Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2005, Blaðsíða 107
HUMANISTI A RAUÐASANDI
virðist fyrsta verk sinnar tegundar á þýsku.14 Texti Magnúsar er mjög ná-
kvæm þýðing úr þýskunni og sýnir okkur glögglega, hvílíka afburða
kunnáttu hann hefur haft í málinu að geta skilið og snúið á íslensku þess-
um torskilda og flókna texta, þótt erfitt sé að ímynda sér að hann hafi
lokið þessu mikla verki, rúmlega 220 blaðsíðum þéttskrifuðum, á sex tdl
sjö vikum án þess að hafa unnið að því áður. Handritið sem er eiginhand-
arrit þýðanda, sérlega fallega skrifað og vel varðveitt, mun hafa verið í
eigu afkomenda Magnúsar lengst af eða þar til það var gefið Landsbóka-
safhinu á síðustu öld. Efnið er flestum nútímamönnum illaðgengilegt og
hefur sennilega einnig verið svo öllum þorra 16. aldar manna nema þeim
sem höfðu komist í kynni við æðri menntir. Verkið ber greinileg merki
húmanismans með efnisvali sínu og tíðum tilvísunum til fornaldarhöf-
unda eins og Ciceros. Rökræðulistinni til styrktar er meira að segja
minnst á átök Ciceros við rómverska stjómmálamanninn Catilina sem
lýst er af mikilli rökvísi og ræðusnilld í hinum frægu Catilínsku ræðum.
Ljóst er og af upphafsorðum bókarinnar að latneskur textd liggur til
grundvallar þeim þýska, að minnsta kosti að einhverju marki. Ekki er vit-
að með vissu hvaða textd það hefur verið en auk Ciceros er vísað í annan
ffægan mælskusnilling Quintdlianus sem margir húmanistar höfðu í
miklum heiðri.15 Það hlýtur að hafa verið þrekvirki að ljúka þessu verki
en Magnús virðist einungis hafa eflst við þessi störf því að ári síðar þýðir
hann annað verk úr þýsku. I þetta sinn var um að ræða verk um mælsku-
hst. Þýðingin er varðveitt í eiginhandarriti Magnúsar (AM 702 4to) og
hljóða upphafsorðin svo: „Spegill þeirrar sönnu Rhetorica út af Marco
Tullio Cicerone og öðmm tdl samans tekin með sínum limum og klókri
ræðu af meistara Friedrich Riederer af Friborg í Breisgau en íslenskuð af
mér Magnúsi Jónssyni að Haga á Barðaströnd og Rauðasandi mínum
land(s)mönnum og föðurlandi tdl góða. Anno 1589.“ Friedrich Riederer
mun vera fæddur um 1450 og var enn á lífd 1508. Harm var fyrstd lærði
prentarinn í Freiburg og prentaði nokkur verk á latánu og þýsku, þar á
meðal eitt sem birtdst 1493 og fjallaði um mælskulist.16 A fýrstu síðu
14 Deutsche Biograpbische Enzyklopadie (DBE) IH, ritstj- Walter Killy, Darmstadt: Wiss-
enschaftliche Buchgesellschaft, 1996, bls. 523.
15 Quintilianus (um 35 e. Kr. D. eftir 96) var ættaður ífá Spáni en bjó lengi í Róm.
Hann samdi merMlegt rit um mælskulist, lnstitnticmes Oratoriae I-XII, sem hafði
ómæld áhrif á síðari tíma.
16 Dentsche Biographische Enzyklopddie (DBE) VIII, ritstj. Walter Killy og Rudolf Vier-
haus, Darmstadt: Wissenschafthche Buchgesellschaft, 1998, bls. 293.
105