Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2007, Blaðsíða 20
GUÐNI ELISSON
verði gripið til aðgerða.23 Sá hópur er þó líklega stærstur sem trúir því
að verði ekkert að gert steíni allt í óefru og eru höfundar „Warm Words“
þar engin undantekning. Ereaut og Segnit efast ekki um alvarlegar af-
leiðingar loftslagsbreytinga á jörðinni. Þau óttast aðeins að hrakspárorð-
ræðan grafi enn frekar undan getu okkar til að grípa til aðgerða, eða svo
vitnað sé í orð Simons Retallack, sem réð Ereaut og Segnit til að vinna
skýrsluna fyrir IPPR: „Almenningur hefor verið sviptur valdi vegna þess
að máhð virðist einfaldlega of stórt. Og þegar hlutdr eru farnir að hljóma
eins og vísindaskáldskapur verða þeir óraunverulegri en ella.“24 Slíka
niðurstöðu vilja Ereaut og Segnit forðast í lengstu lög, þ\fr að þá sé verr
farið af stað en heima setið.
2. Velsældarorðræða, kómísk tómhyggja og önnur form lamandi jákvæðni
Almennt sinnuleysi andspænis þeirri vá sem loftslagsbreytingar hafa að
öllum líkindum í för með sér verður ekki aðeins rakið tdl hrakspárorð-
ræðunnar.2- Ymsum aðferðum hefur verið beitt tdl þess að veikja traust
almennings á öllum þeim einstaklingum sem krefjast tafarlausra að-
gerða, en eina þá algengustu og áhrifamestu kalla Ereaut og Segnit vel-
sældarorðræðuna (e. settlerdovi). Henni er ætlað að höfða tdl allra þeirra
sem hafa komið sér vel fyrir.26
Velsældarorðræðan leggur áherslu á gott viðurværi einstaklinga, á
efdrsóknarverð lífskjör fólks á Vesturlöndum og með henni er höfðað til
almennrar tortryggni almennings andspænis nýjungum eða þeirn
breytdngum sem vega að sjálfsmyndinni og hugmyndum einstaklingsins
um öryggi og samastað (bls. 14). Fulltrúar velsældarsjónarmiðsins spyrja
spurninga eins og: „Hvernig lifnm við af ef við hættum að gera það sem
23 Ian Birrell, aðstoðarritstjóri Independent, segir t.d. loftslagsbreytingarnar svo
alvarlegan hlut að þær réttlæti fréttaflutning af þessu tagi. Sjá áðumefnda frétt BBC
,JVIedia attacked for ‘climate pom’“, frá 2. ágúst 2006.
24 Sjá sömu ffétt.
25 Samkvæmt nýrri skýrslu vísindanefridar Sameinuðu þjóðanna em meira en 90%
frkur á að hlýnun andrúmslofts sé af manna völdum. Sjá t.d. frétt Richards Black,
umhverfisfréttamanns BBC, „Humans blamed for climate change“, 2. febrúar 2007,
http://www.bbc.co.uk/ [sótt 20. júní 2007].
26 Enska hugtakið „settlerdom" er sérkennilegt í þessu samhengi og hafa skýrsluhöf-
undamir réttilega verið gagnrýndir fýrir það, m.a. á vefnum RealClimate: Clij/uite
science from climate scientists (sjá pistilinn „The missing repertoire" frá 10. ágúst
2006).
18