Helgafell - 01.10.1946, Page 46

Helgafell - 01.10.1946, Page 46
228 HELGAFELL Flóanum. heldur skuggalegur og ekki mjög greindur, vel efnaður, féspar og ið- inn, en honum er illa við allar nýjungar og vill halda öllu í hinu gamla horfi. Onundur er meðalmaður á vöxt, ljós og grannur, spjátrungur, fljót- greindur, en yfirborðsmaður. Hann er þorpsbúi af Seltjarnarnesi og hefur drukkið í sig skoðanir, sem hann heldur að séu ríkjandi í höfuðstaðnum. Fyrirlítur allt, sem er íslenzkt, en stælir það, sem útlent er. Hann notar óspart erlend orð og oftast afbökuð. Þessar persónulýsingar ollu tímaritinu nokkrum óvinsældum og andstöðu, því margir urðu til þess að trúa því, að þeim væri beinlínis stefnt gegn þeim héruðum, sem hinir tveir síðasttöldu voru frá, en þessu neitaði Baldvin afdráttarlaust og kvað hér vera aðeins að ræða um lýsingar á ólíkum gerðum manna, sem mætti finna hvarsem væri. í samtölunum í Sýnishorni var skýrð stefna ritsins. Hún var sú fyrst og fremst að koma þjóðinni til skilnings um það, að menntunin væri sérstaklega mikil- væg fyrir hana. Það væri höfuðnauðsyn að annast vel uppeldi barnanna, sjá þeim fyrir góðri menntun og þekkingu á því, er þau vildu taka sér fyrir hendur, og kenna þeim að meta gildi nýjunga, sem nytsamar væru. Auk þessa leggja útgefendurnir áherzlu á ýmsar endurbætur og breytingar. Það var eiginlega ekkert nýtt í sjálfri stefnuskránni. Magnús Stephensen hafði lagt áherzlu á það sama, en hér var farið að á annan hátt. Hér áttu fram- farirnar að byggjast á þjóðlegum grundvelli, sem Magnúsi og samherjum hans hafði svo oft gleymzt. Það er nægilegt að bera saman persónurnar í Vinagleði og í Ármanni. Hjá Baldvin eru það alíslenzkir menn, vaxnir upp úr íslenzkum jarðvegi, en hjá Magnúsi voru það innfluttar persónur með útlendum nöfnum. Bændurnir hittast á sögulegasta stað landsins en samtal hinna fór fram innan fjögurra veggja í húsi Fílódemusar. í Ár- manni á Alþingi kemur fyrst fram endurvakning þjóðlegs anda, sameinuð óskinni um aukna þekkingu og hagnýta reynslu. Baldvin Einarsson, sem var óvenjulega gáfaður og duglegur maður, skrifaði langmest í ritið, en Þor- geir annaðist einkum um fjárhaginn. Eftir að fyrsta bindið kom út, fengu þeir nokkurn styrk frá stjóminni, en með hinu skyndilega fráfalli Baldvins 1833 var Ármann úr sögunni. Þorgeir vildi vissulega halda ritinu áfram, en hefur bersýnilega ekki fengið því áorkað. Þá flutti Ármann einnig ýmsar aðrar ritgerðir og fáein kvæði, þar á meðal Búna&arbáUi Eggerts Olafssonar og nokkur eftir Finn Magnússon o. fl. Efnið í þessum kvæðum er jafnan hið sama, að vegsama landið og hin ýmsu störf þjóðarinnar. í öðru bindi er löng ritgerð um samanburð á íslend- ingum til forna og íslendingum samtímans, og er fremur hallað á þá síðari. Ritgerðirnar fjalla annars mest um ýmsar greinar í atvinnuháttum og búskap landsmanna. Utgefendur kostuðu kapps um að vanda mál og rithátt, og skopuðust að málleysum þeim, er víða tíðkuðust. Alveg sérstæð er ritgerð Baldvins Einarsonar í síðasta bindinu um ráð- gjafarþingin, sem sett voru á fót í Danmörku 183!. Þau voru tvö, annað fyrir Jótland, en hitt fyrir eyjarnar, og skyldu íslendingar senda þangað tvo full-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.