Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2007, Qupperneq 15
NU ER UTI VEÐUR VONT
heimsendamyndmál vísindaskáldskapar og meira að segja leturgerðin á
káputextanum minnir á slíkar bókmenntdr.12 Að sama skapi hefur bókum
sem íjalla um heimsendaspár fjölgað mjög á síðustu árum. I sumum er
efnið tekið fyrir af hálfkæringi en önnur reyna að varpa ljósi á heims-
endatrú í sögulegu ljósi.13 Verk sem þessi og skýrslur vísindamanna um
sama efni hafa mikil áhrif á hrakspárorðræðuna í samfélaginu og áhrif-
anna gætir á öllum umræðusviðum, allt frá lýsingum í gulu pressunni og
vinsælum tímaritum, yfir í tungumál stjórnvalda og umhverfisverndar-
sinna.14
I hrakspárorðræðunni er tungumálið þanið til hins ítrasta og áhersla
lögð á að nú sé hver stund að verða hin síðasta. Höfundar sækja jafnan í
ýmsa kvikmyndakóða máli sínu til stuðnings og orðræðan ber trúarlegan
keim vegna þess hversu ríkulega hún vísar í dauða og tortímingu. Ereaut
og Segnit, skýrsluhöfundar „Warm Words“, draga fram hröðunarmynd-
málið í hrakspárorðræðunni, en því er ætlað að lýsa stigvaxandi vanda
loftslagshlýnunar og ógninni sem stafar af því að bregðast of seint við
þegar óafturkræfar afleiðingar hennar eru orðnar að veruleika (bls. 7).
„Við verðum að bregðast við núna“ er tónninn sem gefinn er í orðræðu
af þessu tagi og hugtök eins og „hamfarir“, „ringulreið“ og „eyðilegg-
ing“ eru áberandi (bls. 13).
12 Sjá Elizabeth Kolbert, Field Notes fro?n a Catastrophe: Man, Nature, and Climate
Change, New York og London: Bloomsbury, 2006; Sir Martin Rees, Our FinalHour:
A Scientist’s Warning, New York: Basic Books 2003; Paul Halpem, Countdcnvn to
Apocalypse: A Scientific Exploration of the End ofthe World, Cambridge, Massachusetts:
Perseus Publishing, 1998; Mayer Hillman, Tina Fawcett og Sudhir Cella Rajan, The
Suicidal Planet: Hoav to Prevent Global Climate Catastrophe, New York: Thomas
Dunne Books, 2007; Peter D. Ward, Under a Green Sky: Global Warming, the Mass
Extinctions of the Past, and What They Can Tell Us About Our Future, New York:
Collins, 2007; og James Lovelock, The Revenge of Gaia, London: Penguin Books,
2007. Einnig má neína heimildamyndina The llth Hotir (2007) (framleidd af Wamer
Independent Pictures) sem fjallar um þær ógnir sem steðja að mannkyni nú þegar
vistkerfi jarðar er að hruni komið, en jafhframt þær lausir sem em í sjónmáli.
13 Sjá t.d. Jason Boyett, Pocket Guide to the Apocalypse, Orlando, Florida: Relevant Books,
2005; Simon Pearson, The End of the World: From Revelation to Eco-Disaster, London:
Robinson, 2006; Jonathan Kirsch, A Histoty of the End of the World, New York:
Harper San Francisco, 2006.
14 Mildlvægt er þó að hafa í huga að í vísindalegri umræðu er oftast lögð áhersla á
alvarleika málsins, án þess þó að skrattinn sé málaður á vegginn og í þessu felst
helsta gagnrýnin á skýrsluhöfunda „Warm Words“ á vefsíðunni RealClimate. Sjá
pistilinn „The missing repertoire“ frá 10. ágúst 2006.