Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Page 16

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2009, Page 16
HELGI ÞORLAKSSON er erfitt fyrir nútímafólk að meta það. Gagnrýni á ófrið tengdist þó líkJega helst röskun samfélagshátta, herferðir tóku tíma frá bústörfum og fyrirvinn- ur féllu í bardögum. Mannfall á bilinu 1235-55 var miklu meira en venjulegt hafði verið. Hér er aðalatriðið að reyna að skilja gagnrýni þá sem kemur fram á 13. öld á ofsa og óhóf út ffá forsendum sem þá giltu. Enn má hafa í huga að manndráp eru sýnd í heldur neikvæðu ljósi í Islendingasögu Sturlungu og er þá þess að minnast að hún var samin þegar friður var kominn á, efdr 1264, og konungur hafði snúist gegn blóðhefnd. Þess má líka minnast að nokkurs kala þykir gæta af hálfu höfundar, Sturlu Þórðarsonar, í garð Gissurar Þorvaldssonar. í íslendingasögum gætir stundum gagnrýni á ójafnað, höfðingjiun bar að vera hófsamir.15 Sumir beittu þó ójafnaði og komust upp með það en það er annað mál. Vel má vera að hugmyndir um ójafhað og hóf hafi breyst ffá 12. til 13. aldar. Skýringin væri þá sú að jafnvægi milli samþingsgoða, þeirra sem voru saman um vorþing, hafi talist mikilvægt lengst af á 12. öld og óæskilegt að einn goði yrði samþingsgoðum sínum yfirsterkari. Þegar héraðsríki töldust hins vegar æskileg, að völd yrðu falin einum öflugum höfðingja á tilteknu svæði, er líklegt að viðhorf hafi breyst og viss ágengni og ofsi hafi þótt prýði á höfðingjum. Þetta væri verðugt rannsóknareíhi fyrir sagnfræðinga. Orlæti skyldi alltaf einkenna höfðingja, það var hluti af ímynd sem ekki var unnt að víkja sér undan og er að mínu matá merkilegt sagnfræðilegt viðfangsefni. Snorri Sturluson hélt veislur og gaf gjafir en engu að síður telja fræðimenn ýmsir að hann hafi verið sínkur og að það hafi verið ljóður á ráði hans og jafhvel flýtt fyrir dauða hans. Varla verður þó séð að sam- tímamenn hans hafi ásakað hann um nísku en engu að síður hafa sumir ffæðimenn sett þetta á oddinn sem þverbrest í skapgerð Snorra. Þarna tel ég að sé komið út fyrir sagnfræðileg viðfangsefni. Eins er um Eyjólf ofsa, sem hlaut e.t.v. viðurnefni sitt af því að hann þótti mikið höfðingjaefhi. A seinni tímum hefur mörgum lesendum Smrlungu ofboðið ofsi hans í Flugumýrarbrennu en telja má álitamál hvað samtímamönnum hans fannst. Einar Kárason rithöfundur hefur nýlega leitað sálfræðilegra skýringa í skáldsögu á framgöngu Eyjólfs og það er efni sem hæfir vel á slíkum vettvangi en er varla sagnffæðilegt viðfangs- efni.16 15 Jesse L. Byock, Medieval Iceland. Society, Sagas and Power, Berkeley, Los Angeles og London: University of California Press, 1988, bls. 128-129, 204—205, 219. 16 Sjá Einar Kárason, Ofsi, Reykjavík: Mál og menning, 2008. *4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.