Sagnir - 01.06.2001, Síða 125

Sagnir - 01.06.2001, Síða 125
[rof er rof er rof] Listin á sér ekki landamæri í sama skilningi og við tölum um landfræðileg mörk þjóða. Kvikmyndin á sér engin slík mæri, ekki einu sinni þau sem fræðimenn hafa sett upp og kalla kvik- myndagreinar eða genre. Kvikmyndagerðarmenn þverbrjóta iðulega þau mörk sem eru á kreiki í þeim tilgangi að þjóna list- rænum metnaði og búa í annarskonar veröld. Mörkin eru „góð til að hugsa með“ einsog Levi-Strauss hélt fram að dýr væru notuð í menningu frumbyggja. Það er aftur á móti andstætt listinni og fræðimennsku að taka mörk sem gefin eða tekin í merkingarlega tölu dýrlinga. Kvikmyndalistin er í þeim skilningi andstæð „dauða“ þess sem er orðið sjálfsagt og enginn hefur fyrir því að spyrja um hvers vegna. [rof er rof er rof] Ég hef ekki ennþá lesið skrif eftir íslenskan gagnrýnanda á síðum dagblaðanna sem tekur starf sitt „dauðans" alvarlegar en svo að standa skil á umsögnum um kvikmyndir á umsömdum tíma. Gagnrýnandinn er ekki að horfa á listaverk og deila þeirri reynslu með okkur, greina listræna sýn verksins, setja það í sam- hengi við stefnur og strauma í samtímanum og benda á listræn tog. Þess í stað fáum við hraðsoðnar umsagnir um kvikmyndir, hvort sem þær eru erlendar eða innlendar. Hugsið ykkur, öflug- asta menningartæki samtímans, sjónvarpið, þessi „ruslakista kvikmyndanna“ eins og Þorgeir Þorgeirsson kallaði það í útvarpsviðtali árið 1991, það á sér engan vettvang gagnrýnnar umræðu. Hvað þá að verið sé að ræða um innihald þess á list- rænum nótum. Það er eins og list sé ekki að finna í þessum svörtu kössum sem glóa. Kannski minnir sjónvarpsboxið okkur alltof mikið á líkkistur til þess að koma til álita sem vettvangur líflegrar menningarmiðlunar. [rof er rof er rof] í nýlegri bók eftir Bandaríkjamanninn Paolo Cherchi Usai, The Death of Cinema: History, Cultural Memory and the Digital Dark Age, fjallar hann um þá útópísku draumsýn nútíma- mannsins að kvikmyndalistina sé hægt að varðveita um ókomna tíð. Því miður er það stór misskilningur hjá alltof mörgum, líka þeim sem vinna á söfnum og það fyrir fræðimönnum ægileg sannindi. Við lifum á tímum safnahugsjónarinnar þar sem söfn- unarárátta 19. aldar manna er að ná hæstu hæðum. Aldrei sem fyrr hefur jafnmiklu verið safnað úr ranni mannsins, né heldur verið eytt jafnmikið af peningum almennings til þess að varð- veita menningarminjar. Skal þá bera einhvern kvíðboga fyrir mætti eyðingarinnar? Ég held ekki. Það má segja að líkt og forn- leifafræðingar komast bærilega af í sinni kenningarsmíð með sínar fátæklegu vísbendingar, þá séu lífdagar annarra fræði- manna sem einhvern áhuga hafa á kvikmyndalistinni nokkuð blómlegir. í það minnsta hafa þeir bókmenntir að styðjast við, en þar hefur hver bókin á fætur annarri verið skrifuð, þar sem sögu rúmlega 100 ára sögu kvikmyndarinnar er lýst. Svo má ekki gleyma mónógrafíum eða viðtalsbókum um einstaka kvik- myndir eða staka leikstjóra með listrænar sýnir. Hið sama gildir um fátæklega skrifaðar heimildir eða rannsóknir sem gerðar eru á íslenskri kvikmyndalist. Ekki má heldur gleyma fjölmiðlaum- ræðunni, útvarpsviðtölunum, sjónvarpsviðtölunum og prent- máli dagblaðanna. Þessir bautasteinar liggja á lausu fyrir kvik- myndafornfræðinga eitthvað fram eftir þessari öld. En er þeir falla fyrir tönn tímans verð ég kominn í blúndulagða samfellu, flögrandi um með hvítum vængjum. 123
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.