Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2007, Page 50
UNNUR DÍS SKAPTADÓTTIR
ur bent á hvemig hugmyndir um ást á móðurmáli tengist þróun þessara
hugmynda.8
Sambærileg gagnrýnin umræða hefur átt sér stað í greiningu á þjóð-
emishópum (e. ethnic groups). Ymsir minnihlutahópar í þjóðríkjum, svo
sem innflytjendahópar og frumbyggjar, hafa í réttindabaráttu sinni lagt
áherslu á að rækta menningu sína og tungumál til að styrkja sjálfsmynd
hópsins. Fræðimenn hafa skoðað hvernig tungumálið hefur oft fengið
táknrænt gildi í að skilgreina þjóðernishóp í samanburði við aðra eða
stöðu hans sem minnihlutahóps í stærra þjóðríki.9 Þannig hefur sú sýn að
þjóðernisvitund sé félagslega áunnin verið áberandi á síðustu áratugum
meðal þeirra sem rannsakað hafa þjóðir og þjóðernishópa (e. ethnic
groups). Umíjöllun þeirra snýst um hvernig fólk tengist og finnur til
þjóðerniskenndar eða samkenndar með sínum þjóðernishóp og hvernig
þessar kenndir eru félagslega áunnar og viðhaldið með hjálp ýmissa
tákna, bæði hátíðlegra og hversdagslegra, eins og söngva, tungumáls,
fána og staða.
Með áherslu á hnattræna sýn hafa nýlegar rannsóknir beint sjónum að
því hvernig tengsl fólks við þjóðríki og þjóðernishópa eru oft á tíðum
margþættari og margbromari hjá þeim sem flytja frá einu ríki til annars
í dag heldur en fyrr á tímum. Þeir tengjast ekki aðeins einu þjóðríki og
tungumáli heldur tveimur eða jafnvel fleiri þjóðríkjum á ólíkan hátt.
Levitt og Glick Schiller hafa bent á að líf margra sé ekki hægt að skilja
með því einu að athuga það sem fram fer innan þjóðríkisins heldur verði
að beina sjónum að þeim félagslegu og menningarlegu tengslum einstak-
linga sem ganga þvert á landamæri þjóðríkja.10 Það er ekkert nýtt að fólk
sem flyst tímabundið frá einu landi til annars haldi í tengsl við fólk ffá
heimalandi sínu og sé í sambandi við ættingja með bréfaskriftum og pen-
8 Etienne Balibar, Race, Nation, Class: Ambiguous Identities, bls. 86-106.
9 Thomas Hylland Eriksen, Ethnicity and Nationalism. Anthropological Perspectives, 2.
útg., London: Pluto Press, 2002.
9 Peggy Levitt og Nina Glick Schiller, „Conceptualizing Simultaneity: A Transna-
tional Social Field Perspective on Society", Intemational Migration Review 38,3/
2004, bls. 1003. Sjá einnig í Linda Basch, Nina Glick Schiller og Cristina Szanton
Blanc, Nations Unbound: Transnational Projects, Postcolonial Predicaments, and Deter-
ritorialized Nation-States, Amsterdam: Gordon and Breach, 1994.
10 Karen Fog Olwig og Ninna Nyberg Sörensen, ,JVlobile Livelihoods Maldng a Liv-
ing in the World,“ Work and Migration, ritstj. Karen Fog Olwig og Nirma Nyberg
Sörensen, London: Routledge, 2002.
48