Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2007, Síða 23
NÚ ER ÚTI VEÐUR VONT
um áhrif vegna hlýnunar andrúmsloftsins: „Þurrkar og slæm veður hafa
orðið til þess að matarkista Evrópu sem var áður í suðurhlutanum hefur
færst norður. Við erum að sjá það nú að mörg gömul vínhéruð eru að
missa gæðin í uppskeru sinni á meðan vínrækt er að aukast í Skotlandi
og á Irlandi. I framtíðinni getum við átt von á því að hér á íslandi verði
hægt að rækta ýmislegt sem ekki taldist mögulegt á áður [svo]. Ljóst er
að hefðbundinn landbúnaður hér á landi á einnig eftir að njóta góðs af
þessu, t.d. munu skapast öruggar aðstæður fýrir kornrækt og grasvöxtur
verður íýrr á ferðinni.“ Fréttinni af erindi Trausta lýkur á þessum orð-
um: „I mörg ár hafa jarðarber verið ræktuð í gróðurhúsum á Flúðum og
víðar en hver veit nema vínberjaræktun og víngerð verði atvinnugrein
framtíðarinnar í uppsveitum.“29 Þeir fulltrúar þessara sjónarmiða sem
trúa því að loftslagshlýnunina megi rekja til athafha mannsins standa þá
einungis frammi fýrir þeirri siðferðisspurningu hvort íbúarnir á norð-
urhveli jarðar, þeir hinir sömu og menga mest, eigi rétt á að gera stóra
hluta jarðarinnar næst miðbaug nær óbyggilega.
Mælskufi-æðileg efahyggja (e. rhetorical scepticism) byggist á meiri harð-
línuafstöðu. Þar er reynt að grafa undan niðurstöðum loftslagsrannsókna
sem vondum vísindum. Fulltrúar þessara sjónarmiða vísa gjarnan til
vísindamanna sem halda fram gagnstæðum hugmyndum við ráðandi
skoðun til þess að sýna fram á gallana í þeim kenningum sem hrak-
spármennirnir byggja á og vara við alvarlegum efnahagslegum afleiðing-
um þess að draga úr efnahagslegri uppbyggingu og iðnvæðingu á
Vesturlöndum, sem og í þriðja heiminum. Eitt þekktasta dæmið um
mælskufræðilega efahyggju frá síðustu misserum er breska heimildar-
myndin The Great Global Warming Swindle sem frumsýnd var á Channel
4 í mars 2007, en myndin hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir að birta
mjög brenglaða mynd af loftslagsvísindum.30 Sjálfur titillinn er forvitni-
29 Sjá Gluggiiin 22. mars 2007, bls. 4. Önnur frétt um svipað efni birtist í Fréttablaðhiu
23. júní 2007, en þar segir: „Loftslagsbreytingar geta haft einhver jákvæð áhrif á
Norðurlöndunum, meðal annars á endumýjanlega orkugjafa. Þetta kemur fram í
skýrslu sem Norrænar orkurannsóknir fjármögnuðu. I skýrslunm segir að vatnsorka
verði meiri þegar vetur hlýnar, auk þess sem vatnsmagmð verði jafnara allan ársins
hring. Skógar munu einnig vaxa hraðar með hlýnandi loftslagi. Skýrslan var gerð til
að karrna hvort loftslagsbreytingar hefðu áhrif á nýtingu endurnýtanlegra orku-
gjafa.“ („Hlýnun jarðar gæti hjálpað“, Fréttablaðið 23. júm' 2007, bls. 2.)
30 Leikstjóri Tbe Great Global Warming Swindle, Martin Durkin, hafði áður gert heim-
ildaþáttaröðina Against Natttre (1997) fyrir Channel 4 um umhverfisverndarhreyf-
21