Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2007, Page 185
NÝJAR VÍDDIR í TUNGUMÁLARANNSÓKNUM
tjáningu tungnmáls og ná þannig, að minnsta kostá að hluta til, yfir hug-
myndina um „óendanlega notkun á endanlegum merkjum.“ Aðrar fram-
farir opnuðu einnig nýja möguleika til að svara gömlum spumingum
með meiri von um árangur. Rannsóknir á málbreytingum hafa sldlað
miklum árangri. Málvísindi mannfræðinnar hafa skilað mun ríkari skiln-
ingi á eðli og breytileika tungumála og grafa jafnframt undan mörgum
stöðnuðum ímyndum. Akveðin viðfangsefhi, sérstaklega þá rannsóknir á
hljóðkerfum, hafa tekið miklum framförum fyrir tilstilli formgerðar-
málvísinda 20. aldarinnar.
Fyrstu tilraunirnar til að beita málmyndunarfræði leiddu í ljós að
jafnvel rannsóknir á þeim tungumálum sem mest höfðu verið könnuð
snertu ekki á undirstöðuatriðum, jafrivel yfirgripsmiklar málfræðireglur
og orðasöfn þeirra tungumála gáruðu rétt svo yfirborðið. Gxunneigin-
leikar tungumálsins eru sjálfgefhir hvarvetna, annaðhvort óþekktir eða
ósagðir. Það á vel við ef markmiðið er að hjálpa fólki tdl þess að læra nýtt
tungumál, til að finna hefðbundna merkingu og framburð orða, eða til
þess að hafa einhverja almenna hugmynd um á hvaða hátt tungumál eru
breytileg. En ef takmarkið er að skilja máleiginleikann og þau stig sem
eiginleikinn getur náð er ekki hægt að taka „greind lesendans“ sem gef-
inni: Ollu heldur er það viðfangsefni rannsókna.
Rannsóknir á máltöku leiða til sömu niðurstöðu. Ef túlkun á tjáningu
er góður gaumur gefinn kemur fljótlega í ljós að mjög snemma í þroska
veit bamið margt fleira en það hefur reynt. Þetta á einnig við um hin
einföldustu orð. A hápunkti tungumálaþroska lærir bamið um það bil
eitt orð á klukkutíma, við ákaflega takmarkaða snertingu og óljós skil-
yrði. Orðin skiljast á fínofinn og margbrotinn hátt sem engin orðabók
nær yfir og hafa rannsóknir aðeins nýverið hafist á því ferli. Þegar
skoðað er meira en stök orð verður niðurstaðan jafnvel enn áhrifameiri.
Máltaka virðist líkjast vexti líffæra almennt; það er eitthvað sem gerist
hjá barninu, fremur en það geri eitthvað. Þó að umhverfisáhrif skipti
augljóslega máh, ákvarðast stefna málþróunarinnar og eiginleikar þess
sem úr henni kemur af grunnstiginu. Grunnstigið er sameiginlegt öllum
mönnum og því hljóta tungumál að mótast á sama hátt, hvort sem það
em almennir eiginleikar þeirra eða jafnvel smáatriði. Vísindamaðurinn
ffá Mars gæti því eðlilega haldið að alhr menn töluðu sama tungumál,
aðeins með blæbrigðamun.
Þegar frekari rannsóknir vom gerðar á tungumálum út ffá málmynd-
183