Helgafell - 01.10.1946, Page 49

Helgafell - 01.10.1946, Page 49
ALÞINGISUMRÆÐUR UM AÐBÚÐ LISTAMANNA 231 Einar síðar Agli Skallagrímssyni, var gulli sleginn og ..skrifaSur fornsög- um“ (þ. e. myndskreyttur). í spöng- unum einum var hálf önnur mörk gulls, og er þaS taliS hafa jafngilt 25 kýrverSum. BlómaskeiS drótt- kvæSanna var á 10. og 11. öld. Fremsta hirSskáld 12. aldar, Einar prestur Skúlason, kenndi þess glögg- lega, aS list sú, er hann þjónaSi, naut minni virSingar en áSur. Nú voru komnir til sögunnar nýir og örSugir keppinautar um hylli konunga; hljóS- færamenn, leikarar og trúSar voru teknir aS hafa í frammi listir sínar og loddarabrögS viS hirSirnar og gátu sér þar góSan orSstír. Eitt sinn, er Einar prestur brá sér til Danmerkur og flutti Sveini konungi svíSanda kvæSi, gerSist sá atburSur, aS skáld- ið hlaut engin laun fyrir og varS aS hverfa á brott meS tvær hendur tóm- ar. Vissi þó skáldiS, aS ekki var nízku konungs um að kenna, heldur spilltum smekk og tíðaranda á villigötum: Danskr harri metr dýrra (dugir miðlung þat) fiðlur (ræðr fyr ræsis auði Rípa-Úlfr) ok pípur. Þótt hirðskáldunum væri allvel tek- ið í Noregi allt fram á 13. öld, sáust þess þá ýmis merki, að blómatímar dróttkvæðanna væru senn taldir. ViS- horfiS gagnvart skáldunum var breytt, og veraldlegt gengi þeirra þvarr stór- um. Eftir að sleppir Snorra Sturlu- syni og frændum hans, Sturlu Þórð- arsyni og Olafi hvítaskáldi, tókst fá- um íslenzkum ljóðasmiSum að ryðja sér braut til viðurkenningar og frægð- ar. Reyndar þótti ávallt nokkur heiður að yrkja vel, en þeir dagar voru hjá liðnir, að hin goðborna íþrótt væri vænleg til fjár og frama á veraldar- vísu. Þess finnast dæmi á lýSveldistím- unum, að íslenzkir höfðingjar gáfu skáldum gjafir og guldu jafnvel stund- um kvæðalaun fyrir umsamin verk. í Laxdælu segir frá því, að Úlfi Ugga- syni hafi verið goldið rausnarlega fyrir Húsdrápu, er hann orti um Ölaf pá í Hjarðarholti og bæjarsmíð hans. HeiSnir menn keyptu skáld til að yrkja níð um Þorvald KoSránsson og FriSrik biskup, er þeir hófu kristni- boð á íslandi. Tvær einkennilegar og sérstæðar sagnir, er báðar eru skráðar í Heimskringlu, benda ótvírætt til þess, að íslendingar á söguöld hafi framar öðrum þjóðum, bæði fyrr og síðar, metið skáldskap mikilvægan félagsheildinni og launað hann sam- kvæmt því af almannafé. AnnaS dæmið er sú frásögu Heims- kringlu, aS ,,það var í lögum haft á íslandi að yrkja skyldi um Dana- konung níðvísu fyrir nef hvert, er á var landinu, en sú var sök til, at skip það, er íslenzkir menn áttu, braut í Danmörk, en Danir tóku upp fé allt og kölluðu vogrek'*. Hermir sagan, aS ,,þá ætlaði Danakonungr (Haraldur Gormsson) að sigla liði .... til ís- lands og hefna níðs þess, er allir ís- lendingar höfðu hann níddan *. Ber vafalaust að skilja þetta á þá lund, í samræmi við fyrri tilvitnunina, að níð- ið hafi verið kveðið um konung fyrir hönd allra íslendinga, en verkið hafi annazt einstök skáld, aS almennri tilhlutun, og þá að sjálfsögðu þegið laun fyrir. Enn ótvíræðari sönnun um íslenzk skáldalaun af almannafé á söguöld- inni felst í frásögn Heimskringlu af viðskiptum íslendinga og Norðmanns-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.