Co, gáfu út 100 mynda röð á fjórða áratug aldarinnar af íslensku lands- lagi, mannvirkjum og bæjum. Kortin voru númeruð á framhlið og bæir og staðir tilgreindir. Helgi Árnason gaf til dæmis út „Kveðju frá Islandi", safn 25 smámynda, og voru allar mynd- irnar póstkort sem hann hafði gefið út. Söfn póstkorta sem ratað hafa inn á opinberar stofnanir, s.s. Þjóðminjasafn íslands, Landsbókasafn íslands - Háskólabóka- safn og Borgarskjalasafn Reykjavíkur eru upprunalega einka- söfn einstakra manna. Mörg korta úr söfnum þessum eru verð- mæt, sökum sérstöðu, fágætis eða listfengis. Kort með hjóla- skipi á Eskifirði þykir mikið hnoss. Það er talið elsta kort með íslensku myndefni, trúlega frá lokum 19. aldar, sennilega 112
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.