Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2007, Qupperneq 40
GUÐNI ELÍSSON
Auglýsingin sýnir vel veikleikana í þeim pólitísku lausnum sem Ereaut og
Segnit setja fram, þar sem á íremur að neyslubinda umhverfisvitundina
en að mennta almenning. Hætm að hugsa og farðu að kaupa er inntakið
í auglýsingu Brimborgar og tillögum bresku skýrsluhöfimdanna.
Hættan er sú að neysluspuni af þessu tagi leiði til innihaldshtillar
ímyndarsköpunar og að raunverulegur árangur láti á sér standa. Hættan
er sú að athafnir á borð við þær sem Brimborg og önnur íslensk fjrrirtæki
hvetja til öðlist friðþægingargildi og að raunverulegum bótum verði
slegið á frest. Ef við hættum að hugsa missum við að öllum líldndmn
sjónar á því að umhverfisvænir bílar eru ekki til eins og Bima Helga-
dóttir umhverfisráðgjafi bendir á í viðtali við Morgunblaðið í tileíhi af því
að bílaumboðið Hekla auglýsir græna bíla.63 Að sama skapi er kol-
efhisjöfhunarátak Kohdðar ágæt lausn á loftslagsvandanum ef við hætt-
um að hugsa, því eins og Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis-
og auðlindafræðum \dð Háskóla Islands, og Bergur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landvemdar hafa bent á, er skógrækt gegn gróðurhúsa-
áhrifum „aðeins gálgaffestur“, þó svo að hér sé á ferðinni „gríðarlega
jákvætt skrefh Bergur, sem situr í stjórn Kolviðar, segir: „Auðvitað era
gróðurhúsaáhrifin fýrst og fremst lífsstílsvandamál Vesturlandabúa“.64
George Monbiot heldm því fram að almenningur á Vesturlöndum
krefjist þess af stjórnmálamönnum að þeir láti sem þeir muni bregðast
við loftslagsvandanum. Hann óttast einnig að stjórnmálaleiðtogar rík-
ustu þjóðanna viti þetta. Markmiðin eiga að vera róttæk en þau mega
ar fá nú ókeypis stæði í miðborginni“, bls. 8). í annarri augb'singn ffá bílaumboðinu
Brimborg sækir höfundurinn fyrirmynd í k'mmiðaslagorð bandarísku handvopna-
samtakanna NRA (National Rifle Association), „guns don’t kill people - people kill
people“, og af sama sannfæringarkrafdnum. Manngildið og verðgildið eru honum
sem fyrr ofarlega í huga: „Bílar hafa ekki áhrif á umhverfið. Við hjá Brimborg límm
svo á að bílar hafi ekki áhrif á umhverfið - heldur fólldð sem nýtir þá, á þá, ekur
þeim, þjónustar þá, selur þá, framleiðir þá. Oll berum ríð áb)Tgð á þeim lífegæðum
sem við viljum hafa á morgun og stefitt er að í dag. Við hjá Brimborg trúum því að
við sjálf, í samvinnu við aðra, finnum réttu leiðina að þeim lífsgæðum sem gildi
okkar vísa á. Hvort sem þau eru kölluð verðgildi eða manngildi. Við viljum vera í
hópi þeirra besm. Við viljum gæði. Við viljum ný tákn um lífsgæði.“ Yfirlýsing
Brimborgar er miklu lengri, en þetta er inntak hennar. Sjá Morgunblaðið 29. apríl
2007, bls. 43.
63 „Umhverfisvænir bflar eru ekki til“, Morgunblaðið 28. júní 2007, bls. 22-23. Eg
fjalla um auglýsingu Heklu í upphafsorðum þessarar greinar.
64 „Aðeins gálgafrestur“, Blaðið 31. maí 2007, bls. 4.
38