Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2007, Blaðsíða 17
NU ER UTI VEÐUR VONT
Ereaut og Segnit benda réttilega á að vandinn við umræðu af þessu
tagi sé sá að hún veki örvæntingu hjá almennum lesendum/hlustendum
og leiði stundum til hættulegs aðgerðaleysis. Lokaorðin í áðurnefhdum
pisth Egils Helgasonar sýna glögglega þær þversagnakenndu tilfinningar
sem hrakspárorðræðan getur vakið:
Nú er búið að færa dómsdagsklukkuna fram - vegna gróður-
húsaáhrifa. Hún er bara fáeinar mínútur í tólf. Klukkan boðar
semsagt að brátt verði óhft hér á jörðinni. Næsti rétttrúnaður
samtímans verður koltvísýringsrétttrúnaðurinn. [...] Um-
hverfissinnar segja að útlitið sé kolsvart, að lífsmáti okkar sé
fullkomlega ósjálfbær, að við hegðum okkur eins og gráðugar
óseðjandi skepnur. Og jú, mjög líklega hafa þeir rétt fýrir sér.
Maður á samt erfitt með að trúa þessu svona innst inni, í
dýpstu hjartarótum. Kannsld er það einhvers konar sjálfsbjarg-
arviðleitni, hugsanlega sjálfselska og eigingimi - af því maður
vill ekki breyta lífsháttum sínum. Eða kannski er bara búið að
rugla svona mikið í manni?15
Þessi viðbrögð við hrakspárorðræðunni eru um margt dæmigerð fyrir
viðhorf almennings til loftslagsumræðunnar eins og hún hefur gjarnan
verið sett fram í vestrænum fjölmiðlum. Vandamáhð virðist einfaldlega
vera of stórt til þess að einhver getd telúst á við það og hugsanlega er þeg-
ar of seint að bregðast við þeim ógnum sem steðja að marmkyni. Höf-
undar „Warm Words“ vara einnig við því að tengja mnræðuna of mlkið
Hollywood-veruleika því að þannig sé hætta á að viðfangsefnið verði of
fjarlægt. I því formi getur hraHpárorðræðan hugsanlega orðið æsandi,
jafnvel tekið á sig mynd „loftslagsldáms“,16 þar sem stuðst er við tungu-
mál hasarmynda í þeim tilgangi að fanga alvarleika stöðunnar og lýsa
sem best heimi á heljarþröm.
15 Egill Helgason, „Úlfor úlfur!“, 30. janúar 2007.
16 Þessi ábending skýrsluhöfúnda var tekin upp víða í umfjöllun um skýrsluna, m.a. á
fréttavef BBC þar sem skýrslan var kynnt undir fýrirsögninni „Media attacked for
‘climate pom’“. Sjá BBC NEWS 2. ágúst 2006, http:/Avww.bbc.co.uk/ [sótt 6. mars
2007]. Vef-Þjóðviljinn, sem rekinn er af harðlínumönnum á hægri væng íslenskra
stjómmála, gerði sér einnig mat úr fréttinni í pisth sem birtist á vefsíðunni 4. ágúst
2006. Umfjöllun Vef-Þjóðviljans um efhi skýrslunnar er þó mjög viUandi eins og ég
ræði ffekar seinna í þessari grein [sjá andriki.is].
15