Helgafell - 01.10.1946, Page 96

Helgafell - 01.10.1946, Page 96
278 HELGAFELL Hitti að bragði satan sinn, sönn fram lagði skilríkin, glóða flagða garmurinn Grím þá sagði velkominn. Heljar óra einvígið espaði stóran jáma klið, skollvalds hóran skrykktist við, skjálfa fór með blóðgan kvið. Það væri að vísu synd að segja, að skáldið dragi hér ýsur yfir kvæða- gerðinni. En þetta er ekki innblástur, þessi skrambi! Það er berserksgang- ur eða jötunmóður. Er ekki langlíklegast, að Hjálmari hafi blátt áfram runnið í skap við ein- hvern í veizlunni og þykkjuþunginn setið í honum, þegar heim kom, og krafizt þess, að hann reyndi á kraft- ana, létti á sér með svakafenginni kvæðagerð ? Vínið og undiralda þykkjuþungans gera nægilega grein fyrir fluginu og hraðanum í rímunni, og hótun hans að drepa börnin, ef þau þurrki út einn staf, sæmir miklu betur manni, sem runnið hefur í skap, heldur en guðinnblásnum manni. Skoðanir manna í þessu efni fara auðvitað eftir því, hvers konar skiln- ing þeir hafa á innblæstri yfir höfuð. Hvers konar kraftur er þetta ? Er það litlaus orka, sem stælir hinn eða þenn- an þátt greindar og geðs mannsins, allt eftir því, hvað ríkilátast er í vit- undinni, þegar þessi kraftur kemur ? Eða er það eðli og einkenni inn- blástursins að veita því einu vald og ásmegin, sem fegurst er, spakast og tignast í sálarlífi mannsins, svo að honum gefst við það ný og undur- samleg sýn ? Ég hallast að hinu síðar- nefnda. Ef Hjálmar hefði verið inn- blásinn, þegar hann kom úr veizl- unni, hygg ég, að hann hefði verið allt of vandfýsinn til þess að geta lagt sig niður við að endursegja léleg- an reifara. En um þetta tjáir nú lítt að tala. Það verður víst seint úr því skorið til fulls, hvort Hjálmar hafi verið inn- blásinn eða ekki þetta áminnzta kvöld. Atriði þetta, sem hér hefur verið drepið á, skiptir í raun og veru engu fyrir aðalályktanir og niðurstöður í grein S.N. Skýring hans á því, hvað valda muni hinu ólíka mati, er höf- undur og lesandi leggja stundum á sama skáldverkið, er ákaflega senni- leg, hvort sem hrifning eða móður höfundar, sem ekki tekst þó að yrkja nema ómerkilegt kvæði, er nefndur innblástur eða eitthvað annað. Ættu nú þeir, sem lesa greinina og lenda í því óláni að verða að dæma léleg skáldverk, sem undir þá eru borin, að virða höfundum til vorkunnar meir en áður ánægju þeirra yfir sviplausum samsetningi og óbifandi trú þeirra á gildi hans. Og höfundarnir sjálfir ættu hins vegar að geta tekið hörðum dómi með meira jafnaðargeði, ef þeir kynna sér skýringar S.N. Hver veit líka nema þeir gætu ort betur, ef þeir læsu grein hans vandlega og legðu sér hinar viturlegu bendingar hans vel á hjarta. 7. Kurteisi heitir næsta hugleiðing. Höfundur haslar sérvöll meðfrásögn af háttemi tveggja manna: brezks manns, sem var ártugum saman inn í meginlandi Ástralíu án þess að sjá nokkurn Norðurálfubúa, og Jökuls stigmanns, sem Vatnsdæla segir frá, Báðir eru þeir með sama marki brennd- ir — að einu leyti: Þeir eiga vissa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.