Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2007, Side 28
GUÐNI ELISSON
„hnattræn hlýnun“. Samkvæmt Poole var hugtakið horfið með öllu út úr
samþykktum þegar árið 1992.40
Af þessu má vera ljóst að sterk fylgni er milli stjórnmálaskoðana og
afstöðunnar til jafn vísindalegs vandamáls og kenninga um loftslags-
hlýnun. Þó er varasamt að greina afstöðumuninn til loftslagsrannsókna í
hægri og vinstri eins og repúblíkanar og íslenskir harðlínumenn í Sjálf-
stæðisflokknum hafa löngum viljað gera. Demókratar liggja langt til hægri
á stjómmálaarminum þótt þeir séu vinstra megin við repúblíkana og
hægri flokkar í Evrópu eru margir leiðandi í póhtískri umræðu um
takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda. Einstaklingar til hægri og
vinstri kjósa með öðrum orðum að taka mark á varnaðarorðum vísinda-
samfélagsins og telja brýnt að brugðist sé við nýrri skýrslu vísinda-
nefhdar Sameinuðu þjóðarma þar sem því er haldið fram að meira en
90% líkur séu á því að hlýnun andrúmslofts sé af manna völdum.41 Mesti
trúarhitinn virðist því bundinn við takmarkaðan hóp hugmyndafræðinga
allra lengst til hægri á sviði bandarískra stjórnmála, en langflestir þeirra
sem beita mælskufræðilegri efahyggju með þeim sérfræðings- og
markaðsrökum sem henni fylgja, móta skoðanir sínar eftir þeim flokks-
bundnu loftslagslínum sem Bush-stjórnin hefur talið ásættanlegar.42
Astæðan fyrir því að þessi hópur hægri sinnaðra harðlínumanna er
vantrúaður á gróðurhúsaáhrifin er líklegast sú að hlutverk ríkisins í sam-
félaginu mun að öllum líkindum vaxa ef bregðast þarf við svo hnattræn-
um vanda sem hlýnun jarðar af mannavöldum hlýtur að teljast. Á þetta
hafa þeir Jón Steinsson hagfræðingur og Jón Olafsson heimspekingur
40 Sjá, Steven Poole, Unspeak: New York: Grove Press, 2006, bls. 42-49.
41 Sbr. frétt Richards Black, umhverfisfréttamanns BBC, „Humans blamed for chmate
change", frá 2. febrúar 2007, sem vísað var í hér að framan.
42 Sjá t.d. forvitnilega grein Jonathans Chait „Why the right goes nuclear over global
warming", í Los Angeles Times 25. mars 2007, en þar heldur hann því fram að and-
stöðu repúblíkana við ráðandi loftslagsrannsóknir megi rekja til lítils kjarna harð-
línumanna innan flokksins. Chait rekur nokkur dæmi þess hvemig þeim repúblíkön-
um hefur verið ýtt til hliðar sem telja loftslagshlýmmina rekjanlega til mannlegra
athafna. Fáir repúblíkanar hafa bolmagn til að skilja sig frá þeirri hugmynda-
fræðilegu línu sem lögð var í Washington. Kvilonyndaleikarinn Arnold Schwar-
zenegger, ríkisstjóri Kaliformu, er undanteldng á reglunni en harm hefur ítrekað
staðið uppi í hárinu á Bush-stjóminni í afstöðu sinni til loftslagsmála.