Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 86

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 86
216 HELGAFELL menn kjósa mikla hlutlægni í málfari og stíl, þó að sífelldur áhrifastíll hljóti að verða nokkuð þrejdandi, jafnvel þó að liann snúist sjaldan yfir í algjöran heimilis- blaðastíl („Armar hans fóru utan um hana, varir þeirra læstust saman, heitt og fast og sogandi . . En þegar kemur að persónu- sköpun, sjálfum innviðum sögunnar, er skortur á hlutlægni hættulegur. Hlutlægni í persónugerð í trúverðugri skáldsögu er í því fólgin að láta persón- urnar lýsa sér frá i'Ieiri en einni hlið með orði sínu og æði, en í reyfurum sjást per- sónur yfirleitt ekki nema frá einni hlið; þær eru flatar myndir, en auðkenndar á ein- hvern hátt, svo að þær þekkjast. Okkur er t. d. nóg að vita um mann í reyfara að hann sé feitur til þess að hann lifi í sög- unni, af því að við höfum löngu sam- þykkt, að „feiti maðurinn“ hafi tiltekna eiginleika í sögu. TJtan sögunnar hefir hann ekkert líf. En í bókmenntalegri sögu verð- ur persóna, eða að minnsta kosti höfuð- persóna, að vera lífsönn. Hún þarf að geta stigið út úr sögunni og til þess þarf hún, ef svo má til orða taka, að geta sézt öllum megin. Aukapersóna má gjarnan vera flöt mynd. I Virkisvetri eru ýmsar aukapersónur vel hlutgengar, enda þótt þær séu einungis flatar myndir. Gallinn er hins vegar sá, að söguhetjurnar eru af sömu gerð. Solveig Björnsdóttir er ekkert annað en stolt kona, sem elskar í meinum, en hefir engin sérkenni. Hún er allar konur, sem hafa elskað í meinum og þess vegna engin þeirra. Slíkt mætti þó viðgangast, ef Andrés, sem höfundur ætlar að bera uppi söguna, væri ekki alveg sams konar persónugerð. Jafnvel þó að höfundur leggi sér upp í hendur þann vísi að flókinni manngerð og tragískum örlögum, að And- rés er óskilgetinn höfðingssonur og sætir hrakningum fyrir þá sök, forðast hann með öllu að láta þennan vísi skjóta rótum í sálarlífi Andrésar og gefa sögunni þannig dramatíska spennu. Örlög alls þessa fólks ráðast. af ytri atvikum eins og í reyfara. Með öðrum orðum: atburðarás sögunnar er einfaldlega sú tegund drama, sem nefnist melódrama (og á sér reyndar ekki ómerka fortíð). Allt væri samt með felldu og ekkert við þetta að athuga, ef höfundur væri sjálfum sér samþykkur um það, að hér er á ferðinni reyfari, en væri ekki sí- íellt að bera á móti því með hábókmennta- legum stíl (bæði í góðri og slæmri merk- ingu) og með því að tala um persónur sín- ar og sálarlíf þeirra eins og þær væru miklu dýpri og fjölþættari manngerðir en raun ber vitni. Fyrir bragðið verður saga hans ekki skemmtilegur reyfari heldur einungis vel skrifaðar gervibókmenntir. K. K. Það er almenn skoðun, reist á misskilningi eða PÉTURSSON misminni, að æskuljóð skálda séu yfirleitt hrá, ófáguð og tilfinningasöm. Venjulega eru þau hljóðlát, fáguð og dauf, af því að unga menn brestur kjark. Auk þess heyrir hverj- um aldri að einhverju leyti sitt jafnvægi og fullkomnun. En þessi hugmyndarugl- ingur stafar einkum, að því er virðist, af óvitaðri tilhneigingu til að leggja skáld- skap undir lögmál hegðunar. Þegar Kvœðabók Hannesar Péturssonar kom út, 1955, var hann að vísu orðinn 24 ára, en einhverjir þeirra, sem máls vöktu um bókina höfðu engu að síður áhyggjur af því, hve hann væri orðinn fullorðins- legt og agað skáld af svo ungum manni að vera. Hafði hann möguleika til frekari þroska? Með öðrum orðum: Var eðlilegt og réttlátt, samkvæmt mannfélagslegu vel- sæmi, að ungur maður væri svona gott skáld? Þannig hafa hin gömlu og notalegu ritdómarahugtök, „fyrsta bók“ og „ungt skáld“ („ungskáld“ er farið að segja nú- orðið í róttækari blöðum) hlaðið utan um sig íyrir slóðalega notkun margri hugmynd, sem ekkert kemur skáldskapargildi við. Ef ritdómari gleymir ekki með öllu því verkefni, sem ngest liggur, að freista að skil-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.